Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
mánudagur, maí 23, 2005
Það fór þá aldrei svo að maður mætti ekki í Júróvisjónpartý. Og ekki nóg með það heldur greiddi ég atkvæði í þessari bjánalegu keppni. En maður varð nú að leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að hetjurnar í Wig Wam næðu góðum úrslitum. Svona snillingar koma ekki fram í þessari keppni nema á...ja, ekki bara síðan ABBA tók Waterloo hérna um árið. (Þó ég hafi verið í Wig Wam bolnum mínum þá var ég ekki eins ýkt og sumir sem veifuðu norskum fána allt kvöldið og gott ef voru ekki í háhæluðum skóm og með svartan varalit). Það er samt eitt sem ég skil ekki en það er hvernig fólk getur tekið þetta fyrirbæri það alvarlega að verða gjörsamlega miður sín yfir því að þett íslenska lag komst ekki áfram. Come on, þetta var bara leiðinlegt lag og hún Selma "okkar" höfðar kanski ekkert voðalega mikið til unglinga og miðaldra kvenna í Albaníu eða Slóveníu. Fyrir utan það að þessi búningur sem hún var í var hallærislegri en dressið á Wig Wam og þeir voru að grínast! Hvernig er þetta eiginlega með íslenska hönnuðu, af hverju þurfa þeir að vera svona "ógeðslega fríkaðir" alltaf hreint? Hver getur t.d gleymt því hvernig Icy flokkurinn góðkunni var klæddur og var ekki Einar Ágúst í pilsi í eitthvert skiptið í þessari keppni? Ég hef nú líka séð myndir frá svona tískusýningum þar sem íslenskir hönnuðir eru að sýna og þetta er allt eitthvað dót úr fiskibeinum, hjólbarðagúmíi, gömlum rúmteppum eða eitthvað álíka. Úlpur þar sem hettan snýr niður og skór með hælnum að framan. Æði!!!
Forskaren hefur áður tekið fyrir þátt Gísla Marteins í þessu Júróvisjóndæmi og kvitta ég heils hugar undir allt það sem þar kemur fram. Maðurinn er verri en vond gubbupest, hettusótt og þynnka eftir viku fyllirí sett saman. Annars kom maðurinn í Wig Wam dressinu og með fánann með pottþétta leið til að vinna þessa keppni. Það svo sem skiptir ekki máli hvaða lag verður, bara að flytjandinn líti þokkalega út í flegnum kjól. Svo á að vera með fullt svið af gó gó dönsurum í mjög efnislitlum flíkum dillandi öllum skönkum framan í myndavélarnar. Trikkið er svo að fá nokkra "listræna dansara" lánaða frá Geira á Goldfinger því þær eru frá öllum þessum löndum, Eistlandi, Lettlandi, Rússlandi, Slóvakíu og öllu þessu og passa að það komi skýrt fram í öllum kynningum og þar sem allir kjósa bara samlanda og nágranna þá erum við með garanterað fullt af stigum út á þessi tengsl sem eiga auðvitað bara að sýna hversu fjölmenningarlegt land Ísland er. Já og passa bara að vera með nokkra huggulega karlmenn á sviðinu líka svo hommarnir, sem kunna manna best að meta þetta fríksjó, fái eitthvað fyrir sig líka.
