<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

miðvikudagur, júní 30, 2004

Það tilkynnist hér með að það er búið að krýna nýja trúnódrottningu. Þar sem Húsfrúin er að yfirgefa okkur og halda á vit kokteilboða og kvikmyndastjarna í ameríku þá varð að finna verðugan arftaka. Og viti menn, hann fannst. Ónefnd húsmóðir úr Vogunum hrifsaði til sín titilinn með glæsibrag á laugardagskvöldið síðasta. Á reykmettuðu öldurhúsi í miðbæ Reykjavíkur komst hún í trúnófílinginn sem aldrei fyrr og hefði maður haldið að enginn kæmist með tærnar þar sem Húsfrúin hafði hælana þá var það afsannað. Tilþrif kvöldsins voru tvímælalaust hóptrúnó sem m.a.s Húsfrúin gæti ekki toppað.

Þá er enn ein stórsveitin að koma til að skemmta landanum með söng og hljóðfæraleik. Korn og Deep Purple hafa ekki fyrr kvatt en Metallica heiðra okkur með nærveru sinni. Því miður verður að segjast að þeir blessaðir hafa séð fífil sinn fegurri. Þeir sem hafa heyrt þessa síðustu plötu þeirra, St. Anger ættu að átta sig á því hverslags sorp það er. Þegar menn hafa spilað í landsliðinu á maður von á landsliðstöktum en ekki framistöðu sem m.a.s Hvöt á Blönduósi myndi skammast sín fyrir. Það er ekkert hallærislegra en miðaldra, ríkir, latir kallar (og uppþornaðir alkar í þokkabót) að reyna að spila sig eitthvað unga og reiða og vera alveg brjálaðir út í heiminn og sérstaklega "kerfið". Æ greyin mín grow up! Það verður bara að sætta sig við það að eldast og reyna þá að gera það virðulega og með stíl. Að eldast er ekki það sama og að verða kall eða kelling í neikvæðri merkingu þeirra orða, hvað þá að verða eitthvað gamalmenni heklandi pottaleppa og finnast Gísli Marteinn alveg frábær. Að eldast er bara hugarástand segi ég því fólk getur orðið kallar og kellingar um tvítugt. Það eina sem breytist er að maður fer ekki eins oft út á djammið, drekkur ekki alveg eins mikið, eyðir ekki alveg eins miklum peningum í geisladiska (fyrir utan Hammer) og sumir fara að taka upp á því að hrúga niður börnum sem þeir svo ekki losna við út af heimilinu næstu 30 árin og þá taka barnabörnin við. Svo verða oftest einhverjar smávægilegar útlitsbreytingar en ekkert sem hárlitur, make-up, fitusog og andlitslyfting getur ekki lagfært. Það er nefnilega allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.

Nú fer að líða að lokum EM í fótbolta sem ég hef fylgst með frá ýmsum sjónarhornum. Þetta snýst auðvitað ekki bara um það að hlaupa á eftir bolta og sparka honum svo frá sér loksins þegar maður nær honum (how stupid is that?). Þó karlkyns áhorfendur haldi að það sé alllt sem málið snýst um þá vitum við konurnar betur. Þetta er auðvitað eins og hver önnur stóðhestasýning. Þarna vappa léttklæddir, huggulegir menn (mis huggulegir þó) um iðagræna velli, sólbrúnir og sællegir og sumir hverjir ákaflega föngulegir gripir með ber lærin og hnykkla magavöðvana. Hámarkinu er svo náð að leik loknum þegar menn byrja að týna af sér spjarirna hver sem betur getur og koma þá margir fagrir kroppar í ljós. Sigurvegarar þessarar kroppakeppni eru tvímælalaust Ítalir enda skilja þeir til fullnustu mikilvægi þess að líta vel út og koma vel fyrir. Fyrir okkur fagurkerana var það því mikið áfall þegar ítalska liðið datt úr keppninni vegna samsæris svía með sítt að aftan og kartöflunef og dana með skalla og bjórvömb. Enska liðið sem margar boltabullurnar virðast halda með er svo sorgarsaga út af fyrir sig. Helsta kyntáknið er smámæltur stelpustrákur og aðal hetjan freknóttur hamborgarakrakki. Lífið er óréttlátt...

