<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

föstudagur, október 29, 2004

Lýst er eftir Móður Jörð. Síðast fréttist af henni að baka marenstertu með 3 börn hangandi í pilsfaldinum og heilan saumaklúbb á leið í kaffi.Hefur hún ekki sést á blogginu síðan hún neitaði því þar staðfastlega að vera í bókunum Íslenskar kvenfélagskonur eða Kirkjukóratal. Ef einhverjir hafa orðið hennar varir eru þeir beðnir að benda henni á að "there is a world out there"
|

sunnudagur, október 24, 2004

I´m Back!!!!! Jæja, ég ákvað þá að koma heim aftur eftir allt saman þó svo að það hafi runnið á mig tvær grímur á tímabili þar sem ég sat í sól og 30 stiga hita með bjórglas í hendi og heyrði einhverja vera að tala um að á Skerinu væri kafaldsbilur og ofsaveður og að Vestmannaeyjar hafi fokið á haf út í heilu lagi. Ekki það að ég saknaði þeirra eitthvað.
Anyway, þá var Tyrkland í stuttu máli alveg frábært. Reyndar keypti ég hvorki teppi né horfði á magadans en ég keypti hins vegar vatnspípu og tesett, hlutir sem verða að vera til á hverju heimili.Ég fór líka í nokkrar skoðunarferðir út í sveit aðallega til að skoða gamlar Rómverskar rústir og hella sem fólk hafði höggvið marga kílómetra inn í fjöll. Á þeim ferðum var keyrt í gegn um mörg lítil þorp sem gaman var að sjá. Þar voru helstu farartækin traktorar með kerru aftaní. Kallinn keyrði traktorinn en í kerrunni voru svo kerlingarnar og geiturnar. Kerlingarnar voru svo skildar eftir á akrinum að tína bómull meðan karlarnir sátu á kaffihúsunum og drukku te. Ekki kannski jafnrétti kynjanna í hnotskurn og ímynda ég mér að Húsfrúin í Svergie hafi snarað sér út úr bílnum og haldið þrumandi fyrirlestur um það málefni og svo lamið karlræflanna með handtösku eða þá regnhlíf.
Þar sem þetta var pakkaferð með leiguflugi þá var þarna fólk á öllum aldri allt frá tvítugu og upp úr. Ég lenti á útleiðinni í sæti við hliðina á gömlum hjónum sem var svo sem allt í lagi þar til sú gamla fór að tala við mig um lyfin sín, þá ákvað ég að þykjast vera sofandi það sem eftir var ferðarinnar. Reyndar var hún svo gömul og hrum að ég bjóst við að hún myndi hrökkva upp af á miðri leið en kerlingarskarið var enn tórandi þegar haldið var heim. En þið fáið að heyra alla ferðasöguna og sjá allar 130 myndirnar við fyrsta tækifæri. Hvað meiniði að þið séuð upptekin til 2006?
Eins og fram hefur komið þá stendur til að halda hið árlega Lúsíukvöld og hefur laugardagurinn 27. nóvember verið nefndur sem ágætur dagur til þess arna. Tensai San mun taka að sér að vera Lúsía og mun einnig troða upp með skemmtiatriði. Nýji barinn minn verður einnig formlega vígður og kokteilar hristir fram úr öllum ermum. Það þarf ekki að taka fram að það er mætingaskylda. Húsmæðrum suður með sjó er bent á það að vera búnar að taka slátur, svíða hausa, súrsa hrútspunga, búa til rabarbarasultu, sortera kartöflur, prjóna vettlinga, sauma sauðskinnsskó, bræða tólg, bródera sængurver eða ganga frá amboðum. Og ef þær halda að börnin eigi ekki eftir að bíða þess bætur að þær bregði sér af bæ eina kvöldstund og eigi eftir að enda sem handrukkarar, stöðumælaverðir eða bílasalar þá er það ekki rétt. Og til hvars haldið þið annars að karlmenn séu yfir höfuð á mörgum heimilum svona svipað og uppþvottavél eða þurrkari? Alls ekkert bráðnauðsynlegir en til ýmisa hluta nytsamlegir ef þeir eru rétt stilltir. Það má alveg nota þá í að dytta að ýmsu smálegu, sumir geta m.a.s vaskað upp og dýrustu módelin kunna að setja í þvottavél. Eins er hægt að kenna þeim að gefa börnum að borða og koma þeim í háttinn.

