<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

þriðjudagur, júlí 27, 2004

Hvernig er þetta eiginlega með þessa Sollu á Grænum Kosti? Hvenær ætlar manneskjan að hætta að reyna að troða ofan í okkur einhverju grænmetisjukki? Ég kveikti í sakleysi mínu á sjónvarpinu um daginn og var hún ekki mætt þar með bílhlass af einhverju gumsi sem í besta falli leit út eins og ruslið frá því í fyrradag. Baunakássudót eitthvað sem búið var að mauka saman með njóla, hráum kartöflum, lífrænt ræktuðum túnfíflum og trjáberki. Jú jú örugglega voða fínt ef við værum svín sem éta hvað sem að þeim er rétt. Og þessi jurtaseyði hennar eru svo alveg sér kapítuli út af fyrir sig. Einstaklega lystugt að sjóða sveppi í sólarhring og drekka soðið. Namm!
Ég hef nú nokkrum sinnum borðað á Grænum Kosti svona til að gefa þessu séns en eftir að hafa smakkað 10 tegundir af grænmetisbuffi og mauksoðið zucchini með baunum og allt var það eins á bragðið þá gafst ég hreinlega upp. Ég hefði alveg eins getað verið að borða soðna pappakassa. Mann var eiginlega farið að dreyma um að troða í sig sveittum rottuborgara með miklu af frönskum og kokteilsósu til að hressa upp á kólestrólið. Nei, við íslendingar höfum verið alin upp á að éta tólg og feitt ket mann fram af manni og í margar aldir hélt sauðkindin í okkur lífinu þar sem beisiklí allt af henni var étið nema ullin. Og við höfum skrimt fram til dagsins í dag thank you very much og reyndar haft það alveg fjári gott seinustu áratugina þó við höfum drukkið mjólk, borðað kjöt eins og við höfum getað í okkur látið, borðað blóðmör og lifrarpylsu með bestu lyst og skolað öllu niður með brennivíni. Við erum rándýr for crying out loud og hönnuð til að tyggja og melta kjöt. Við þurfum ekki annað en að skoða í okkur tennurnar. En nei nei, kemur þarna ekki einhver Solla og treður upp í andlitið á okkur sveppaseyði sem lyktar eins og æla á þriðja degi á Þjóðhátíð og baunabuffi og ætlast til að við lifum bara á því. Og ekki gleyma tofu. Ég vil ekki einu sinni vita úr hverju sá viðbjóður er búinn til. Þetta er eins og gamlar ábristir og bragðast eins og blautur svampur
Ef það er holdafarið sem fólk er að spá í með að leggja á sig að gerast grænmetisætur þá held ég það sé ekki rétta leiðin. Hætta bara að éta sykur og drekka kók og hreyfa sig. Haldiði að langafar okkar og langömmur hafi eitthvað verið að spá í fytusýrum og blóðsykri? Þau vissu ekki einu sinni hvað það var og borðuðu bara það sem var á borðum hvort sem það var magáll eða kæst skata. Og voru þau að springa úr spiki? Nei! Þau nefnilega hreyfðu á sér rassgatið. Foreldrar eru búnir að koma börnum upp á það að keyra þau hvert sem þau þurfa að fara (enda nennir þetta sama fólk ekki að fara á milli húsa nema í bíl) þess á milli sem þau hanga í tölvuleikjum og troða í sig snakki og súkkulaði svo það lekur út um eyrun á þeim. Látiði krakkaormana labba í skólann og vera úti að leika sér, fjandinn hafi það. Er þetta eitthvað flókið?
|

