<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

mánudagur, mars 14, 2005

Þá er komið að því að maður þarf að fara að skila skattaskýrslunni. Ekki það að það sé eitthvað stórmál. Það liggur við að það eina sem þurfi að gera sé að skrifa undir, flest allt annað virðist vera á framtalinu enda veit Stóri Bróðir nánast allt um okkur frá vöggu til grafar. Maður fær nú bara netta áfall þegar maður sér svart á hvítu samantekið hvað maður hefur verið að borga í skatta á árinu. Og það er bara tekjuskatturinn. Svo er virðisaukaskatturinn og allir þessir óbeinu skattar og tollar sem lagðir eru á alla skapaða hluti án þess að við tökum eftir því. Ætli ríkið hirði ekki svona 50-60 % af laununum okkar. Ísland og Ástralía eru einu löndin í hinum vestræna heimi þar sem skattar hafa hækkað á síðustu árum. Lifi frjálshyggjan! Og í hvað fara svo þessir peningar? Ekki í það að gamla fólkið geti lifað sómasamlegu lífi nema það eigi eignir og peninga til að borga fyrir aukaþjónustu sjálft. Háskólinn þarf að standa í happdrættisrekstri til að skrimta. Landhelgisgæslan er á döllum sem ættu að vera komnir á Sjóminjasafnið. Sjúkrahúsin eru meira og minna með lokaðar deildir og fólk sem þarf að fara í aðgerðir sem eru ekki upp á líf og dauða verður ellidautt áður en það kemst að og fólk sem á ekki fyrir mat þarf að standa í biðröðum fyrir utan hjálparstofnanir sem nota bene eru reknar fyrir frjáls framlög og öryrkjarnir þurfa að safna dósum til að geta lifað.
En það er sendiráð í Japan sem kostaði 700 milljónir að byggja og kostar 200 milljónir á ári að reka. Það þurfti líka nauðsynlega að byggja nýtt í Þýskalandi í flottasta hverfinu í Bonn og með 400 manna móttökusal þó það hafi staðið til boða að nota sameiginlega aðstöðu til stærri samkoma með hinum norðurlandaþjóðunum, en það var víst ekki nógu fínt. Þá eru ótalin öll hin sendiráðin og sendiherrarnir með 2 milljónir á mánuði og helminginn skattfrjálst. Svo þurfa þingmennirnir og allur embættismannaskarinn að vera að þvælast í útlöndum í tíma og ótíma á sky high dagpeningum. Það er til svo mikið af ríkisstofnunum að það veit örugglega enginn tölu á þeim né hvað allt þetta fólk sem þar er í vinnu er að gera en einhversstaðar þarf að koma öllum flokksgæðingunum fyrir. Það er ekki til það lítilfjörlega embætti að Flokkurinn sé ekki með puttana í því hver þar situr auk þess sem Framsóknarútibúið fær að ráðstafa einni og einni stöðu til að halda þeim góðum saman ber fréttastjóra útvarpsins þar sem einhver sölumaður hjá Marel var ráðinn sem aldrei hefur komið nálægt fréttaflutningi nema sem fréttaritari í Kaupmannahöfn eða einhversstaðar í fjandanum fyrir mörgum árum.
Ég er að spá í að næst þegar embætti biskups verður auglýst ætla ég að sækja um. Þetta er örugglega voða þægilegt innidjobb og ekki er biskupinn að messa neitt sérstaklega mikið auk þess sem það er sjálfsagt ágætlega borgað og biskupinn er æviráðinn. Ég hef reyndar enga reynslu af preststörfum en hef farið í nokkrar messur og ef þess er krafist í starfslýsingu að maður sé alltaf klæddur eins og fífl þá verður bara að hafa það. Það er ótvíræður kostur að fá í þetta starf menneskju með reynslu af veraldlegu vafstri en ekki alltaf endalaust einhverja slepjulega guðfræðinga. Og það að ég sé ekki í Þjóðkirkjunni ætti að vera kostur frekar en hitt þar sem þá sé hægt að líta á mig sem biskup allra landsmanna. En til að allt þetta megi verða að veruleika þarf ég að koma mér í mjúkinn hjá Flokknum. Ég ætla að byrja á því að mæta á hverjum sunnudegi heim til Dabba með nýbakaða skúffuköku og fara að skrifa miklar lofrullur um Foringjann í öll blöð og gefa svo út bók sem á að heita Við erum öll Davíð inn við beinið og er með skemmtisögum og fleygum setningum frá Foringjanum. Hmmm...ég held ég fari bara strax að máta hempur.

Það hefur lengi loðað við lögguna að þar stigi ekki allir í vitið og sannaðist það heldur betur um síðustu helgi. Þá var ítalskur arkitektanemi handtekinn um miðja nótt fyrir að hafa fyrr um daginn verið að taka myndir af Alþingishúsinu og teikna af því skyssur og héldu breinin í löggunni að þarna væri kominn stórhættulegur hryðjuverkamaður sérstaklega sendur frá Osama Bin-Laden til að sprengja það í loft upp. Duhh!! Ég sé þá fyrir mér í gráum rykfrökkum og með sólgleraugu og gerfiskegg elta manngreyið allt kvöldið til að finna út hvort hann væri einn að verki eða ætti hér samverkamenn og réðust svo til atlögu á Sirkus af öllum stöðum, þar sem hann var í mesta sakleysi að fá sér öl og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann var handtekinn af mönnum með hatta og uppbretta kraga. Svo var honum haldið í steininum fram á næsta dag meðan leitað var dyrum og dyngjum að handsprengjum, bassúkum, sprengivörpum, stýriflaugum og ég veit ekki hvaða drápstólum sem löggan var alveg viss um að hann hefði meðferðis. Þetta minnir mig á íslensku sprengjuleitarsveitina í Írak sem fann útrunnið sinnep hérna um árið og gott ef þeir fundu ekki líka gamalt súrkál og úldin egg. En mikið svakalega hefur Björn Bjarnason verið svekktur þegar ekki tókst með nokkru móti að klína neinu hryðjuverkabrölti upp á þennan mannræfil. Hann hefur örugglega verið búinn að dressa sig upp í army uniformið og Haraldur Johannessen búinn að setja upp alla borðana og þeir félagarnir verið tilbúnir að boða blaðamannafund um málið og sýna um leið fram á að við þurfum alveg bráð nauðsynlega bæði her og leyniþjónustu því hérna vaði alþjóðlegir hryðjuverkahópar uppi óáreyttir. En það gengur bara betur næst.


