<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

mánudagur, janúar 31, 2005

Ég fékk vitrun um helgina. Nei, nei, ég er ekki farin að sjá Jesúmyndir á ristaða brauðinu mínu eða á óhreinum matardiskum né heldur byrtist María mey mér á fáförnum stað. Það eru geðræn vandamál ekki vitrun. Nei, það rann upp fyrir mér að heavy metal er málið. Punktur. Ég var sem sagt að stela tónlist af netinu eins og ég geri svo, oft og telst líklega stórglæpamaður á því sviði, og eitt af því sem ég náði í var nýja platan með Judas Priest. Og þar sem ég setti fyrsta lagið á og hækkaði vel í græjunum þá rann upp fyrir mér ljós og ég hugsaði, this is it! Já takk yessirybob. Nú hlusta ég bara á sveitt heavy metal í gargandi botni og læt ekki bjóða mér eitthvað ömurlegt kellingavæl eins og Damian Rice eða Coldplay. Mjúkir menn my arse! Hér eftir verða það bara gargandi, leðurklæddir testósteronboltar og minnst 2 gítarsóló í hverju lagi. Ég hef dregið fram hverja snilldarplötuna á fætur annari og þetta eru menn sem kunna að skýra plöturnar sínar. Reinventing the steel, Screaming for vengeance, Fighting the world, Reign in blood, Slowly we rot...listinn er endalaus. Hér er ekki verið að grenja út af einhverjum misheppnuðum ástarsamböndum eða velta sér upp úr misrétti og vonsku heimsins og setningin I love you er álíka algeng og bleikir fílar. Heavy metal rules!

Nú fer að styttast í Þorrablótið/innflutningspartýið/stórafmælið og það þarf að fara að huga að því hvað verður á matseðlinum. Þar sem þessi týpíski þorramatur er að mestu leyti ekki hundum bjóðandi þá verður bara að brydda upp á einhverjum nýjungum til að gera þetta áhugaverðara. Ég smakkaði t.d um daginn harðfisk með lime og chillisósu sem smakkaðist alveg ágætlega. Svoltið sérstakt en samt fínt. Ég geri nú samt ekki ráð fyrir að það sé fyrir alla þó mér finnist það fínt. Mér finnast t.d kartöfluflögur með salti og ediki algert æði en hef ekki enn hitt neinn annan sem borðaar það fyrir utan þann aðila sem kynnti mig fyrir harðfiskinum. Hmm... það segir kannski eitthvað? En maður á að taka öllum nýjungum með opnum huga. Ég hef líka verið að kynna mér aðeins þennan ósið sem það er að háma í sig úldinn mat einu sinni á ári og svo íslenskar matarvenjur almennt enda ætla ég að halda fyrirlestur um það mál á Þorrablótinu og er ég komin með stutt uppkast upp á 14 síður. Þá er nú bolludagurinn (sem ég var að sjá að er eftir viku) skemmtilegri siður.

Ég stóð mig að því að vera að fletta Séð og heyrt á einhverju kaffihúsinu um daginn. Ég var sko búin að lesa Financial Times og Nature. Nema hvað að ég þekkti hvorki haus né sporð á langflestu fólkinu sem talað var um í blaðinu. Annað hvort er svona svakaleg gúrkutíð eða þá að ég fylgist bara ekki nógu vel með ríka, fræga og fallega fólkinu í dag. Hvar er Fjölnir Þorgeirsson eða Friðrik Weisshappel? Og svo er það þetta Idol lið sem ég heyri fólk tala um eins og séu nákomnir ættingjar. Hvað er eiginlega merkilegt við það að heyra hæfileikalausa, bólugrafna unglinga rústa einhverjum Sálarlögum sem voru þó nógu vond fyrir. Og svo bara versnar það þegar reynt er að tala við þetta lið sem fæst getur komið saman óbrenglaðri setningu. En það er jú alltaf til fólk sem vill sínar 15 mínútur af frægð. Hvað hafa svo þessir snillingar sem komust í úrslitin í fyrra sér til frægðar unnið? Annar gaf út sólóplötu sem fáir nenntu að hlusta á og enn færri keyptu nema einhverjir hillbillys á Suðurnesjunum og er hans helst minnst fyrir að klæða sig eins og fífl. Hinn gaf út karókíplötu sem var jafnvel enn verri og væmnari en síðasta plata Páls Rósinkranz en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum keyptu allar miðaldra kellingar landins þennan óskapnað og létu ekkert á sig fá þó maðurinn syngi eins og Beaker í Prúðuleikurunum. Hvernig væri að láta þetta lið reyna að syngja heavy metal, ha?! Þá fyrst á það eftir að skíta í brækurnar.
|

