<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

mánudagur, júní 27, 2005

Þeir töpuðu aftur!!!!Bwaahhaaahahahahaaaa!!! Þetta hallæris KR lið sem heldur að það sé Real Madrid og er með montnustu og leiðinlegustu stuðningsmenn í heimi, (fyrir utan Man. Utd.) svona karaktera sem halda að það sé svaka fínt og hip og kúl að halda með KR, og svo eru þeir rasskelltir á berann bossann af Val. Skyndilega er ég farin að hafa áhuga á íslenskum fótbolta sem mér hefur til þessa þótt álíka áhugaverður og íslandsmótið í pönnukökubakstri eða kúluspili. Og ekki skemmir að Valsmenn eru farnir að vera í svona voðalega huggulegum aðsniðnum treyjum italian style og mættu fleiri lið taka sér það til eftirbreytni. Eini ókosturinn er að stuðningsmennirnir fara að ganga í eins fatnaði en hafa kanski ekki allir vöxtinn í það og það er ekkert sérstaklega sexy að sjá fulla stúku af köllum með bjórvömbina hangandi undan treyjunni og björgunarhring sem sést alla leið úr Sundahöfn og brjóstkassann lafandi niður á nafla. En meðan KR heldur áfram að tapa er mér skemmt. Næst verða þeir teknir í bakaríið af Hvöt á Blönduósi...old boys.

Kraftaverkin gerast enn. Forskaren fann riddarann á hvíta hestinum! Eða það heldur hún alla vega. Ég vona að hún hafi munað að leggja fyrir hann spurningalistann og persónuleikaprófið og sé ekki að ana út í einhverja vitleysu og komast svo að því seint og um síðir að hann sé kynskiptingur frá Bíldudal sem heitir Guðríður og á 3 börn af fyrra hjónabandi, borðar tvíbökur í rúminu, kreistir tannkremstúbuna í miðjunni, sefur í sokkunum og hefur óstjórnlegan áhuga á bútasaum. Það er of seint að byrgja barnið þegar brunnurinn er dottinn ofan á það. Auk þess er hætt við því að þegar fólk er í einhverri ástarvímu þá sé skynsemin víðs fjarri og það fari að taka furðulegustu ákvarðanir eins og að fara að hlusta á Michael Bolton, horfa á Brúðkaupsþáttinn Já, kaupa efnisminnstu pjötlurnar úr Victoria´s Secret eða lesa allar Rauðu ástarsögurnar og hugsa "þetta er alveg eins og hjá mér".

Þá fer að líða að innflutningspartýinu mikla hjá Hammer og Tensai San og ég vænti þess að það sé búið að panta snitturnar og kaupa kampavínið og 120 l. bjórtunnan sé komin í hús. Ég heyrði það utan að mér að Tensai San hefði fundið alla herðapúðajakkana sína og bleiku legghlífarnar í flutningunum og ætli að mæta galvösk á Duran Duran á fimmtudaginn og að hún sé með ALLAR Duran Duran plöturnar í iPodinum og syngi hástöfum með Union of the snake og fleiri ódauðlegum meistaraverkum. Það fer reyndar litlum sögum af því hvað Hammer finnst en hann er víst búinn að vera voða lítið heima upp á síðkastið, alltaf eitthvað að útrétta og svona og mikið að gera í vinnunni. Ég er aftur á móti búin að finna spandexbuxur og leðurgrifflur og er að leita að rauðum leðurjakka með kögri enda verður maður að vera rétt dressaður þegar Wig Wam koma og trylla lýðinn á laugardagskvöldið. Ég er löngu farin að telja niður dagana
COME ON COME ON COME ON!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
|

