Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
föstudagur, nóvember 26, 2004
Alltaf er nú jafn gaman þegar föstudagur er að kveldi kominn. Að vita það að maður getur sofið út í næstu 2 daga og ekki nóg með það heldur slórað í bænum og hangið á kaffihúsum báða dagana er toppurinn á tilverunni. Ef ég heyri einhvern segja að ég eigi ekkert líf þá er það ekki rétt! Kanski það sé bara vísbending um að manni leiðist í vinnunni. Eða í mínu tilviki að manni leiðist yfir höfuð að vinna. Annað sem bendir sterklega til vinnuleiða er að fá nýtt dagatal fyrir árið 2005 og byrja á því að athuga á hvaða dögum fríin lenda eða þá að vera farin að hlakka til þess að fara á eftirlaun þegar maður er rétt ný orðinn 29.
Líklega er það rétt hjá Monopoly að þessi forsætisráðherralufsa sem við sitjum uppi með sé bara svo hrútleiðinlegur að maður leggst bara í leti og volæði. Ég hef oft verið að velta því fyrir mér hverjir kjósa eiginlega Framsóknarflokkinn. Flokkur sem er með formann sem er álíka mikill karakter og spælt egg og varaformann sem er einhver þorrablótstrúður þegar best lætur. En fólk hefur jú misjafnar skoðanir og misjafnan smekk, sumum finnst jafn vel Gísli Marteinn skemmtilegur.
Ég hef ákveðið það að vera alveg sérdeilis skynsöm og skipulögð þessi jólin og vera búin að gera allt sem þarf að gera snemma í ár. Þ.e að vera búin að kaupa jólagjafirnar fyrir Þorláksmessu og vera ekki að senda jólakortin þann sama dag. Ég hef sem sé ákveðið að taka mér Móður Jörð til fyrirmyndar og vera búin að plana mánuð fram í tímann allt niður í hin minnstu smáatriði. Eins og að þriðjudaginn 7. des kl. 6 ætla ég að vera búin að kaupa jólapappírinn og laugardaginn 11. set ég Helmút í jólabaðið. Lífið verður örugglega allt miklu auðveldara.
Þar sem ég hef ekki hingað til verið mikið jólabarn þá var ég að spá í að venda mínu kvæði í kross og taka jólin með trukki og dífu og allt sem þeim tilheyrir. Það fyrsta er auðvitað að baka ekki færri en 8 sortir af smákökum, skella í rjómatertubotna og svo ekki sé nú minnst á marensteru sem er auðvitað ómissandi á hverju jólaborði. Síðan byrja ég að skreyta. Það verða óróar í öllum herbergjum og seríor í öllum gluggum og svo ofskreytt jólatré að ekki verður hægt að sjá hvernig það er á litinn. Á toppnum verður svo stjarna sem blikkar og skiptir litum á 3ja sekúndna fresti. Í garðinum ætla ég að hafa jólasvein á hreindýrasleða sem hriglar bjöllu og syngur Jingle bells allan sólarhringinn milli þess sem hann hrópar hó hó hó. Svo verð ég með svona Betlehemssenu með Jesúbarni og vitringum og öllum pakkanum nema hvað ég ætla að slá alla út og vera með 3 Jesúbörn, 6 vitringa, Maríu , Jósef og 2 barnapíur. Uppi á þaki verð ég svo með risastóra Betlehemstjörnu sem snýst í hringi og spilar jólalög í kappi við syngjandi jólasveininn í garðinum. Á sunnudögum fer ég svo í jólasveinabúning og dreyfi karamellum. Ég er strax farin að hlakka til!
|

fimmtudagur, nóvember 18, 2004
Það er kominn snjór og það er ógeðslega kalt! Hvað er ég að gera á þessu skeri á þessum árstíma? Af hverju get ég ekki bara verið á Ítalíu með rauðvínsglas og að borða tiramisu í öll mál? Þetta er hið fullkomna óréttlæti. Heimurinn er vondur! Ég þarf að vinna í því að ná myndum að Björgólfi eða Jóni Ásgeiri í óþægilegum aðstæðum með einhverri sílíkonbombu sem heitir Suzy eða Michelle (eða þá báðum) og hóta að senda það konunum þeirra og DV nema þeir borgi mér myndarlega upphæð á mánuði það sem eftir er.