sunnudagur, janúar 23, 2005

Hvernig er þetta eiginlega með þessa ríkisstjórn, standa þessir menn ekki við neitt sem þeir segja. Hvar er Bobby Fisher!!?? Okkur var lofað því að fá hann í jólagjöf og svo gerist bara ekki neitt. Eftir hverju er verið að bíða spyr ég nú bara? Maðurinn er frægur, á nóg af peningum og er og með góðum vilja er hægt að kalla skák íþrótt þannig að hann er þá íþróttamaður, hann er ekki ættaður frá Asíu eða Afríku og er mjög líklega fasisti samanber miður fögur ummæli hans um gyðinga. Maður hefði haldið að þetta ætti að duga til að honum yrði veittur ríkisborgararéttur hraðar en það tekur Davíð að taka úr sér rúllurnar á morgnana. Hér væri loksins kominn pólitískur flóttamaður sem Útlendingaeftirlitið gæti sætt sig við að hleypa inn í landið því hver vill einhverja bláfátæka og ættlausa hottintotta og halanegra eða þá Kínverja sem fjölga sér eins og mý á mykjuskán og verða búnir að taka yfir Ísland áður en við getum rönd við reyst? Þessir stórvarasömu útlendingar hafa jafnvel vélað siðvandar íslenskar stúlkur til að giftast sér með einhverjum ósvífnum bellibrögðum bara til þess að komast hingað til landsins helga með allt sitt hyski. Það er ekki að ástæðulausu að fráfarandi forstjóri Útlendingaeftirlitsins, Herr Flick (gott ef hann gengur ekki við staf og er alltaf í síðum leðurfrakka og stígvélum og konan hans heitir Helga), hefur ekki tekið neinum vettlingatökum á þessu lúserapakki. Vonandi að arftaki hans í embætti, Jósef Mengele, fylgi sömu stefnu þvi annars stefnum við beinustu leið til glötunar.

Ég var að bíða eftir strætó um daginn sem væri ekki í frásögur færandi nema hvað, að ég rek augun í auglýsingu aftan á einum þeirra frá útvarpsstöðinni Kiss fm. Þar er einhver fíflalegur leikur í gangi sem gengur út á það að fólk sem á börn á að hringja inn í einhvern ömurlegan þátt og láta krakkann "segja eitthvað sætt" eins og segir í auglýsingunni. Hvað er það!! Ekki nóg með að þessi hræðilega útvarpsstöð spili það mesta sorp sem hægt er að finna á geisladiskum heldur ætla þeir að bæta um betur í fíflaganginum og eyða heilu þáttunum í að útvarpa óskiljanlegu babbli í slefandi smábörnum. Er nákvæmlega ekkert skárra sem þetta aumingja fólk getur látið sér detta í hug að hvelja útvarpshlustendur með sem óvart álpast til að stilla á stöðina. Þetta er ekki sætt, þetta er bara hálfvitalegt. Af hverju eru svona rusl stöðvar ekki lagðar niður? Þó Jón Gnarr sé leiðinlegur og álíka fyndinn og fundargerð frá aðalfundi Félags íslenskra endurskoðenda þá myndi ég frekar vilja hlusta á hann segja ekkibrandara í mjjjööööög löngu máli eins og hans er von og vísa heldur en að hlusta á einhverjar mömmur, sem hafa greinilega ekkert skárra að gera (sjálfsagt einstæðar mæður á bótum og styrkjum og aukabótum og viðbótarstyrkjum), reyna að toga eitthvað gáfulegt upp úr börnum sem ekki eru einu sinni komin á það þroskastig að vera farin að borða sand og flugur hjálparlaust.
|