sunnudagur, júní 19, 2005

Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið hin fínasta helgi. Og þriggja daga helgi í þokkabót. Þegar ég verð forsætisráðherra ætla ég að innleiða fjögurra daga vinnuviku, það er bara alveg passlegt finnst mér. Nú fær Kevin Turvey sjokk og getur hreinlega ekki skilið að fólk vilji ekki vera í vinnunni frá febrúar og fram í maí, stanslaust. Nei minn kæri, ég held að flestir séu bara ánægðir með að gera eitthvað allt annað eins og t.d að kíkja í kaffi til vina og kunningaj! Ég fór t.d í þessa fínu grillveislu á laugardaginn til Monopoly og milli þess að háma í sig heilsteiktan grís á teini og súpa á rauðvíni með þá voru heimspeki og trúarbrögð krufin til mergjar af okkur ásamt Tensai san og Forskaren. Og tók það ekki nema svona hálftíma. Pís of keik.
Reyndar verður að viðurkennast að Forskaren er í eitthvað annarlegu ástandi þessa dagana. Hún svífur um á bleiku skýi babbladi eitthvað á spænsku og ákallar Amor í gríð og erg. Er líka samkvæmt áreiðanlegum heimildum búin að panta bílfarm af vörum úr Victoria´s Secret (og þá er ég ekki að tala um flíspeysur og lúffur). Og hún hefur ekki heyrst muldra "men are pigs" í meira en viku! En þar sem ég hef nú farið til Spánar þá get ég nú bent henni á nokkra frasa sem gott er að kunna og geta reynst vel í samskiptum við hitt kynið eins og "Dónde hay un hotel barato?" eða "Quisiera una cama" eða þá "Estoy buscando la iglesia" og svo í beinu framhaldi af því "Quisiera una bambino" (smá ítölsk sletta þarna í lokin) þar sem maðurinn er væntanlega kaþólskur. Já hvað gerir maður ekki til að aðstoða vini sína.

Ég er farin að sjá það að ég læri ekkert af reynslunni. Hversu oft er ég búin að lenda í því að fara niður í bæ á dögum eins og 17. júní og sleppa við illan leik heim aftur undan barnavagnafólkinu? En havað gerði ég á 17. júní? Jú, ég álpaðist í bæinn. Og eftir að hafa fengið 18 blöðrur á stærð við sjávarspendýr í andlitið , kandífloss í hárið og 10 barnavagna í kálfana þá sá ég mitt óvænna og fann friðsælt tún og lagði mig þar meðan mestu ósköpin dundu yfir og reyndi að heyra ekki í Nylon sem jörmuðu í bakgrunni. Hvað er það annars sem barnavagnafólkið gerir á þessum dögum þegar það hættir sér út úr úthverfinu sínu? Lætur selja sér rándýrar óætar pulsur, fána og blöðrur á okurprís sem er svo hent strax næsta dag og krökkunum sælgæti í hjólböruvís þar til þau verða alveg tjúlluð. Þegar það svo loksins kemst heim til sín eftir 2 tíma í umferðarhnút á leiðinni (það heldur að strætó sé bara fyrir gamalt fólk og öryrkja) eru börnin orðin tryllt af sykuráti og foreldrarnir að fara yfirum á taugum. Æði!

Hvað er það eiginlega að einhver gaur sem sullar smá súrmjólk yfir nokkra jakkafatakalla og kellingar á tilgangslausri snobbráðstefnu á aðal snobbhóteli bæjarins sé dæmdur í gæsluvarðhald fyrir "glæpinn" meðan barnaperri sem var með heilt hús fullt af tölvum stútfullum af barnaklámi labbar út af löggustöðinni eftir að hafa líklega bara sagt "sorry maður, ætlaði ekki að gera þetta"? Er þetta eitthvað sem okkur á bara að finnast eðlilegt? Að Súrmjólkurmaðurinn ógurlegi sé svona stórhættulegur að það verði takk fyrir að geyma hann bak við lás og slá og láta lögguna vakta ráðstefnuna 24/7 svo fína álfólkið geti drukkið sig fullt í friði. Hvað ætli allir þessir dönnuðu útlendingar haldi annars um okkur? Ekki viljum við fá slæmt umtal í útlöndum, skítt með þessa krakka. Þetta voru örugglega líka allt saman stelpur í allt of stuttum pilsum og strákar á stuttbuxum og með bera leggi þannig að þau buðu bara upp á þetta. Og svo var perrinn búinn að segja sorry. Þessi Súrmjólkurfantur er líka örugglega að flytja inn dóp og það er meira áríðandi að loka svoleiðis fólk inni fyrir lífstíð heldur en menn sem iðrast gjörða sinna (ég biði ekki í það ef hann hefði líka verið nappaður við að svíkja undan skatti, þá hefði hann verið afhausaður á staðnum). Björn Bjarnason er svo sannarlega á réttri leið í Dómsmálaráðuneytinu. Um að gera að kjósa hann aftur næst.
|