Það er alltaf verið að gera rannsóknir á öllum mögulegum hlutum og þá sérstaklega vinsælt að gera rannsóknir á því hvað er hollt og hvað er ekki nógu hollt til að láta ofan í okkur. Þegar það kemur í ljós að sígarettur eru frekar í verri kantinum og sömu leiðis gosdrykkir með hálfu kílói af sykri í lítersfkösku en aftur á móti gúrku og grænkál eitthvað skárri þá spretta heilsugúrúar og líkamsræktarfasistar fram úr öllum skúmaskotum og ota niðurstöðunum framan í fólk hvort sem því líkar betur eða verr og ætlast til að allir fari nú að borða nagdýrafóður í hvert mál og lifa happily ever after. Þetta sama fólk gasprar ekki jafn mikið þegar það kemur í ljós að súkkulaði er meinhollt og örvar heilastarfsemina, kaffi er gott fyrir taugakerfið og vín og björ er allra meina bót og að það er líkamanum nauðsyn að fá fitu til að smyrja liðina og heilann. Það hefur heldur ekki voðalega hátt um það að fullt af fólki á miðjum aldri er farið að hrynja niður í hjartaáföllum vegna þess að það ofreynir sig í ræktinni og venjulegt fólk sem lendir í bílslysum eða dettur og tognar kemst ekki að hjá sjúkraþjálfurum fyrir slösuðum íþróttamönnum sem eru alltaf meira og minna lemstraðir. Þessir heilsu- og íþróttanördar vaða hérna uppi eins og það sem þeir prediki sé heilagur sannleikur og fólk eigi að lifa einhverju meinlætalífi og borða baunabuff, sveppaseyði og þara. Málið er bara að gera allt í hófi, svo einfalt sem það hljómar. Drekka vín í hófi, borða súkkulaði í hófi og borða blóðugar nautasteikur í hófi og maður verður hamingjusamari og líður miklu betur en að ætla að reyna að pína ofan í sig eitthvað jukk frá Sollu á Grænum Kosti af því það á að vera eitthvað svo voðalega hollt og vera fúll og pirraður endalaust. Fussum svei!!
|

fimmtudagur, maí 19, 2005
Ég er heldur búin að gera víðreist síðustu dagana. Á laugardaginn var það mótorhjólakeppni á Hellu (NEI ég er ekki gengin í Sniglana) þar sem vaskir menn spændu í gegn um drullupolla og upp og niður brekkur sér til ánægju og heilsubótar. Þetta með heilsubótina má kanski liggja milli hluta þar sem 3 keppendur voru fluttir með sjúkrabíl í bæinn brotnir á hinum ýmsu stöðum. Myndavélin góða var auðvitað með í för og allt fest á filmu. Á sunnudag var svo skundað á Eyrarbakka ásamt Forskaren, Monopoly og mini Monopoly þar sem Móðir Jörð tók á móti borgarbörnunum í vaðstígvélunum og með gúmmíhanska nýkomin úr kartöflugarðinum. Þær eru svona þessar sveitakonur, þeim fellur aldrei verk úr hendi. Á meðan þær eru að gefa börnunum að borða eru þær t.d líka að brjóta saman þvott, baka pönnukökur, stoppa í ullarsokka og hekla sjal. Og ekki vantaði heldur kræsingarnar. Staflarnir af pönnukökum ásamt ýmsu öðru góðgæti þannig að borð svignuðu. Ekkert nema bilaður handþeytari kom svo í veg fyrir að marenstertan góða væri töfruð fram. Bæjarbúarnir voru svo dregnir í fjöruferð þar sem Forskaren fékk svo mikið að hreinu lofti í lungun að henni lá við yfirliði. Hún hafði ekki andað að sér svona miklu af koltvísýringslausum lofttegundum síðan á Þjóðhátíð hérna um árið.
Eins og komið hefur fram þá er Kokksi líka orðin sveitakelling og ekki fyrr búin að koma sér fyrir en bóhemar Stór-Eyrarbakkasvæðisins eru farnir að gefa henni undir fótinn. Þeir mæta þarna í sínu fínasta pússi, stífpressuðum hvítum jakkafótum með rós í hnappagatinu og syngja madrígala fyrir utan gluggann hjá henni á síðkvöldum. Svo lauma þeir ljóðum undir hurðina og blómum í póstkassann. Kokksi kann enda athyglinni vel og sést nú orðið tipla tindilfætt um grænar grundir leikandi við lömbin og með sóleyjakrans á höfðinu.