sunnudagur, janúar 16, 2005

Það er ekki hægt að segja annað en að "men are pigs" kvöldið hafi verið ákaflega dannað og dömulegt. Enginn skandall, enginn sofandi í sófanum daginn eftir og allt trúnó svona frekar á léttu nótunum (enda var kokteilbarinn harðlæstur af gefnu tilefni). Þrátt fyrir fögur fyrirheit þá voru engin ástarbréf eða myndir brenndar á báli né skartgripum sturtað niður úr klósettinu og niðurstaðan úr öllum þeim djúpu umræðum sem þar fóru fram var í stuttu máli sú að "men may be pigs but it´s a dirty job and someone has to do it".

Skemmtinefnd BKBK hefur sett fram þá formlegu tillögu að Þorrablót verði haldið þann 12. febrúar í Hamraborginni. Og ekki nóg með að þetta sé eitthvað venjulegt Þorrablót heldur er þetta Innflutnings-afmælis-þorrablót hvorki meira né minna. Húsfrúin og Kokksi eru að koma sér aftur fyrir á fornum slóðum í Hamraborginni og Húsfrúin í Vogunum verður formlega miðaldra þennan dag þannig að það þótti alveg tilvalið að steypa þessu öllu saman í eitt allsherjar geim. Og þar sem þetta eru allt merkisatburðir þá hefur Móðir Jörð enga afsökun fyrir því að mæta ekki þó fyrirvarinn sé bara 4 vikur. Hún gæti jafn vel komið með væna flís af feitum sauð þarna úr sveitinni. Eins og fram hefur komið verður einungis boðið upp á þorramat sem hægt er að kalla með góðri samvisku mat, 0g allt venjulegt fólk getur borðað án þess að loka augunum og hafa þvottaklemmu á nefinu. Frést hefur að það verði m.a.s boðið upp á sérstakt þorraflan og ábyrgist ég að það verða ekki súrir hrútspungar of kálfalappir með jarðarberjum og súkkulaði þó það væri reyndar alveg sérstaklega þorralegt flan.

Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar Monopoly spurði í forundran hvort ég ætlaði virkilega ekki að horfa á beinu útsendinguna á laugardagskvöldið. Ég kom hreinlega af fjöllum og hefði ekki heyrt um neina beina útsendingu á einu né neinu enda hvorki með útvarp né sjónvarp. Voru Börnin að koma heim? Var Davíð búinn að láta slétta á sér krullurnar? Hafði Halldór Ásgrímsson sagt brandara? Hafði fótboltalandsliðið unnið leik? Nei, nei! Haldiði ekki að þetta hafi verið bein útsending frá einhverri söfnun þar sem ALLIR leiðinlegustu sjónvarpsmenn og (ó)skemmtikraftar landsins voru saman komnir að reyna að vera hressir og sniðugir til að kreysta peninga út úr fólki. Gott og vel að safna peningum til styrktar góðum málefnum en er ekki hægt að gera það á aðeins mannúðlegri hátt en að hafa Gísla Martein flaðrandi og flissandi á skjánum heilt laugardagskvöld? Nei takk, má ég þá frekar biðja um fund í "Men are pigs society".