Lögreglan að mjög svo leynilegum störfum
|

þriðjudagur, mars 01, 2005

Ég var að skoða um daginn í slúðurblaði allra landsmanna, listann yfir þessi hús sem er búið að gefa leyfi fyrir að rífa á Laugaveginum. Það er deginum ljósara að þeir sem settu saman þennan lista eru á algerum villigötum því það eru alveg snarvitlaus hús sem á að rífa. OK, það er kannski þarna einn og einn kofi sem hefur verið hrúgað upp við hliðina á einhverjum húsum á sömu lóðinni sem meiga alveg fara en það ætti að hreinsa betur til en það. Til að byrja með á að rífa þetta ömurlega Kaupgarðs hús þar sem Bónus er, þvíkíkur hroði sem sá steypukumbaldi er. Hvernig var þetta með arkitekta á þessum tíma, lærðu þeir allir í A-Þýskalandi? Ekki er Síðumúlinn, Ármúlinn eða Suðurlendsbrautin mikið augnayndi. Svo þegar búið er að jafna Kaupgarð við jörðu má næst taka biðskýlið við Hlemm, Landsbankahúsið á Laugavegi 77, síðana halda beinustu leið að Mál og Menningarhúsinu og þurrka af yfirborði jarðar og ekki verra að taka Skífuhúsið í leiðinni. Í Bankastrætini má Hans Petersen húsið alveg hverfa og fyrst maður er kominn í stuð er alveg upplagt að losa sig við þetta hræðilega hús á Lækjartorginu þar sem Strætóbiðstöðin er. Þvílík landhreinsun sem það væri að þurfa aldrei að líta þann hroða augum aftur. Punkturinn yfir i-ið í umhverfismálum borgarinnar væri svo að losna við gamla Morgunblaðshúsið og viðbygginguna milli Apóteksins og Hótel Borgar. Síðan væri íslenskum arkitektum bannað að koma nálægt því að hanna það sem á að koma í staðinn því það endar oftast með einhverum risastórum gler og stál kumböldum. Finnst einhverjum t.d Seðlabankahúsið, Orkuveituhúsið eða glerbáknið á Suðurlandsbrautinni falleg hús?
Svo eru það þessi forljótu steinsteyptu torg. Lækjartorgið er alger skelfing og ekki er Ingólfstorgið mikið skárra. Torg geta svo sem verið ágæt ef við endann á þeim stendur falleg bygging og svo maður tali nú ekki um ef að þar væri gosbrunnur en því er ekki að heilsa í þessu umhverfisslysi sem Reykjavík er fyrir utan Þingholtin og næsta nágrenni. Það þarf að vísu að taka það með í reikninginn að þegar aðrar þjóðir voru að byggja sín torg með gosbrunnum og höllum þá bjuggu Íslendingar í holum í jörðinni ásmat hundum, kindum, köttum og flóm að drepast úr sulti og skyrbjúg og ekki alveg að spá mikið í menningu og listir. Þegar svo hersetan kippti okkur loksins inn í nútímann og við uppgötvuðum steinsteypu varð fjandinn laus. Nú eru svo blessaðir arkitektarnir að uppgötva gler með álíka skelfilegum afleiðingum. Ég er þeirrar skoðunar að arkitektar séu upp til hópa umhverfisglæpamenn þar sem tímabilið frá 1960-1980 sé sínu verst. Ég legg til að þeir sem voru ábyrgir fyrir Múlunum, Suðurlandsbrautinni og Fellahverfinu í Breiðholti ættu að vera hýddir opinberlega og væri við hæfi að gera það á Lækjartorgi sem þessir sömu menn hafa væntanlega líka hannað.
Þegar svo hreinsunarátak er á annað borð komið af stað er upplagt að halda áfram og eyða t.d Framsóknarflokknum sem hefur lifað eins og sníkjudýr á öðrum flokkum frá stofnum og dreyft sínum flugumönnum um allt eins og ólæknandi krabbamein, Davíð Oddssyni ætti sömu leiðis að henda á haugana enda fyrir löngu orðinn bilaður og Björn Bjarnason mætti fara sömu leið þar sem hann hefur fyrir það fyrsta aldrei verið í lagi. Konur með freka öskrandi krakka ætti að fjarlægja og sömu leiðis tryggingasölufólk sem angrar mann með símhringingum í tíma og ótíma. Stuðmenn eru löngu orðnir úr sér gengnir eins og síðustu 5 plötur hafa greinilega borið með sér og ættu þeir að sjá sóma sinn í að láta sig bara hverfa sjálfviljugir og Í svörtum fötum og Birgitta Haukdal eru ekkert annað en hljóðmengum sem ætti ekki að líðast. Að lokum ætti svo að senad Gísla Martein í endurvinnslu og athuga hvort ekki sé hægt að búa til úr honum blómaker eða eitthvað annað gagnlegt. Því eins og maðurinn sagði þá er hrein borg fögur borg nema í Síðumúlanum sé.
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?