Ég er ein af þeim sem hlusta á útvarp í vinnunni og hef þar úr nokkrum stöðvum að velja. Maður skildi því ætla að eitthavð af þeim væri þannig það væri hlustandi á, maður gerir heldur ekki svo miklar kröfur . En því er nú öðru nær. Byrjum á Kiss fm sem er án nokkurs vafa versta útvarpsstöð í heimi, fm 95.7 er litlu skárri og létt 96.7 er bara fyrir kellingar sem hanga á femin.is og horfa á Fólk með Sirrý. Á Bylgjunni spilar Bjarni Ara bara lög með sjálfum sér og Sálinni og Rás 2 er undirlögð undir Eurovision og fréttum af henni "Selmu okkar" sem er víst búin að vinna keppnina minnst þrisvar milli þess sem Gestur Einar spilar nýja diskinn með Boga Jóns leikfimikennara á Siglufirði (sem hann gaf út sjálfur og heitir Í fögrum lundi ég fékk þig kysst). Á Rás 1 eru þættir eins og Ég man þá tíð, Aldnir hafa orðið og svo Dánarfregnir og jarðarfarir og Daglegt mál á milli þess sem spilaðar eru sinfónýjur og karlakórar. Ég fer kanski að hafa áhuga á því þegar ég nálgast áttrætt þó ég efi það stórlega. X-fm spilar nákvæmlega sömu lögin og X-ið 97.7, bara í annari röð. Svona leiðinlegt amerískt háskólarokk og breskt indie nema hvað X-fm ætla nú heldur en ekki að vera frumlegir og brjóta upp dagskránna með íþróttaþætti. Og þeir taka það með trompi og setja á dagskrá tveggja tíma íþróttaþátt á besta tíma dagsins þar sem Halti Björn tuðar um hvort þetta eða hitt var víti eða ekki og hvort þessi eða hinn leikmaðurinn sé hugsanlega að fara til Chelsea. Svo toppar hann leiðindin með að vera að hringja í einhvern Jóa Jóns þjálfara hjá Neista á Hofsósi í 3. flokki karla í körfubolta og ræða við hann í löngu máli. HVERJUM ER EKKI SAMA!! Það gefur svo auga leið að ég er ekki mikið að stilla á Útvarp Latabæ eða kristilegu útvarpsstöðina hvað sem hún heitir þar sem ég hef hvorki gaman af lögum úr Dýrunum í Hálsaskógi né af Áfram kristmenn krossmenn slögurum. Ég ætti kanski bara að fara og kaupa mér geislaspilara?
Og fyrst ég er byrjuð að pirra mig yfir fjölmiðlum þá verð ég að minnast á þennan snepil sem farið er að bera í hús og kallast Blaðið. Sko, ef til er eitthvað sem hægt er að kalla dagblaðslíki þá er það þetta. Nema ég sé að misskilja þetta eitthvað og að markhópurinn sé illa læsir og þroskahamlaðir. Fréttirnar, sem oftast eru um ekki neitt, eru í það stuttu máli að það segir manni ekki nokkurn skapaðan hlut um málið og restin af blaðinu er um rassinn á Jennifer Lopez og nýju íbúðina hans Einars Bárðar (þ.e á þeim örfáu blettum í blaðinu þar sem ekki eru auglýsingar). Er málið það að fólk er bara með attention span upp á 1 mínútu og ræður ekki við orð sem eru lengri en 8 bókstafir? Það þarf að leggja sig meira fram við að lesa Andrés Önd.
Ég vil svo óska Tensai San til hamingju með að hafa fundið ljósið og keypt sér tölvu sem stendur undir nafni (og þar á ég auðvitað við Apple ef einhverjir treggáfaðir eru að velta því fyrir sér). Ég er viss um að familían verður hamingjusöm á Hringbrautinni, hvert með sinn laptop. Þau geta m.a.s sent hvort öðru e-mail yfir eldhúsborðið ef það t.d skyldi vanta saltið eða kaffið sé búið því auðvitað verður allt þráðlaust á því tæknivædda heimili. Hugsa sér þægindin af þessu ef t.d Tensai San er upptekin í mjöööög djúpum tölvuleik þá getur hún sent Hammer e-mail og beðið hann að snúa lærinu í ofninum eða taka úr þvottavélinni því þau eru auðvitað alltaf on-line eins og allt önnum kafið nútímafólk er.
Aaarrrrggghhhhhh!!!!!! Þetta hefur fólk upp úr því að vera með stílista frá helvíti!!

