<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

fimmtudagur, apríl 29, 2004

Ég fór að hugsa það um daginn þegar ég sá að ég er komin með hálffulla skúffu af tónleikamiðum sem bíða þess að verða notaðir í sumar, hvort maður ætti ekki að vera löngu vaxinn upp úr því að stunda rokktónleika. Sérstaklega þegar horft er til þess að ég er að nálgast það að verða 29++++ og að það eru mun meiri líkur á að jafnaldrarnir séu að fara í barnaafmæli á föstudagseftirmiðdegi en að flösuþeyta við gítarvæl og trommuglamur. Þessi rokkáhugi ætti líka að vera algerlega út úr mínum karakter ef maður hlustar á textana við þetta sem oftar en ekki er hægt að líta á sem allra verstu karlrembu. (Það er reyndar líka ýmislegt annað sem er algerlega út úr mínum karakter, eins og það að drekka bleika kokteila. Mæt manneskja hefur sett fram þá kenningu að áfengisgenið í mér sé brenglað). Spáið t.d í þessum skáldskap:

Oh I've got big balls,
I've got big balls
And they're such big balls
Dirty Big Balls,
And he's got big balls
And she's got big balls
But we've got the biggest balls of them all
And my balls are always bouncing
My balls are always full
And everybody cums and cums again
If your name is on the guest list
No-one can take you higher
Everybody says I've got
GREAT BALLS OF FIRE...

Oh I've got big balls
[repeat]

Some balls are held for charity
And some for fancy dress
But when they're held for pleasure
They're the balls that I like best.
My balls are always bouncing
to the left and to the right
It's my belief that my big balls
Should be held every night

...eða þá þessi snilld

Oh, good God, there's a fire
In my pants
Then lightening strikes and she
Laughs that evil laugh

She's so sticky
Sticky sweet

Now, when I've done good
She slaps me on the ass
It takes more than ten seconds
To satisfy this lass

Eftir að hafa heyrt svona ætti maður auðvitað að vera alveg fjúríus og snúa sér beint að næsta karlmanni og gefa honum drag í höfuðið og spark í rumpinn. En maður lítur bara á kómísku hliðina á þessu öllu og hugsar sem svo að þeir séu bara á sinn klunnalega hátt að láta okkur vita að þeir geti ekki án okkar verið. Þetta gengur alla vega ekki nálægt því eins mikið fram af mér og þessar berrössuðu gliðrur sem skaka sér framan í andlitið á fólki í hvert skipti sem maður reynir að horfa á sjónvarpið.
Þrátt fyrir allt þá held ég að maður haldi sig bara við rokkið. Það bætir, hressir og kætir og heldur manni frískum og ungum í anda. Svo er þarna eitt og eitt augnakonfekt sem maður myndi alveg vilja grípa í með góðum nappitólum...say no more, say no moooore.

|
|
|

þriðjudagur, apríl 27, 2004

Ég var að slóra á netinu um daginn, rólegt að gera í vinnunni og svona, sem væri ekki í frásögur færandi nema hvað.....að þar sem ég var búin að skoða flest allt sem ég hafði áhuga á þá smellti ég á femin.is svona bara að gamni mínu. Einhversstaðar hef ég heyrt að þetta sé með vinsælli heimasíðum í dag (einhversstaðar á eftir kynlífsauglýsingasíðum eins og einkamál.is). Nú spyr ég bara, hafa konur ennþá ekkert skárra að tala og hugsa um en brjóstastækkanir, brúnkukrem og megrunarkúra? Já og svo auðvitað börn. Hvar er umræðan um það sem ætti að skipta sjálfstæða nútímakonu máli? Launajafnrétti, menntun, staða kvenna á vinnumarkaði og innan fyrirtækja, réturinn til að hafa ekki áhuga á að vera í einsmannsfjölskyldu og rétturinn til að láta börn fara í taugarnar á sér! Hvar er kvennremban?!
Talandi um fjölskyldur þá hafa forsvarsmenn Bónuss loksins áttað sig á því að það er til fullt af fólki sem á ekki fjölskyldu. Þeir eru jafnvel að spá í að fara að selja vörur í smærri pakkningum. Maður getur þá farið að versla í Bónus án þess að þurfa að kaupa 5 kílóa Cheeriospakka, 20 hamborgara saman í pakka, hálfa rollu sneidda í bita ofan í plastpoka, kaffi í sekkjum og hjólbörur af majonesi. Þegar maður er búinn að borða 4 kíló af Cheeriosi þá er restin í pakkanum orðin á bragðið eins og gamalt sag.
Ég var líka að uppgötva eitt. Ég hef ekki heyrt Eurovisionlagið og ég veit ekki einu sinni hvenær þessi blessaða keppni á að fara fram! Ekki það að ég sakni þess eitthvað, það hefur ekki komið fram almennilegt lag í þessari keppni síðan ABBA vann hérna um árið og þessi íslensku lög eru flest bæði geymd og gleymd. Ég veit þó að það á að senda þennan Jónsa ofvirka sprelligosa til að syngja og sprella. Ímyndið ykkur Jónsa grænan í framan brosandi aftur á rass eins og hann er venjulega...er hann ekki bara alveg eins og The Mask?