Þar sem veðrið hefur verið eins og í Síberíu undanfarið og ég ekki enn komin með nýja Digital afruglarann frá Stöð 2 þá hef ég verið að glápa á mun fleiri þætti á Skjá Einum en ég er vön. Ég segi nú bara, eins gott að þetta er ókeypis. Það er ekki nóg með að þeir grafi upp endalaust af einhverju amerísku drasli heldur er það sem þeir framleiða sjálfir af svipuðu kaliberi. Kíkjum aðeins á dagskrána.
Ég er löngu hætt að kippa mér upp við þessa þvælu sem Survivor er. Það segir sig sjálft að þegar hópur af moðhausum kemur saman til á eyðieyju í þeim eina tilgangi að skíma og plotta allir gegn öllum þá er það ekki fögur sjón. En það kemst samt ekki með tærnar þar sem Americas next supermodel er með háhælana. Þvílíkt rusl! Einhverjar stelpugálur sem flestar hafa ekki borðað meira en 3 salatblöð í mál í 5 ár að keppa í því hver getur geiflað sig og glennt meira framan í miðaldra karlfauska sem svo ráða því hver þeirra er send heim (sú fer þá venjulega að háskæla, finnst lífið ekki lengur vera þess virði að lifa því og hoppar fram af næstu brú...eða næst um því).
Svo þegar ég hélt að vont gæti ekki versnað þá sá ég Bingóþáttinn þeirra! Sá gengur út á það að OFSALEGA HRESSI STJÓRNANDINN sprellar og spriklar og gerir voða, voða mikið grín og er í rosa stuði milli þess sem hann spilar á orgel og les upp bingótölur. Ég færi á bingó í Vinabæ með Félagi eldri borgara á hverju laugardagskvöldi það sem eftir er frekar en að þurfa að horfa á svo mikið sem einn þátt til viðbótar af þessu sorpi. Þegar Fólk með Sirrý er að verða það skásta sem boðið er upp á þá er eitthvað mikið að. Ég verð þó að viðurkenna að mig hefur alltaf langað til að koma í þáttinn og vera svona skuggi bak við eitthvað tjald og tala með þvoglumæltri Barry White rödd um spillingunni sem á sér stað í Kvenfélagasambandi Íslands. Þar sem miðaldra virðulegar konur eru ekkert annað en stórinnflytjendur á bönnuðu sænsku munntóbaki, dreyfa fölsuðum kökuuppskriftum og selja bláberjasultu sem er með skemmdum bláberjum. Og hver veit nema þetta séu líka allt saman harðsvíraðir handrukkarar sem elta fólk og berja það með handtöskum og regnhlífum.
Þá er það ákveðið. Lúsíukvöldið verður 4. des. Það virðast bara allir geta mætt sem er afrek útaf fyrir sig. Og ég vænti þess að svíþjóðarfararnir verði með okkur í anda (helst vínanda þá). Það er þá ekkert annað að gera en að fara með pallíettukjólinn í hreinsun, taka fram manndrápspinnahælana og panta lagningu.

miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Ég var að hugsa um það einn morguninn á leiðinni í vinnuna og algerlega ekki að nenna því hvers vegna í ósköpunum ég gerðist ekki prestur. Það er einfaldasta og þægilegasta djobb í heimi. Maður er æfiráðinn og á fullum launum frá ríkinu en fær svo borgað aukalega fyrir allt sem maður gerir nema messa einu sinni í mánuði ef maður nennir. Fermingar, giftingar, skýrnir og jarðarfarir, ekkert af þessu er innifalið í launum prestanna. Fyrir hvað er þá verið að borga þeim segi ég þá? Að vinna einn dag í viku að meðaltali við að fara með sömu gömlu tuggurnar aftur og aftur sem allir hafa heyrt minnst 1000 sinnum fyrir gamalmenni sem heyra hvort eð er ekkert hvað verið er að segja. Það væri alveg eins hægt að lesa upp úr Lukku Láka. Pant hafa svona vinnu þó maður þurfi að dressa sig upp í óléttukjól og með samanbrotinn lampaskerm um hálsinn svona rétt á meðan. Svo ef maður býr úti á landi þá er frítt húsnæði og alltaf einhverjar gamlar konur að bjóða manni í kaffi og kökur. Svo messar maður bara um jól og páska og reynir að fá fólk til að slá saman giftingum og jarðarförum og ekki verra ef hægt væri að troða einni og einni skýrn með og spara mikinn tíma og fyrirhöfn því hver nennir að gaufa með þetta dag eftir dag. Það ætti að hafa tvennar dyr á hverri kirkju þannig að þegar líkfylgdin fer út um framdyrnar koma brúðkaupsgestirnir inn um bakdyrnar. Framlegð er málið í dag.
Mér finnst við vera farin að vera helst til grimm við aumingja Bush ræfilinn hérna. Sérstaklega er Hammer grumpy, það mætti halda að hann hafi verið að hlusta á Herbert Guðmundsson, Justin Timberlake og Árna Johnsen allt sama morguninn! Bush er bara einfaldur maður og við verðum að virða honum það til vorkunar. Við meigum ekki vera vond við svoleiðis fólk. Það væri eins og að púa á keppendurna á Ólympíuleikum fatlaðra. Og ef hann vill borða ís með gaffli þá á bara að leyfa honum það. Enginn skaði skeður. Það er líka ekki réttlátt að halda því fram að þó hann virðist ekki geta sett saman setningu sem inniheldur fleiri en 4 atkvæði sé það merki um að hann sé eitthvað treggáfaður. Alls ekki. Skoðiði bara íslendingasögurnar, þar var ekki verið að eyða plássinu í einhvern orðaflaum heldur komið sér beint að efninu í sem fæstum orðum þannig að allir skildu við hvað var átt. Það er líka bara helmingur af ameríkönum sem eru vitleysingar. Hinir eru vooooða sorry yfir öllu saman. Tékkið á þessu:) http://www.b2.is/?sida=tengill&id=79133
Óformleg skoðanakönnun hefur leitt til þeirrar niðurstöðu að laugardagurinn 4. des virðist henta flestum best til að halda hið árlega Lúsíukvöld. Ég hef þó ekki enn heyrt í Tensai San sem mun verða veislustjóri og aðal Lúsía. Ég vona að hún hafi ekki álpast upp í einhvern sumarbústað úti í óbyggðum til að finna sitt innra karma, drukkið nokkrum fingurbjörgum of mikið af Sake, vafrað út í móa og orðið mannætuhúsdýrum að bráð. Við vitum öll að kýr geta verið stór varasamar svo ekki séu nú ninnst á sauðfé. Ekkert nema vígtennurnar og blóðhlaupin augun.
Ég átti leið í Hagkaup um daginn sem ekki væri í frásögur færandi nema hvað að ég rak augun í poka af flögum með salti og ediki. Þar sem ég veit ekki um neinn annan á Íslandi sem borðar þetta þá kom þetta algerlega eins og þruma úr heiðskýru lofti. Að Hagkaup séu að flytja inn snakk bara fyrir mig, hugsið ykkur! Reyndar skil ég ekki sjálf af hverju ég borða þetta. Það hefur eitthvað slegið þarna saman í bragðlaukunum. Enskar matarvenjur eru ekki eitthvað sem venjulegt fólk tekur upp að öllu eðlilegu. Hverjum öðrum dettur í hug að borða böku með rollunýrum í? Eða einhver minibjúgu úr svínafitu löðrandi í steikingarolíu? Stappaðar kartöflur með bökuðum baunum og svínaskönkum! En svona eftir á að hyggja þá getum við þó lítið sagt án þess að vera að grýta heilu hnullungunum úr glerhúsunum okkar. Úldin skata með bræddri rollufitu og súrir hrútspungar? Ég held við séum meira skyld bretum en við höldum. Og við erum bara nýhætt að éta sauðskinnsskóna okkar þegar við vorum búin að ganga niður úr þeim og renna svo öllu niður með hákarlalýsi. Jói Fel come back, all is forgiven!