fimmtudagur, júlí 22, 2004

Davíð Oddsson, okkar ástkæri og dáði landsfaðir hefur verið lagður á spítala þar sem fjölmiðlafrumvarpið var fjarlægt úr honum með skurðaðgerð. Það var honum mikið áfall að þurfa að skilja sig frá þessu sköpunarverki sínu sem hann hafði bitið svo fast í sig að það var orðinn hluti af honum sjálfum svo ekki sé nú minnst á hneisuna sem það var að þurfa að bakka með eitthvað sem hann var búinn að ákveða. Slíkt hefur ekki gerst síðan hann eignaðist Sjálfstæðisflokkinn.
Við komuna á spítalann var honum tjáð að þar sem allar deildir eru lokaðar í sumar vegna sparnaðar þá yrði að framkvæma aðgerðina í eldhúsinu og þar sem allir skurðlæknarnir á spítalanum eru líka með einkastofur úti í bæ sem þeir þurfa að sinna og hafa ekki tíma í svona stúss þá ætlaði kínverski kokkurinn Sjúa Sjúa Peng að framkvæma að gerðina eftir að hann hefði eldað kvöldmatinn. Aðgerðin gekk vel þó svo herra Peng þyrfti að njóta aðstoðar tælenskra gangastúlkna þar sem báðir hjúkrunarfræðingarnir sem ekki sögðu upp í síðustu kjaradeilu voru í sumarfríi. Forsætisráðherra heilsast þó vel þar sem Hannes Hólmsteinn hefur ekki vikið frá sjúkrabeði hans og les fyrir hann gamlar lofgreinar úr Morgunblaðinu til að stytta honum biðina eftir rúmi (sem losnar vonandi fljótlega þegar einhver langlegusjúklingurinn deyr) þar sem hann liggur í svefnpoka í handklæðaherberginu.  
Aðspurður sagðist Halldór Ásgrímsson vera mjög sáttur, vissi ekki alveg við hvað en sáttur engu að síður og tók þingflokkur Framsóknarflokksins undir með honum í einum kór. Einhverrar óánægju gætir þó meðal annara sjúklinga spítalans þar sem handklæðaherbergið hefur verið stúkað af með glervegg og þangað fær enginn að koma nema geta sagt leyniorðið (sem flugumaður á vegum Grumputíðinda hefur ljóstrað upp að sé "heill þér ástsæli landsfaðir, sómi Íslands, sverð þess og skjöldur. Húrra, húrra, húrra") og hafa aðstandendur þurft að koma með hrein handklæði að heiman. Aðspurður um þann orðróm kvaðst Halldór Ásgrímsson vera mjög sáttur.
Forsætisráðherra hafa borist góðar kveðjur víða að og meðal annars frá Georga Bush. Var kveðjan á þessa leið: "Hopp yuo get vell soonn and keep onn frigtin the terrirists. Sincrl.. sinser.. sincrle.. aaa, whatever.. The Prisident."  Skeytið var sent í miklum flýti þar sem Bush var að verða of seinn í golf og hafði ekki tíma til að láta aðstoðarmenn sína lesa það yfir og því slæddust nokkrar smávægilegar villur með. En það er jú hugurinn sem skiptir máli. Halldór Ásgrímsson taldi fullkomna sátt ríkja  um  innihald skeytisins.
Ég vona auðvitað af heilum hug að forsætisráðherra nái sér að fullu því hver á annars að stjórna Íslandi? Halldór Ásgrímsson kanski?
|

þriðjudagur, júlí 20, 2004

Þá er afmælisveislan mikla afstaðin og er ekki hægt að segja annað en allt hafi farið sómasamlega fram. Mér til óblandinnar gleði og ánægju sáu allir sér fært að mæta og gleðjast með mér á þessum merku tímamótum. Maður verður nú ekki 29 nema þrisvar á æfinni. Ég vil einnig þakka öllum þær góðu gjafir sem mér voru færðar sem voru jafn fjölbreytilegar og þær voru margar. Allt frá áfengi og uppflettiritum um áfengi sem verða auðvitað að vera til á öllum menningarheimilum til pottaleppa og ættjarðarljóða. Ég vona bara að allir hafi skemmt sér jafn vel og ég þó svo sá ótrúlegi atburður hafi gerst að ÞAÐ FÓR ENGINN Á TRÚNÓ!!! Hin nýkrýnda trúnódrottning úr Vogunum stóð enganvegin undir nafni þetta kvöldið og hvað er Húsfrúin að gaufa í ameríku þegar hennar er mest þörf? Ástæðan gæti líka verið sú að þar sem samkvæmið var ekki haldið á Barónstöðum þá var lítið um að fólk væri að innbyrða görótta kokteila jafnvel þó Kokksi hefði verið komin í góðan fíling fyrir einni eða tveim grænum heilasleggjum (sumir læra ekki af reynslunni!)