Jónsi í Eurovisiondressinu
|

mánudagur, apríl 26, 2004

Mikið rosaleg vildi ég vera einræðisherra (forsætisráðherra heitir það hér). Ég myndi bara setja lög um allt sem færi í taugarnar á mér og eins og nafnið gefur til kynna þá er ég frekar grumpy og margt fer í taugarnar á mér.
Byrjum bara á þessum Jónsa í Svörtum fötum fyrirbæri. Hann er auðvitað markaðsráðandi og honum yrði því stranglega bannað að stunda starfsemi utan hljómsveitarinnar. Þá myndum við losna við að sjá hann geifla sig í Eurovision, það væri hægt að fara á söngleiki án þess að þurfa að horfa á smettið á honum heilt kvöld og þessi ÖMURLEGA Draum auglýsing hefði aldrei komið fyrir mín augu. Og fyrst ég er byrjuð þá myndu þessi sömu lög gilda fyrir Birgittu Haukdal og ég myndi banna Gísla Marteini að koma fyrir augu almennings yfir höfuð, sinfóníuhljómsveitin yrði lögð niður og Mínus og Brain Police settir á fjárlög í staðinn, Kiss fm yrði bannað að senda út þetta sorp sem þar er látið viðgangast að spila fyrir fólk sem á sér enskis ills von, öllum Justin Timberlake plötum yrði hent, Solla á Grænum Kosti látin éta nautasteik, Jói Fel sendur eitthvað langt, langt í burt ásamt þessum steraæfingafélögum sínum, Sveinbjörn Kristjánsson gerður að fjármálaráðherra (það er alltaf þörf fyrir mann sem kann að redda hlutunum) og Skari skakki gerður að dómsmálaráðherra (fyrst að Colonel Birni B. Bonaparte er treystandi fyrir þessu þá geta þetta allir og Skari hefur mikla þekkingu og reynslu af fíkniefnamálum) og svo mætti lengi telja. Það eru mörg þjóðþrifamálin sem röggsamur einræð... afsakið, forsætisráðherra getur hrundið í framkvæmd ef viljinn er fyrir hendi. Og svo af því að ég er svo frábær og sniðug þá er ég kosin aftur ár eftir ár. Lýðræðið er frábært! X-Grumpenhofen!
|
Jæja folks, þá er komið að því. Að ég, vegna fjölda áskorana (eins og pólitíkusarnir segja þegar þeir ákveða að fara í framboð en vilja ekki kenna sjálfum sér um ef enginn vill kjósa þá) er komin í þetta blogg dæmi. Svo er það bara spurningin hvort ég hef eitthvað að segja, en það verður bara að koma í ljós.
Ég gæti auðvitað byrjað á því að rífast og skammast út í Davíð Oddsson enda á mannfýlan ekkert annað skilið, ekkert nema yfirgangurinn og einræðistilburðir. En það ætla ég samt ekki að gera núna, það eiga alveg örugglega eftir að koma næg tækifæri til þess. Þess í stað ætla ég að byrja á persónulegu nótunum, er það ekki það sem fólk gerir í þessu bloggi? Gasprar um alla skapaða hluti sem engum kemur við og enginn vill vita (nema auðvitað ef þú ert Birgitta Haukdal eða Frikki Weisappel eða Weisshappel eða Weisappelle eða WassupHal eða hvernig í fjandanum sem þetta nafn er stafað).
Ég er nefnilega farin að reyna að borða hollari mat. Devitos pizza og bakaríið í Mjódd eru kannski ekki alveg ídel staðir til að gera matarinnkaupin. Jú jú ég elda einstöku sinnum alveg ágætis máltíðir en það er þetta með grænmetið sem er ekki alveg að virka. Grænmeti er svo sem allt í lagi ef því er drekkt í einhverjum kryddum og sósum en svona eitt og sér er þetta hálfgerður óþverri. Af hverju er enginn búinn að finna upp grænmetispillur svona eins og lýsispillur? Þá gleipir maður bara tvær á dag og fær þessi næringarefni sem eru í grænmeti en þarf aldrei að finna af því bragðið. Svo vaða þessar grænmetisbullur uppi eins þær séu að bjarga mannkyninu frá glötun og öfgafólk eins og Solla á Grænum Kosti með sín fótsveppaseyði og súrbaunabuff er orðin jafn óþolandi og Gaui litli var á sínum tíma. GET A LIFE!! Og láttu okkur hin í friði. Ég ætla bara að taka þetta heilsuátak í litlum en öruggum skrefum og byrja á því að hætta að telja sjálfri mér trú um að súkkulaði (sem þó er búið til úr baunum) og gulrótakaka sé alvöru grænmeti.
Svo verð ég nú að minnast á eitt. Í DV um daginn var umfjöllun sem hét 10 eftirsóttustu piparsveinar landsins. Annað hvort fer ég ekki nógu oft á hárgreiðslustofur til að skoða Séð og heyrt eða ég þyrfti að vera í einhverjum krassandi saumaklúbb því ég hafði ekki hugmynd um hverjir flestir af þessum mönnum voru. Hver er t.d Davíð Guðbrandsson leikari eða Guðmundur Th. Jónsson fasteignasali?? Ef þetta eru skástu piparsveinarnir á markaðnum í dag þá er ekki að furða að fleiri og fleiri konur eru einhleypar langt fram eftir aldri eða nái sér í einhverja huggulega Frakka eða Ítali sem auk þess kunna líka mannasiði og eru kurteisir. Think about it, guys!
|

sunnudagur, apríl 25, 2004

Rétt Einstein!

|
Hér er ég komin í bloggheima. Ætla að athuga hvernig allt fer hér fram og koma mínum hugsanagangi út á meðal fólks. Beware!
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?