|

laugardagur, júní 26, 2004

Aftur kominn laugardagur!! Funny how time flies when you´re having fun. Það má reyndar deila um það hvað það er mikið fun að hanga í vinnunni langt fram á kvöld, koma síðan heim og hanga eftir iðnaðarmanni sem lætur svo hvorki sjá sig né heyra í sér og er þar fyrir utan hættur að svara símanum þegar ég er að hringja og reka á eftir því að þetta blessaða eldhús mitt verði einhverntíma klárað. Ég er orðin hundleið á 1944 örbylgjumat og Devitos pizzum og ennþá leiðari á því að hafa allt dótið úr eldhúsinu í pappakössum inni í stofu. Hvernig er það eiginlega með iðnaðarmenn, læra þeir þetta í Iðnskólanum? Óstundvísi 101 (næsti tími er þá Okur 102)

Annars er nóg að gera í dag. Maður fer auðvitað að kjósa sér forseta þó úrvalið sé kannski ekki mikið og nokkuð augljóst hver verður fyrir valinu enda 2/3 frambjóðenda mismiklir vitleysingar. Það þarf ekki að segja mörg orð um Ástþór. Hann verður ruglaðri með hverju árinu. Friðarpostulinn mikli sem hleypir öllu í bál og brand hvar sem hann kemur. Ég er viss um að ef hann gengi í skákfélag myndu skákmótin leysast upp í blóðug slagsmál. Menn berjandi hvorn annan með skákborðunum og troðandi taflmönnum upp í nasirnar á hver öðrum með tómatsósuflöskurnar á lofti. OK, ég viðurkenni það að ég myndi eflaust fylgjast af meiri áhuga með beinum útsendingum frá skákmótum en hingað til svo þetta er ekki svo slæm hugmynd. Ástþór ætti þá líka að fara að hella sér út í golf svo eitthvað fútt væri í öllum þessum endalausu ömurlega leiðinlegu útsendingum frá golfmótum sem manni er (mis)boðið upp á í sjónvarpinu. Hver hefur áhuga á því að horfa á miðaldra kalla sem eru of feitir til að geta spilað fótbolta, í fáránlegum fötum rölta á eftir kúlu sem þeir slá á undan sér með priki. Æsispennendi!!!NOT! Það þarf greinilega að endurskoða reglurnar í golfi. Það þarf að vera einhver aksjón og alvöru keppni. Ég legg til að þessu verði breytt þannig að tveir keppendur spili í einu og keppi við hvorn annan um það hvor er fljótastur að koma kúlunni í holuna. Þá gildir ekki bera að geta slegið langt og fast heldur líka að vera fljótur að hlaupa. Þá á líka að vera leyfilegt að bregða golfkylfunni fyrir andstæðinginn og fella hann með öllum mögulegum brögðum. það eina sem væri bannað væri að berja hvorn annan í höfuðið.
Nú er ég víst komin út í allt aðra sálma en ég byrjaði á, sem sagt forsetakosningunum. Hvað er eiginlega með þennan Baldur garðálf þarna? Meikar þetta framboð hans einhvern sens? Ég segi nú bara við hann; Baldur minn, ef íslenska þjóðin er þér svona hugleikin og þú berð hag lands og þjóðar svona mikið fyrir brjósti af hverju fyrir það fyrsta býrðu ekki á Íslandi? Ég er með kenningu um þetta framboð. Kallinn er bara ríkur fylliraftur sem eitthvað kvöldið drakk ótæpilega af whiskey í kallaklúbbnum sem hann stundar,tapaði einhverju veðmáli við annan ríkan fylliraft og þarf því að bjóða sig fram sem forseta. Nokkrir tilvonandi forsetaframbjóðendur:
Helgi Hóseasson
Jói á hjólinu
Stebbi geit
Árni Johnsen
Kokkálaði kokkurinn
Fjölnir Þorgeirsson
Magga massi
Þröstur í Mínus
Hannes Hólmsteinn
Hallbjörn Hjartaarson
Leoncie
Didda ljóðskáld
Skjöldur "Mio" Eyfjörð
Gógó (strippari á Óðal)
Megas

Ég fór líka á tónleika í vikunni, skellti mér á Deep Purple og skemmti mér hið besta. Merkilegt hvað gamalt fólk getur verð ernt.Aldurssamsetning tónleikagesta var heldur ekki eins og maður á að venjast á svona samkomum. Þarna voru tónleikagestir frá 12 ára og upp úr og það var örugglega sætaferð frá Grund. Þarna var sem sagt kynslóðabilið brúað sem aldrei fyrr. Gamalt fólk er cool!