|

þriðjudagur, janúar 11, 2005

Voðalega finnst mér sumar hérna vera að láta einhverja karlaskarfa hringla eitthvað með sig! Jú jú þeir geta svo sem alveg verið fínir, en bara í hófi. Ís og súkkulaði er líka voða gott en eitthvað held ég að það yrði hálf klént ef maður væri að háma það í sig í tíma og ótíma, og kannski bara vondan ís og gamalt súkkulaði ofan á allt saman. Maður á auðvitað líka bara að velja það besta eða þá einfaldlega sleppa því segi ég (það er líklega ástæðan fyrir því að Grumpa er enn single). Ég hef áður farið í gegn um það að velja sér tilvonandi maka er ekki eitthvað sem á að gera kl. 3 á laugardagskvöldi á Sólon á 6. bjór. Nei og aftur nei. Svoleiðis er dæmt til að mistakast. Þetta á allt að gerast mjög vísindalega og úthugsað og ef viðkomandi gripur stenst ekki ALLAR kröfurnar þá er næsta skref í því ferli að segja hina gullnu setningu "erum við einhverjir vinir?" og snúa sér að öðrum málum eins og t.d að drekka meiri bjór. Ef riddarabrynjan og hvíti hesturinn eru ekki sýnileg í heimkeyrslunni hjá viðkomandi er betra heima setið en af stað farið. En þette lítur auðvitað allt öðruvísi út ef bara er verið að leyta að eintaki í hjálpartækjasafnið, þá er allt leyfilegt. Eftir allt þetta tal skil ég orðið mjög vel að Hammer sé hættur að þora að láta sjá sig hér á blogginu:)

Óformlegur félags- og stuðningsmannafundur BKBK komst að þeirri niðurstöðu á sunnudaginn eftir að hafa gætt sér á vöfflum og kaffi að ekki væri úr vegi að halda Þorrablót. Húsfrúin er auðvitað bara góðu vön eftir dvölina á Southfork Ranch og stakk upp á gúrme eins og súrum hrútspungum, sviðasultu, hákarli, súrsuðum nautgripalöppum og slátri með miklum mör. Fyrir þessa vandætnu sem ekki kunna að meta þjóðlega siði og borða ekki úldinn mat væri hægt að hafa hangikjöt, harðfisk, rúgbrauðm og flatkökur. Öllu yrði svo skolað niður með Brennivíni (eða flóaðri mjólk fyrir þá sem virðast hafa eitthvað óþol gagnvart áfengi og eiga það til að lognast út af í sófum út um allan bæ). Tensai San verður svo sjálfkjörin til að sjá um skemmtiatriði, bæði vegna frábærrar framistöðu á Lúsíukvöldinu og einnig vegna þess að stinga upp á því að sonurinn héldi upp á 17 ára afmælið í Veröldinni okkar í Smáralind og fengi trúð, frostpinna og útskorna köku (sérstaklega þegar á það er litið að hann þarf heilan nautabúgarð í Brasilíu til að sjá sér fyrir fatnaði og fylgihlutum og notar meiri snyrtivörur en við allar til samans og hefur ekki enn tekið eftir því að hægt er að fá flest í fleiri litum en svörtu). Þar sem styttist óðfluga í Þorrann þá vil ég hér með leggja þessa hugmynd í dóm félags og stuðningsmanna BKBK. Í beinu framhaldi af mlög svo vel heppnuðu sunnudagskaffi síðasta sunnudag langar mig líka til að stinga upp á því að sunnudagskaffi verði mánaðarlegur viðburður, t.d fyrsta sunnudag í hverjum mánuði. Hvernig hljómar það? Það skal tekið skýrt fram að þessi uppástunga er ekki bara til þess að Grumpa geti troðið sig út af sætindum og kruðiríi og sé bara að nota vini sína sem skálkaskjól fyrir eigin græðgi.

Monopoly virðist hafa tekist að lokka til sín aðra heimilishjálp eftir að Londonía varð að flíja af landi brott í skjóli nætur. Mér skilst að hún hafi þurft að fara í þrefalda handsnyrtingu og Tyrkneskt nudd svo ekki sé minnst á lagningu og rope yoga svo var hún útjöskuð eftir þessa fáu daga. Og hún fékk ekki einu sinni rauðvínsdreitil eða osttægju. Húsfrúin fyrrverandi frá Ameríku er greinilega ekki ennþá þúin að ná sér eftir að hafa sagt sig úr Ewing fjölskyldunni að hún lét gabbast og flutti inn til Monopoly sem hugsar sér nú gott til glóðarinnar að þurfa ekki að strauja gardínur, ryksuga, skúra, vaska upp eða þvo þvott næstu vikurnar. Svona eru þessar einstæðu mæður, þú réttir þeim litlaputtann og þú ert étinn lifandi áður en þú veist af. Svo koma þær í Fólk með Sirrý eða í DV og skæla yfir því hvað kerfið fer illa með þær. Ég sé fyrir mér fyrirsögnina "Kerfið sveik mig" eða þá frétt í DV sem gæti hljóðað svo: "Einstæð móðir með gerfifót lögð í einelti af Alfonsi Hitler stöðumælaverði. Kveðst ekki geta lagt fyrir framan Kaffi Austurstræti óáreitt. Á erfitt með að ganga langar vegalengdir eftir þrjá tvöfalda brennivín því Tryggingastofnun neitar henni um nýjan gerfifót eftir að sá gamli brákaðist við að detta niður stiga í Ölveri."