Reykjavík er alltaf að verða meir og meir líkari menningarborgum í Evrópu að sumu leiti. Þar sem ég er búin að vera í fríi núna í nokkra daga þá hef ég getað notið góða veðursins og hef verið og spókað mig í miðbænum. það er nú orðið þannig að hvert kaffihúsið eftir annað er farið að bjóða gestum sínum upp á það að sitja utandyra með kaffibollann eða bjórglasið þegar veður er til þess og hefur fólk tekið þessu opnum örmum þannig að á góðviðrisdögum sér maður fólk sitjandi út á stétt út um allar trissur. Þetta er hið besta mál og vel þekkt hjá þeim sem hafa skroppið á suðlægari slóðir. Það eina sem vantar eru götulistamenn til að skemmta gestum og gangandi og um leið að plokka af þeim peninga sem þeir þurfa ekki á að halda enda er jú hér ríkjandi gengdarlaust góðæri eins og allir ættu að vita. Það mætti jafnvel nýta krafta ríkisstyrktra listamanna til að skemmta kaffihúsagestum á góðviðrisdögum. Þetta lið er jú hvort eð er á fullu kaupi og er því ekki til of mikils mælst að það vinni fyrir laununum sínum. Það væru t.d hægt að skipta sinfóníjuhljómsveitinnu upp í nokkurra manna götuspilaflokka sem færu um og spiluðu Bubba lög eða létta Geirmundarsveiflu fyrir utan kaffihúsin. Svo væri hægt að láta leikara Þjóðleikhússins fara með stutt revíubrot og önnur gamanmál og dansarar úr Íslenska dansflokknum gætu sýnt rúmbu, Cha cha cha eða Vikivaki fyrir túristana.
Svo legg ég til að Alþingi verði lagt niður og þessu fallega húsi breytt í veitingastað, það er til nóg af embættismönnum sem geta stjórnað landinu og væri það lítil breyting frá því sem nú er þar sem embættismenn stjórna öllu því sem Davíð Oddsson kemst ekki yfir að stjórna sjálfur. Alþingismennirnir gætu unnið fyrir sér sem látbragðsleikarar eða annars konar skemmtikraftar enda í góðri æfingu og sumir m.a.s þekktir þorrablótstrúðar eins og Guðni Ágústson. Og Davíð þyrfti ekki einu sinni að setja upp gerfi, það eina sem hann þyrfti að gara væri að fara í röndóttan jakka en að öðru leiti lítur hann út nákvæmlega eins og Kinko the Clown.
Það er þó samt ennþá einn amerískur ósiður sem Íslendingar ætla aldrei að geta vanið sig af en það er að halda að bíllinn sé fastur við rassinn á þeim. Þetta á sérstaklega við um úthverfafólkið sem getur ekki sætt sig við að það er ekki hægt að leggja bílnum í anddyrinu á þeim búðum sem það ætlar að fara í og að það þurfi jafnvel að labba yfir 100 metra til að komast þangað sem það ætlar að fara. Það veit heldur ekki til hvers bílastæðahús eru. Heldur sjálfsagt að það séu æfingabúðir fyrir stöðumælaverði sem það er með á hreinu að helgi líf sitt því að leggja það persónulega í einelti. Þó að það leggi kannski einu sinni eða tvisvar uppi á gangstétt, big deal? Og hvað er líka þetta gangandi lið að þvælast fyrir og m.a.s fólk sem er blint eða í hjólastólum. Það á auðvitað bara að vera heima hjá sér. Og að taka strætó! Jedúddamía!!! Það er aldrei að vita hvar maður gæti endað. Jafnvel bara uppi í Þingholtum eða eitthvað og hvernig á maður að geta ratað heim? Svo gæti nágranninn séð mann og haldið að maður hafi misst bílprófið eða hafi ekki efni á að eiga bíl og hvað gerist ef það spyrst út í hverfinu. Guð minn almáttugur!!! Það er líklega bara öruggast að fara í Smáralindina.

Tónleikasumarið mikla virðist engan enda ætla að taka. Nú er Lou Reed á ferð eftir nokkrar vikur, Van Morrison eftir það og svo sjálfur James Brown. Þó þessir ágætu menn séu allir komnir á eftirlaunaaldur og vel það þá er aldrei að vita nema það lifi enn í gömlum glæðum samanber Deep Purple. Fyrst að menn eru nú byrjaðir á að draga fram gamlar hetjur vil ég leggja til að einhver framtaksamur maður taki sig nú til og fái NITRO til að skemmta landsmönnum. Hvað sem hægt er að segja um NITRO þá er ekki hægt að halda því fram að þeir hafi ekki mikið skemmtanagildi. NITRO, NITRO, NITRO, NITRO.......






|

þriðjudagur, júlí 13, 2004

Þá er ég loksins orðin löglega miðaldra!! Að þetta skuli vera að skella á hefur haft svo mikil áhrif á sálarlífið að ég hef ekki verið mönnum sinnandi í marga daga og ekki getað litið á dagatal án þess að fyllast örvæntingu. Undir það síðasta var ég reyndar hætt að geta litið á klukkuna. Ég hef því ákveðið að frá og með deginum í dag (það er ennþá 12. þegar þessi orð eru rituð) ætla ég að sætta mig við þessi grimmu örlög og ekki reyna að vera neitt annað en miðaldra. Hér eftir hlusta ég bara á Bjögga og Geirmund, hef keypt mér áskrift af Húsfreyjunni og Prjónablaðinu Ýr, hef fengið mér ullardrakt og slæðu, ég fylgist spennt með Brúðkaupsþættinum Já, ég ætla að fara að mæta á Tupperver kynningar og þegar ég bregð undir mig betri fætinum þá er stefnan tekin á Mímisbar. Það er bara eitt sem vantar í þetta fullkomna líf en það er kall og krakkar. En það hlýtur að vera hægt að finna einhvern miðaldra, fráskilinn með ekki allt of stóra ístru og ekki allt of mikinn skalla, sem á jeppa og einn eða tvo óþolandi unglinga. Þá er hin fullkomna vísitölufjölskylda komin og þá er ekkert annað eftir en að flytja í eitthvað ömurlegt úthverfi og slökkva á heilanum. NOT!!!