tilvonandi forsetaframbjóðandi
|

laugardagur, júní 19, 2004

Nú getur enginn sakað mig lengur um að vera með fordóma út í úthverfalífið byggða á vanþekkingu. Ég fór nefnilega um daginn og kynnti mér hvernig lífið gengur fyrir sig í dæmigerðu úthverfi, þ.e Hafnarfirði. Ég fór þar í fylgd Húsfrúarinnar sem var sjálfsagt að virða fyrir sér æskustöðvarnar áður en hún kveður land og þjóð og heldur á vit sundlaugarbakkans í Ameríku. Anyway, þá var ég þarna á típísku miðvikudagskvöldi og greinilega eitthvað glens og gaman í gangi hjá íbúunum. Allir klæddir í Hafnfirska þjóðbúninga sem voru einhverskonar sambland af Fjalla-Eyvindi og Manowar, mjög skemmtilegt allt saman. Samt skrítið hvað margir töluðu útlensku en þetta er sjálfsagt einhver siður í Hafnarfirði, að tala dönsku á miðvikudögum. En þegar minnst varði þá brutust út slagsmál sem er bara góður og gegn siður á mannamótum, það var ekkert alvöru sveitaball hér áður fyrr án þess að ekki væru almennileg slagsmál nema hvað þar slógust menn bara með hnefunum og tómum brennivínsflöskum en gengu ekki um með alvæpni eins og virðist vera algengt í Hafnarfirði. Þessi úthverfaferð endaði svo á kaffihúsinu í bænum þar sem innfæddir voru reyndar ekki fjölmennir enda sjálfsagt einhver sápuópera í sjónvarpinu.

Aldrei þessu vant var ekki rok og rigning á 17. júní. Í tilefni af því ákvað ég að skunda í bæinn og taka virkan þátt í hátíðarhöldunum sem ég hef ekki gert í mörg ár. Búin að finna íslenska fánann sem ég á niðri í geymslu, komin í mitt fínasta púss og tilbúin að eiga glaðan dag á afmæli lýðveldisins. Ég rölti þarna niður Laugaveginn með bros á vör, raulandi þjóðsönginn og sé í fjarlægð að mannfjöldi er framundan. Ég geng lengra og fer að veita því eftirtekt að þetta er allt fólk með barnavagna. Sama hvert maður lítur allsstaðar eru barnavagnar og kerrur. Þetta fer að flæða út úr öllum skúmaskotum og öllum húsasundum og ryðst áfram beint af augum eins og ekkert geti staðið í vegi þess. Með hverjum barnavagni fylgja svo einn eða fleiri fullorðnir og allir með fleiri börn í eftirdragi. Börnin öll öskrandi eða grenjandi, troðandi í sig sælgæti. Þeir fullorðnu fúlir og pirraðir og vildu greinilega mun frekar vera í stofusófanum fyrir framan sjónvarpið. Á undan þessum grátkór eru svo ærandi lúðrablásarar sem verða auðvitað að blása eins og þeir geta til að yfirgnæfa barnavagnafólkið. Öll þessi hersing þrammar svo blásandi og organdi áleiðis niður í Lækjargötu þar sem væntanlega eiga að vera einhver skemmtiatriði til að gleðja fólk en gera sjálfsagt lítið annað en að gera börnin ennþá vitlausari og foreldrana ennþá pirraðri. Þegar hér var komið sögu sá ég mitt óvænna og í stað þess að eiga það á hættu að vera tröðkuð niður af barnavagnamúgnum sem ruddist þarna áfram eins og buffalahjörð þá forðaði ég mér inn á reykmettað öldurhús og róaði taugarnar með nokkrum ölkollukm og forðaði mér síðan heim þegar um hægðist. Um leið ryfjaðist upp fyrir mér af hverju ég hef ekki tekið þátt í 17. júní hátíðarhöldunum í mörg ár