þriðjudagur, júní 14, 2005

Já það er nú blessuð blíðan þessa dagana og þetta lýtur bara vel út eða þar til fera ð snjóa á 17. júní. Einhvernvegin finnst mér alltaf hafa verið skítaveður þennan dag. Sé fyrir mér skemmtiatriði í Lækjargötu að fjúka út í veður og vind í rigningu og roki og hitastigið rétt yfir frostmarki. Þeir fáu sem láta sig hafa það að vera utandyra eru annað hvort fullir unglingar, fullir sjóarar, rónar bæjrins að safna saman leyfunum úr bjórflöskunum og einstaka útlendingur með hordropa hangandi úr nefinu og skjálfandi úr kulda ennþá að velta fyrir sér af hverju hann fór ekki til Bahamas.
Ég vænti þess að einhverjir reyni þó að sletta úr klaufunum um helgina þar sem hún er í lengra lagi. Hver veit nema áhugaverðir ungir menn af framandi þjóðerni verði að spóka sig í bænum og Forskaren gæti notað tækifærið og æft að halda fyrir lestara um gríska harmleiku á erlendum tungumálum. Þá á ég við meira svona einkafyrirlestra heldur en að hún komi sér fyrir á fjólförnum stað og hefji upp raust sína vegfarendum til fróðleiks og skemmtunar. Ég hef það m.a.s fyrir satt að Monopoly ætli út á galeiðuna sem í hennar tilfelli er þá að fara á bókasafnið síðdegis, fá sér rauðvínsglas með kvöldmatnum, kíkja á Ömmukaffi um kvöldið og vera komin heim fyrir 11. Ég treysti því að Londonía sem verður með í för geti beitt einhverjum brögðum til að þetta verði nú ekki alveg svona pathetic.

Ég sat á Thorvaldsen í hádeginu einn daginn í síðustu viku og var í mestu makindum að fá mér hádegismat þegar inn vinda sér nokkrir jakkafataklæddir ungir menn og tala mjög fjálglega um samninga, vísitölur og gengisþróun. Greinilega að vinna í einhverjum af bönkunum í nágrenninu. Svo gengur þar framhjá einn af gestunum á Kaffi Austurstræti og er hálf svona slappur og sjúskaður og örlítið reikull í spori með skrámu á enninu og er bara þarna á gangi fyrir utan og þannig séð ekki fyrir neinum. En ungu jakkafatadrengirnir sáu þó ásæðu til að pirra sig óskaplega yfir "öllum þessum rónum allsstaðar" með viðeigandi fyrirlitningartón í röddinni og hneiksluðust óskaplega á því að "feita lessan í Ráðhúsinu" nákvæmlega eins og einn þeirra orðaði það, og uppskar hlátur félaga sinna, gerði ekkert í þessu. Sko, það eru nú takmörk fyrir því hvað er hægt að vera dónalegur og fordómafullur. Aldrei myndi ég t.d segja "krullaði, valdasjúki hrokagikkurinn með trúðseyrun og svínsnefið" þegar ég tala um Davíð Oddsson. Og talandi um pólitíkusa þá er Halldór Ásgrímsson greinilega búinn að læra margt gagnlegt í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. Nær að selja gömlu SÍS félögunum banka á spottprís og ekki bara það heldur stórgræðir sjálfur ásamt familíunni á öllu saman. Hann fær að ákveða hver fær hvað, hvernig, hvenær og fyrir hvað þar sem Davíð fékk að úthluta hinum bankanum og fór létt með það þó hann hafi verið með einhverja flensu þarna einn daginn. Svo ætla einhver möppudýr að fara að rannsaka þetta eitthvað nánar þá er væntanlega bara hringt eitt símtal og taktíkin hans Davíðs notuð og viðkomandi manni gert stuttlega grein fyrir því að ef hann hafi sig ekki hægan þá verði stofnunin hans lögð niður eða a.m.k djobbið hans eða þá allt batteríið flutt á Þórshöfn á Langanesi.

Þó að ég nenni ekki mikið að fylgjast með íþróttum þá finnst mér alltaf jafn fyndið þegar KR gengur illa í fótbolta. Það hreinlega hlakkar í mér þegar þeir tapa leik. Ég kalla það m.a.s ekki illkvittni heldur meira svona "gott á ykkur montrassarnir ykkar" með eitthvað KR blað og KR útvarp og hver veit hvað og fannst mér það koma sérstaklega vel á vondan þegar Gísli Marteinn var fenginn til að lýsa einhverjum tapleiknum í þessu hallærislega KR útvarpi. Ég er komin með rétta djobbið handa Gísla Marteini, þar sem Vilhjálmir þarna borgarfulltrúi verður gerður að útvarpsstjóra til að reyna að hressa upp á borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins þá er tilvalið að Gísli Marteinn verði útvarpsstjóri KR útvarpsins. Það er meira eitthvað á hans plani. Ég þykist vita að Kevin Turvey hefur ákveðnar skoðanir á íþróttum en er væntanlega upptekinn við að fylgjast með Breiðholtsmóti öldunga í nútímafimleikum með sippubandi. Og eitt enn, hvað er það að vera með tveggja tíma íþróttaþátt á rokkútvarpsstöð á besta tíma dagsins? Hverjum er ekki sama hvað Valtý Birni finnst?! Og hver nennir að hlusta á viðtöl við Gulla Jóns varamann hjá old boys í blaki hjá Þrótti á Neskaupstað? (Nema kannski Kevin Turvey sem situr spenntur við útvarpið). Burt með íþróttabölið!!