Nei takk. Ég hef fyrir margt löngu áttað mig á því að vísitölufjölskyldulífið er ekki alveg minn tebolli. Hvað er spennandi við að eiga kall sem verður feitari og sköllóttari með hverju árinu, er farinn að fá hár í nefið og inn í eyrun, hrýtur og rekur við, finnur aldrei sokkana sína sjálfur, er með jeppadellu og getur hangið dögum saman úti í á að reyna að veiða fisk sem er ekki þar, á vini sem eru annað hvort bókarar eða endurskoðendur og skemmtilegir eftir því og kýs Sjálfstæðisflokkinn. Og þá eru það börnin. Það getur vel verið að einhverjum finnist það sætt og krúttaralegt að eiga börn og jafnvel að einhverjir eignist börn bara af því að allir aðrir eigi svoleiðis (það er fólkið sem á líka fótanuddtæki, bumbubana og SodaStream tæki). Jú jú þau geta svo sem verið voða krúttleg meðan þau eru lítil og eru ekki grenjandi, slefandi og með hor út á kinn og kúkinn í bleijunum eins og þau eru örugglega most of the time. Og ekki skánar það þegar þau eldast. Fyrst er það rífa og tæta aldurinn, svo læra þau að tala og geta oftast ekki stoppað næstu árin og ekki skánar ástandið þegar þau verða unglingar eins fúlir, leiðinlegir, uppstökkir og dónalegir sem þeir geta verið. Svo þarf að gefa þessu að éta og kaupa á þetta föt fram eftir öllum aldri því ekki nennir þetta lið að sjá um sig sjálft og loksins þegar þau flytja svo að heiman um þrítugt þá taka þau upp á því að fara að hrúga niður börnum og fólk situr uppi með barnabörn og barnabarnabörn þar til það drepst.

Svo ég vaði nú úr einu í annað (enda orðið ansi langt síðan ég tjáði mig um landsins gagn og nauðsynjar hér) þá verð ég að viðurkenna að reykingar eru eitt það bjánalegasta sem mannskepnunni hefur dottið í hug að finna upp á. Að safna fermingardagaservíettum eða borða úldinn mat einu sinni á ári og telja sjálfum sér trú um að það sé alveg herramanns matur er líka bjánalegt en það truflar engann. Það er ekki hægt að segja það sama um reykingar. Ekki nóg með að þetta sé fáránlegur ósiður heldur er þetta helvítis sóðaskapur. Hverjum datt eiginlega í hug að vefja illgresi og tjöru inn í klórbleiktan pappír, kveikja í öllu saman og anda að sér reyknum? Hversu vitlaus er hægt að vera? Ég er ekkert að pirra mig út í reykingar af umhyggju fyrir heilsu reykingafólks. Mér gæti ekki verið meira sama þó fólk vilji borga stórfé fyrir gular tennur og putta, gráa húð og líflaust hár. Að geta ekki labbað upp 5 tröppur án þess að þurfa að hvíla sig á leiðinni og drepast fyrir aldur fram úr kransæðastíflu eða lungnakrabbameini eftir að hafa verið í öndunarvél í 10 ár fyrir utan það að lykta eins og ruslatunna sem hefur ekki verið tæmd í tvær vikur. Nei, hafið það eins og þið viljið en bara ekki púa þessum óþverra framan í okkur hin. Mér var hreinlega ekki skemmt að fara inn á öldurhús um daginn og þurfa reykkafaragræjur til að finna leiðina að barnum.
Það þarf að hugsa alveg upp á nýtt hvernig fólk neytir tóbaks. Þetta að kveikja í því er barn síns tíma eins og maðurinn sagði. Ég er með þá tillögu að það verði búnar til tuggutöflur eða duft sem leyst er upp í vatni. Þá geta nikótínfíklar bara étið eða drukkið skammtinn sinn án þess að vera öðrum til ama og óþæginda og sóðaskapurinn hverfur alvag. Engir sígarettustubbar út um allt og illa lyktandi öskubakkar munu heyra sögunni til og allir munu lifa saman í sátt og samlyndi andandi að sér blómum og reykelsum. Þorgrímur Þráinsson come back, all is forgiven!!

Þessir menn eru báðir mun eldri en ég en líta alveg þokkalega út svo það er engin ástæða til að örvænta strax



|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?