föstudagur, maí 06, 2005
Haldiði ekki að ég bara skellt mér í kröfugöngu á 1. maí. Ja, eða svona næst um því. Gangan var að vísu búin og allir komnir niður á Ingólfstorg þegar ég mæti og ætla að fara að krefjast hærri launa, styttri vinnuviku og fleiri frídaga því hver nennir að eyða bestu árum ævinnar í það að hanga í leiðinlegri vinnu 8 tíma á dag 5 daga vikunnar með leiðinlegu fólki að gera leiðinlega hluti? Ég hef aldrei fyrr mætt í svona göngu þannig að ég bjóst við að sjá reyða verkamenn með hnefann á lofti syngjandi baráttusöngva og veifandi rauðum fánum og spjöldum með slagorðum gegn arðræningu kapítalismans. En hvað sé ég? Jú, þarna voru anarkistar og femínistar að vekja á sér athygli og hópur frá Sólheimum eða álíka stofnun í bæjarferð skemmti sér alveg konunglega og einn tók sig m.a.s til og fór að stjórna lúðrasveitinni. Restin var miðaldra fjölskyldufólk á sunnudagsrúntinum sem keypti sér svo ís og keyrði að því loknu út í úthverfið sitt á Pajero jeppanum sínum og beið eftir að sjá sjálft sig í sjónvarpsfréttunum.
Ég held bara að það séu engir verkamenn eftir á Íslandi, þ.e innfæddir verkamenn. Við erum löngu hætt að láta bjóða okkur að vinna subbuvinnu eins og í fiski, við viljum öll bara vera á huggulegum skrifstofum fyrir framan tölvur að gera eitthvað voðalega gáfulegt. Að vera úti í kulda og slabbi að naglhreinsa timbur er líka langt fyrir neðan okkar virðingu auk þess sem byggingaverktakar eru glæpamenn og svikarar upp til hópa og eru Impregilo ókrýndir kóngar í þeim efnum þangað sem íslensku skúrkarnir sækja sínar fyrirmyndir. Að skúra gólf og þrífa annara manna skít er líka alveg síðasta sort sem enginn íslendingur með vott af sjálfsvirðingu lætur bjóða sér eða þá að vinna á sjúkrahúsi eða elliheimili...jedúddamía! En við höfum fundið lausnina eins og aðrar vestrænar þjóðir og hún er einföld. Útlendingar. Fólk sem er nógu gott til að vinna skítavinnu á skítalaunum og kvartar ekki svo við hin innfæddu getum spígsporað um í drögtunum okkar og sérsaumuðu jakkafötunum og talað um hagvöxt, vísitölur og rekstrarhagnað. Þeir sem komast ekki í vel launað skrifstofudjobb eru bara lúserar og endar sem öryrkjar í Fellahverfinu. Að vera lúser er víst metið til 75% örorku og að vera félagsmálaróni er 100% örorka. Svo situr allt þetta lið heima hjá sér í félagslegu íbúðunum sem því eru skaffaðar og dælir ritalíni í krakkana því það nennir ekki að fá þá til að gegna og vorkennir sjálfu sér fyrir að vera svona miklir öryrkjar. Það er greinilegt að ég þyrfti að vera félagsmálastjóri til að kippa þessi í liðinn.
Nú fer væntanlega að líða að því að stúdentar þessa lands klári prófin sín og skili ritgerðunum sínum og geti farið að lifa nokkurnvegin eðlilegu lífi aftur. Móðir Jörð og Forskaren eru víst báðar komnar með bókaför í andlitið og með nagaða blýanta í báðum munnvikum (það er nefnilega þægilegra að naga blýanta en lyklaborð), hárið allt úfið og baugar á stærð við svefnpoka undir augunum. Forskaren hefur skrifað mjög lærða stúdíu um Playgirl og Móðir Jörð svipt hulunni af leyndardómnum um höfund Andrésar Andar og hugsanlegra fyrirmynda Bjarnabófanna í 300 blaðsíðna ritgerð. Við hin sem lifum þessu áhyggjulausa lífi og höngum á kaffihúsum og lesum glanstímarit vonum að flestir komi heilir út úr þessu havaríi.
Dæmigerður íbúi í Fellahverfinu á leið á hverfispöbbinn