Týpísk Tyrknesk verkaskipting í sveitunum (áður en Húsfrúin í Svergie lætur til sín taka). Konurnar á akrinum en karlarnir á kaffihúsunum




|

sunnudagur, október 10, 2004

Þá er maður bara á leið í frí! Lagt af stað í fyrramálið við fyrsta hanagal. Ég hef verið að geyna að undirbúa mig fyrir óheyrilega langt og leiðinlegt flug, merkilegt eins og mér finnst gaman að ferðast hvað ég hata að fljúga. Þetta var allt í lagi hérna áður fyrr þegar maður var að fara í menningarreysur til Englands þá drakk maður sig bara fullan enda venjulega samferða hópi annara menningarvita sem líka höfðu ekkert skárra að gera en að drekka sig fulla. En svo færðist aldurinn yfir og maður hætti að drekka eins og einhver bjáni, loksins þegar maður þarf á því að halda. En svone eftir á að hyggja hvað er þá sorglegra en miðaldra kelling slafrandi full að röfla við fólk. Nei, maður lætur sig bara hafa það að hálfpartinn drepast úr leiðindum. Ég get ekki lesið því ég fæ bara hausverk og ég get heldur ekki sofið þó það sé oftast best að alla vega þykjast vera sofandi því oftar en ekki lendir maður við hliðina á fólki sem finnst alveg jafn leiðinlegt að fljúga eða þá að það telji það almenna kurteisi að ræða við sessunautinn. Ég er nú bara þannig að ég hef voða lítinn áhuga á að tjatta eitthvað við eldri konur um barnabörnin þeirra eða hvað það var nú gaman þegar saumaklúbburinn Skvetturnar skellti sér til Glasgow hérna um árið. Monopoly var að vísu búin að ráðleggja mér að fá mér svona svefnleppa fyrir augun til að geta sofnað og ætli ég bara reyni það ekki þó svo maður líti örugglega út alveg eins og fífl, vantar bara sloppinn og rúllur í hárið.
Þar sem ég er að fara til Tyrklands þá hefur Tensai San suðað stanslaust í mér að kaupa fyrir sig magadansmeyjabúning. Það er því nokkuð ljóst að Tensi San ætlar að vera með skemmtiatriði á næsta Lúsíukvöldi þannig að það kvöld verður eitthvað sem enginn má missa af. Ég hef líka fjárfest í forláta barskáp þar sem ég hef sett mér það takmark í lífinu að gerast kokteilfyllibitta á gamalsaldri og verður barinn formlega vígður við það tækifæri. Ég verð að prufusmakka hina ýmsu kokteila fram að þeim tíma því ekki þíðir að bera fram eitthvert glundur á því merka kvöldi. Ég mun hér með stinga upp á því að Lúsíukvöldið verði haldið fyrsta laugardag í desember eða síðasta laugardag í nóvember. Skipulagða fólkið getur þá farið að spá í því hvort hentar betur og látið mig svo vita því auðvitað vil ég að allir geti komið. Það verður nefnilega svoltið mikið af kokteilum.
En við heyrumst þá bara næst eftir 2 vikur. Ég er farin í sólina:)



Tensai San við leynilegar æfingar fyrir skemmtiatriði Lúsíukvölds
|

mánudagur, október 04, 2004

Haldiði ekki bara að ég hafi skellt mér út á lífið á laugardagskvöldið ásamt Monopoly til að afsanna það í eitt skipti fyrir öll að við séum orðnar boring old farts sem hafi ekkert skárra að gera á þannig kvöldum en að hekla pottaleppa og hlusta á kvöldsöguna áður en við förum að sofa um 10 leitið. Nei ó nei, það skal sko ekki spyrjast um okkur stuðboltana. Það var því haldið í bæinn og byrjað á því að fá sér að borða á Rossopomodoro þar sem var ekkert nema eitthavð hávaðapakk að hita sig upp fyrir kvöldið og syngjandi kerlingar á einu borðinu í þokkabót. Jæja, það er ekkert sem 2-3 bjórar geta ekki kippt í lag ef maður er þannig stemmdur. En þar sem þetta var frekar snemma kvölds þá töldum við ekki við hæfi að fara að drekka okkur fulla svo við röltum á Ölstofu Kormáks og Skjaldar til að mingla við allt fræga fólkið sem er víst fastagestir þar.
Eins og ég sagði var ekki orðið mjög áliðið þegar hér var komið sögu svo þar inni var ekki kjaftur en úr því rættist þó bráðlega og vorum við umkringdar selebretís á alla kanta áður en við gátum sagt Séð og heyrt. En þá fór heldur að síga á ógæfuhliðina í þessari bæjarferð því ákveðnir aðilar voru farnir að geyspa meira en góðu hófi gengdi enda væntanlega komið langt fram yfir háttatíma, klukkan orðin rúmlega 12. Líka bara best að forða sér því það eru ekkert nema dópistar, ofbeldisseggir og unglingar á ferli á þessum tíma sólarhrings og betra að vera ekkert á vegi þess óþjóðalýðs.