innfæddir Hafnfirðingar
|

sunnudagur, júní 13, 2004

Eins og ekki hefur farið fram hjá fólki þá efndi vinafélag miðbæjarins til mjög svo vel heppnaðrar skoðunarferðar um miðbæjinn um síðustu helgi. Mætingin hefði samt mátt vera betri. Alltaf sama sagan með þetta fjölskyldufólk, ef hlutirnir eru ekki skipulagðir 6 vikur fram í tímann þá fer allt í handaskol (og í tilviki móður jarðar sem les tölvupóstinn sinn einungis 3. föstudag í hverjum mánuði og þá bara að hún hafi skipulagt það 2 vikum áður) og helst þarf að tilkynna svona uppákomur bréfleiðis og birta í Lögbirtingarblaðinu. En þeir sem sáu sér fært að mæta áttu þarna ákaflega ánægjulega dagstund þar sem margt merkilegt var skoðað enda margt merkilegt að sjá hér downtown Reykjavík
Reyndar hef ég verið tölvusambandslaus núna í nokkra daga. Allt í einu um daginn hætti netið bara að virka en eftir nánari skoðun á hvað það væri sem orsakaði þetta vandamál (sem fól í sér að skríða hérna undir borð og greiða úr endalausri snúruflækju) þá komst ég að því að það gengur skemmdarvargur hér laus. Ein snúran hafði verið limskulega klipin í sundur á 2 stöðum en þó samt ekki það mikið að hægt væri að sjá það við fyrstu sýn. Það liggur ákveðinn aðili undir grun, er hann svartur og loðinn og með stór eyru og verður héðan í frá undir ströngu eftirliti.
Já og svo er ég auðvitað að fylgjast með Evrópumótinu í fótbolta. Þó maður sé nú ekki mikið að spá í sparkinu svona dags daglega þá er alveg nauðsynlegt að fylgjast með svona stórmótum. Ég bíð spennt eftir að sjá Ítalska liðið enda margt huggulegra og vel greiddra og skekksnyrtra sveina þar að sjá. Það er nefnilega alls ekki nóg að menn séu góðir að hitta tuðruna, þeir verða líka að taka sig vel út í búningnum og það gera Ítalarnir svo sannarlega og til að auka enn á áhorfsgildið þá eru þeir í aðsniðnum treyjum svo sixpakkinn sést vel og greinilega. Önnur landslið mættu taka sér þessa búningatísku til fyrirmyndar. Það eru þó því miður ekki öll liðin sem eru eins heppin í útliti. Ég ver t.d að horfa á England - Frakkland í dag og ósköp eru þessir Englendingar eitthvað mikið samansafn af hallærisgæjum. Allt einhverjir durtar eða rauðhærðir og frekknóttir lúðar sem líta allir út annað hvort eins og Andrés þarna kraftlyftingakall eða Denni dæmalausi. Það segir sig sjálft að ekki er úrvalið upp á marga fiska ef þessi Beckham kerling er það skásta sem þetta lið hefur upp á að bjóða svona útlitslega séð. Þá var nú einhvernvegin meiri stíll yfir Frökkunum þó Zidane ætti bara að sætta sig við að vera að verða sköllóttur og raka burtu þennan kraga sem hann er ennþá að lufsast með aftan á höfðinu. Þegar íslenska landsliðið áttar sig á því að útlitið skiptir líka máli, bæði það að áhuginn á sportinu hjá helmimgi þjóðarinnar eykst til muna og svo er það bara gott fyrir sjálfstraustið og hver þarf ekki á því að halda í harðri keppni, þá fyrst fer það að eiga einhvern séns í þessa stæstu.

Hér er lookið á hreinu enda eru þessir menn fullir sjálfstrausts








|

laugardagur, júní 05, 2004

Loksins að eitthvað gerist hér í þessu þjóðfélagi! Og loksins að það er forseti hérna sem er ekki alger gunga og er bara sáttur við að mæta í kokteilboðin og taka á móti sendiherra Úsbekistan eða eitthvað álíka. Ég gruna þó Kokkálaða kokkinn um að standa fyrir utan Bessastaði með krullótta hárkollu, hrópandi ókvæðisorð, steytandi hnefann, brennandi mynd af Jóni Ásgeiri og snýtandi sér í DV. En ætli Davíð sjái ekki bara til þess að forsetaembættið verði lagt niður. Einfalt mál að breyta bara stjórnarskránni. Hann á auðvitað Sjálfstæðisflokkinn og þar gelta bara hvuttarnir þegar húsbóndinn sigar þeim og Halldór langar of mikið til að verða forsætisráðherra til að hann setji sig upp á móti því og þingflokkur Framsóknarflokksins jarmar saman í einum kór þegar hann sér grilla í ráðherrajötuna (nema Kristinn H. sem er örugglega úlfur í sauðargæru). Nema auðvitað að það verði bara sett ný skilirði fyrir því að fá að bjóða sig fram til forseta. Eins og að enginn geti boðið sig fram nema heita Davíð, vera með krullur og allt of stór eyru og það fái enginn að kjósa nema vera skráður í Sjálfstæðisflokkinn. Hitt pakkið veit ekkert hvað það vill og hvað því er fyrir bestu. Allir sem heita Jón Ásgeir verða gerðir útlægir og orðið Baugur verður fjarlægt úr íslensku máli. Stofnsett verður sérstök Sítt-að-aftan lögregla sem fer óeinkennisklædd um meðal fólks með skærin á lofti og klippir alla sem hafa sítt að aftan eða eru að gera sig líklega til að fá sér þannig greiðslu. Haraldur Jóhannessen verður sjálfur yfirmaður þeirrar lögreglusveitar og fær að launum 2 axlaskúfa og 4 gullrendur á júníformið sitt. Lifi þingræðið! Húrra, húrra, húrra!!
Ég var að komast að því áðan við lestur Fréttablaðsins, afsakið Baugstíðinda sem bráðlega verða lögð niður með sérstakri klausu í stjórnarskránni, að það er sjómannadagurinn á morgun. Og ekki nóg með það heldur á líka að vera hið ágætasta veður. Ég legg því hér með til að úthverfafólkið safni kjarki í að standa upp úr sófanum, slökkva á sjónvarpinu, skila þessum 38 videóspólum sem átti að horfa á um helgina og hætti sér niður í miðbæ Reykjavíkur. Þeir sem þurfa einhverja aðstoð við að rata geta falast eftir henni. Þar er t.d fullt af huggulegum kaffihúsum sem hægt er að tilla sér inn á, það er hægt að fara í pikknik á Austurvelli(sem brátt mun heita Davíðssquare þegar búið verður að henda styttunni af þessum Jóni sem er þar og setja styttu af landsföðurnum sjálfum í staðinn, enda mjög svo óæskilegt að hafa styttu af einhverjum sem heitir því nafni), skella sér í göngutúr niður á höfn og út í Slipp eða gefa öndunum brauð (má samt ekki vera Bónusbrauð, þær gætu farið að fá ranghugmyndir). Og ekki örvænta ágæta úthverfafólk að þið verðið þarna eins og gyðingur í grísaveislu, á svona dögum eg líklegast að annað úthverfafólk hætti sér líka út úr hverfinu sínu og mingli við miðbæjarrotturnar. Það er öruggara svona saman í hópum. Nú er bara að taka af skarið. Viljinn er allt sem þarf eins og Davíð sagði áður en hann lagði niður stjórnarskrána.