Nammm!! Og hver segir að útlitið skipti ekki máli þegar matur er annars vegar?

miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Mér til mikillar ánægju er Móðir Jörð komin í leitirnar!!! Já konan sú hefur víst alltaf nóg fyrir stafni eins og gjarnan er í sveitum á þessum árstíma. Haustverkin á fullu og allir að taka slátur og svíða kindahöfuð og útbúa sviðasultu. Svo eru það náttúrulega bútasaumsnámskeiðin, keramiknámskeið (allir verða nú að geta búið til ávaxtaskál og öskubakka), Laxnesklúbburinn, tantranámskeiðin, vinafélag íslensku varphænunnar er með fundi og svo auðvitað saumaklúbburinn Skvetturnar þar sem sérstaklega er lögð áhersla á að hafa marenstertur á samkomum. Já það er sko alltaf nóg að gera í sveitinni meðan við malbikspakkið hlussumst bara fyrir framan sjónvarpið með kók og snakk eða þá förum í Smáralindina eða á bílakynningu og fáum ákeypis pulsur og bol merktan Toyota á alla kanta.
Ég er endanlega búin að missa allt álit á ameríkönum og var það ekki mikið fyrir eftir að hafa hrapað mjög hratt síðustu 4 ár. Haldiði ekki að þeir hafi kosið yfir sig þennan ofsóknarbrjálaða moðhaus sem þeir hafa haft sem forseta síðustu 4 ár í önnur 4 til viðbótar! Þetta er svona svipað og að Ástþór Magnússon yrði kosinn forseti hér, ekki bara einu sinni heldur tvisvar! Og segir það ekki meira en mörg orð um amerískt skólakerfi að þessi maður sé með háskólapróf í sagnfræði nema Fáfræði sé sérstök námsgrein þarna vesturfrá. Smá dæmi:
"This very week in 1989, there were protests in East Berlin and in Leipzig. By the end of that year, every communist dictatorship in Central America had collapsed." —George W. Bush, Washington, D.C., Nov. 6, 2003
"My trip to Asia begins here in Japan for an important reason. It begins here because for a century and a half now, America and Japan have formed one of the great and enduring alliances of modern times. From that alliance has come an era of peace in the Pacific." —George W. Bush, who apparently forgot about a little something called World War II, Tokyo, Feb. 18, 2002
"It is white." —George W. Bush, asked by a child in Britain what the White House was like, July 19, 2001
En grínistar og stand-up comedians verða alla vega mjög ánægðir því nú hafa þeir nóg efni næstu 4 árin.
Ég sá í sjónvarpinu um daginn treiler (sem gerist mjög sjaldan þar sem ég er oftast að sinna húsverkunum á kvöldin eða setja niður haustlauka eða þá hekla jóladúka) þar sem var verið að kynna einhvern matreiðsluþátt með Jóa Fel sem væri ekki í frásögur færandi nema hvað hluti af kynningunni var hann að hysja upp um sig brækurnar væntanlega að koma úr ræktinni. Hvað er eiginlega með þennan mann? Er hann haldinn einhverri strýpiþörf eða hvað? Ég man ekki betur en að í einum þættinum hafi hann verið að striplast í sturtu. Og hvað kemur það metreiðslu við hvort kokkurinn er með sixpakk og taki 250 kíló í bekk? Hverjum er ekki sama? Eða er ég eitthvað að misskilja þetta. Sitja kannski kellingarnar stjarfar fyrir framan skjáinn og bíða eftir að sjá bossann á Jóa Fel en er alveg slétt sama hvort steikin er medium rear eða well done? Ég þakka bara mínu sæla fyrir að Siggi Hall hafði ekki þessar furðulegu kenndir. Ég hefði alla vega ekki horft á þann matreiðsluþátt.