Og að lokum vil ég minna alla á að mæta á tónleika ársins þann 2. júlí þegar glamtöffararnir í Wig Wam koma og sanna að karlmenn geta notað varalit og augnskugga og samt verið cool. Upp með spandexbuxurnar!
|

laugardagur, júní 04, 2005

Það er búin að vera einhver tölvuleti í gangi núna undanfarið. Ég er auðvitað orðin svo mikil útivistarmanneskja og náttúrubarn að ég hef bara ekki tíma til að hanga fyrir framan tölvuskjá. Ég vil frekar vera úti í óspillti náttúrunni og anda að mér blómaangan og hlusta á fuglana syngja og lækina niða.
Um síðustu helgi fór ég í sveitaferð til að upplifa kyrrðina og komast í snertingu við bóndann í sjálfri mér. Kirkjubæjarklaustur varð fyrir valinu og haldið af stað úr bænum á föstudegi. Eftir góðan nætursvefn í afskaplega huggulegri bændagistingu gekk maður út á hlað við fyrsta hanagal og horfði á lömbin hlaupa um tún og hamingjusamar kýr á beit í iðagrænum brekkum. Alveg eins og í Milka súkkulaðiauglýsingu! Svo teygði maður vel úr sér og borðaði hafragraut og slátur í morgunmat og var stálsleginn fyrir daginn. Reyndar voru nokkur mótorhjól með í ferðinni en ekkert sem orð er á gerandi, strákarnir verða jú aðeins að fá að leika sér, eins og við vitum þá virðast þeir aldrei vaxa upp úr því. Ég er enn að bíða eftir að Monopoly bjóði mér með sér á Þingvelli, Gullfoss og Geysi meðan ég er á þessu náttúrutrippi mínu.

Það fór þó aldrei svo að Móðir Jörð næði ekki að klára þessa blessuðu ritgerð sína áður en hún færi alveg yfirum. Og haldiði ekki að hún hafi bara fengið þessa glimrandi fínu einkunn. Eini gallinn er sá að nú vill hún helst ekki tala um neitt annað og ættingjar hennar meiga eiga von á að fá ritgerðina innbundna sem jólagjöf í ár, áritaða. Það að hún sé farin í langþráð frí til Tyrklands er bara lognið á undan storminum því eflaust kemur hún tvíelfd til baka og gætir þess vandlega að ENGINN geti gleymt þessu masterpís sem (að hennar sögn) þessi ritgerð er. Gott ef Harper Collins ætlar að gefa hana út í viðhafnarútgáfu fyrir næstu jól og Steven Spelberg búinn að tryggja sér kvikmyndaréttinn. Heyrst hefur m.a.s að Mel Gibson og Nikole Kidman komi til með að leika í myndinni. Þetta verður þá svona sambland af Mad Max, Múlan Rús og ET.

Nú er fjörið að fara að byrja fyrir alvöru í tónleikabrjálæðinu mikla. Iron Maiden á þriðjudaginn og vænti ég að við eldra fólkið reynum að vera einhversstaðar saman til að reyna að koma í veg fyrir að vera troðin niður af óðum unglingum. Hammar og Tensai San verða þó kanski að reyna að pranga gömlum geisladiskum inn á saklausa tónleikagesti og miðað við það orðspor sem fer af sölumannshæfileikum Tensai San þá ætti Hammer auðveldlega að geta losað fyrirtækið við dót sem hefur ekki selst síðan fyrir jólin '92. T.d The Pan Pipes Orchestara play Modern Talking (Forskaren á að vísu eintak), Exist greatest hits, Lögreglukórinn syngur sjómannalög og safnplötu með dönskum júróvisjónlögum.
Til að toppa allt saman þá hefur Drýsil flokkurinn ákveðið að koma saman aftur og gleðaja gömul rokkhjörtu og hetjurnar í Wig Wam ætla að koma og sanna fyrir öllum að karlmenn geta enn gengið í spandexbuxum og túberað á sér hárið.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?