Landsfaðirinn sjálfur. Sómi vorrar þjóðar, sverð hennar og skjöldur. Hann lengi lifi!


|

þriðjudagur, júní 01, 2004

skemmtiefni fyrir húsfrúna í ameríku







|
Hvernig er þetta eiginlega með þetta úthvarfafólk sem maður þekkir? Hefur það ekkert skárra við tímann að gera en að liggja með tærnar upp í loft og horfa á sápuóperur í sjónvarpinu? Hér var ég í gær (eins og við miðbæjarfólkið venjulega) komin á fætur við fyrsta hanagal og komin út í garðtil að anda að mér ferskum blómailminum.
Komin niður í bæ fyrir hádegi að teiga að mér menninguna sem flæðir út úr hverju skúmaskoti og virða fyrir mér fjölbreytileika mannlífsins sem allsstaðar blasir við augum. Þar sem ég sit á hinu mjög svo menningarlega kaffihúsi, Súfistanum að glugga í heimsbókmenntirnar yfir kaffinu og ostakökunni (t.d The encyclopedia of beer, The big book of chocolate og The mammoth book of sex, drugs and rock´n´roll) þá dettur mér í hug að senda nokkrum úthverfavinum mínum skilaboð um að koma og skoða hvað miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða. 3 tímum og 8 kaffibollum seinna koma svörin og eru þá á þá leið að viðkomandi sé nú bara að skreiðast á fætur, væntanlega enn á sloppnum og í flókainniskónum með úfið hár, með rassæri og rangeygð af sjónvarpsglápi helgarinnar. 18 bíómyndir og 10 þættir af sápuóperum taka virkilega á. Hvar er menningaráhuginn? Hvað varð um kaffihúsarölt, myndlistarsýningar, tónleika, ljóðaupplestur, endurnar á Tjörninni, leiksýningar, flóamarkaði, fyllirí á Grand Rokk, ís á sunnudögum, túrista í gulum anorökkum, Sniglana að sýna sig á Ingólfstorgi, rónana á Arnarhóli og vitleysingasamkomuna í Stjórnarráðinu? Er málið að úthvarfafólkið er orðið að verslunarmiðstöðvasombíum? Það labbar allt út úr skipulögðu úthverfaíbúðunum sínum, upp í fjölskyldubílana sína og keyrir sviplaust og með stjarft augnaráð í Smáralindina, verslar allt í Bónus, treður í sig færibandarottuborgurum, keyrir aftur heim í úthvarfið sitt og sest fyrir framan sjónvarpið. Á sunnudögum er farið á kynningar hjá einhverju bílaumboði þar sem allir fá pizzu, kók og bol (þeir djörfu fara í Húsdýragarðinn) og svo fara allir saddir og ropandi heim til sín, öll fjölskyldan í nýjum Toyota Landcruser bol og sest fyrir framan sjónvarpið. Homer Simpson come back, all is forgiven!



Dæmigert kvöld í úthverfinu
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?