|

fimmtudagur, janúar 06, 2005

Haldiði að sé ekki bara komið nýtt ár og það númer 2005 í röðinni frá því að einhver byrjaði að nenna að hafa fyrir því að hafa á þeim tölu. Áramótin hjá mér fóru mjög friðsamlega fram, engin flugeldastórskotahríð eða því um líkt enda er svoleiðis bara fyrir karlmenn sem hafa ennþá gaman af því að leika sér. Þetta eru örugglega sömu mennirnir sem eiga jeppa á 50" dekkjum, eða whatever sem stærðin á þessu er, gjörsamlega hlaðinn í ljóskösturum og einhverju drasli þó að það lengsta sem þeir fari sé upp í Bláfjöll. En eitthvað verða þeir að hafa fyrir stafni blessaðir, ekki þræða þeir útsölurnar nema þá kannski sem burðardýr fyrir konuna sína. Tekið tillit til þess hversu mikil mannraun það er að vera kannski dreginn á 10 útsölur á einum og sama deginum, vera næstum troðinn undir af kellingum sem kaupa allt sem hönd á festir hvort sem það er nefháraplokkari eða rafmagnssósuhristari og burðast með úlfaldahlass af innkaupapokum þá er þeim næstum fyrirgefið að geta hangið yfir 3 fótboltaleikjum á dag í Manchester United búningnum sínum með bumbuna lafandi yfir buxnastrenginn og slafrandi í sig sveittum rottuborgurum og bjór, tuðandi yfir dómaranum allan tímann. Og þeir meiga svo sem alveg keyra allt of dýru jeppana sína í sköflum þessa fáu daga sem snjóar eitthvað að ráði og svo eru sumir sem virðast ekki vaxa upp úr því að spila heilalausa tölvuleiki og skoða klámsíður á netinu í vinnunni og verður bara að leyfa þeim það. Mörkin setur maður við þá sem gera ráð fyrir að ALLIR hafi áhuga á fótbolta og hásingum og finnst ekkert athugavert við að brydda upp á því umræðuefni við öll tækifæri. Ímyndið ykkur stúlkur mínar ef þið væruð að deita svona gæja og hann býður ykkur út að borða. Ekki á La Primavera (sem hann heldur örugglega að sé plata með Jóhanni Kristjánssyni) ef hafið gert ykkur vonir um það, heldur á American Style og pantar double megaburger með beikoni handa ykkur báðum. Svo fer hann tala um leikinn við Arsenal í næstu viku og að Giggs sé miklu betri á kantinum en Ljungberg og segir ykkur svo í trúnaði að hann kalli jeppann sinn Trölla. Ef einhverjir kannast við meiri deit from hell þá er þeim frjálst að trúa okkur fyrir þeirri ægilegu lífsreynslu.

Ég vil lýsa yfir einskærri ánægju og stjórnlausri gleði yfir því að Húsfrúin skuli vera komin heim og búin að fá nóg af þessu brölti í útlöndum. Ég vil jafnframt leggja til að kaffihúsaferð eða vöfflukaffi á Laugaveginum sé fljótlega á dagskrá. Það eru reyndar allir meira en velkomnir í vöfflukaffi og ég ábyrgist að það verður ekki haldið fyrir hádegi svo Tensai San verður búin að taka rúllurnar úr hárinu og lesa Moggann (líka minningargreinarnar og leiðarann). Henni og Kokksa veitir örugglega ekkert af því að fá einhverja staðgóða næringu eftir allt útsölufárið.
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?