Það hefur verið ákveðið að halda hið árlega Lúsíukvöld í byrjun nóvember en þar sem yfir Lúsían er flutt af landi brott þá verður einhver að taka við því sæmdarheiti og því hefur Lúsíunefndin stungið upp á því að Tensai San taki það að sér. Þar sem Tensai San er sérstaklega virðuleg og djúpþenkjandi persóna þá mun hún eiga eftir að bera aðventukrans á höfðinu með miklum sóma auk þess sem nefndinni þótti æskilegt að halda þessu embætti innan fjölskyldunnar. Ég efast ekki um að Tensai San eigi eftir að koma með einhverjar heimspekilegar útlistanir á Lúsíuhefðinni út frá ný-samúræskum súrrealisma með tilvísan í fúturískt raunsæi. Hvort við hin eigum eftir að skilja það er ekkert sem 3-4 bjórar geta ekki reddað. Ef Tensai San hefur einhverjar athugasemdir við þetta fyrirkomulag þá eru þær ekki teknar til greina.

Ég hef nú ekki mikið verið að velta mér upp úr pólitík hér enda gerir það ekkert annað en að pirra mann en ég trúði ekki mínum eigin eyrum um daginn þegar ég heyrði að Jón Steinar hafði verið ráðinn sem hæstaréttardómari. Fyrst er það frændinn og nú besti vinurinn. Hvað verður næst? Hannes Hólmsteinn sem háskólarektor eða Gísli Marteinn sem útvarpsstjóri? En þjóð sem kýs þetta yfir sig ár eftir ár á þetta bara skilið!
Það eru kannski ekki eftir mörg embætti eða stöður sem Flokkurinn hefur ekki ennþá náð að planta sínum mönnum en hér er listi yfir það sem er örugglega næst
-Forsetaembættið í lagt niður og Davíð skipar sjálfan sig kóng og fer að ganga um í rauðri, afsakið blárri skikkju og með kórónu og veldissprota. Embættið gengur svo í erfðir
-Formaður framsóknarflokksins verður kosinn á landsfundi sjálfstæðisflokksins enda er það bara formsatriði. Allir þingmenn framsóknarflokksins verða svo skikkaðir til að ganga í peysufötum
-Borgarstjórn Reykjavíkur lögð niður og Davíð skipar frænda sinn sem hertogann af Reykjavík og tekur sá umsvifalaust upp nafnið Jörundur I.
-Kristninefnd Flokksins skipar nýjan biskup sem fyrir einskæra tilviljun er briddsfélagi Davíðs og hans fyrsta verk verður að bannfæra Jón Ásgeir og Jón Ólafsson
-Halldór Blöndal verður gerður að ríkissáttasemjara og mun taka upp nafnið Salómon
-Davíð ákveður að semja sjálfur nýjan texta við þjóðsönginn enda sá gamli óttalegur leirburður sem enginn skilur hvort eð er. Fyrsta erindið mun samkvæmt áreiðanlegum heimildum byrja einhvernvegin svona "ó Davíð vor konungur, ó konungur vor/vér dáum þitt krullaða, dúllaða hár/öll sólkerfi himnanna snúast um þig/þínir Flokksskarar falla á kné"
-Skipaður verður umboðsmaður stóreignamanna sem sífellt verða fyrir öfund og aðkasti öryrkja og annars Breiðholtspakkas án þess að geta borið hönd fyrir höfuð sér
-Björn Bjarnason sér loksins æskudrauminn rætast og er skipaður yfirhershöfðingi. Hans fyrsta verk verður að fyrirskipa að gæsagangur verði opinbert göngulag og einungis hermarsar verðir spilaðir í Ríkis... afsakið Flokksútvarpinu
-Að lokum verður svo Gísli Marteinn skipaður bæjarstjóri í Latabæ enda alltaf í stuði


Flokkurinn lengi lifi! Húrra, húrra, húrra!!!!
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?