<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

mánudagur, júlí 25, 2005

Það fór þá ekki svo að það kæmi ekki smávegis sumar hérna á þessu skeri. Ég var farin að skoða ítölsku fasteignaauglýsingarnar, alveg búin að gefast upp á roki og rigningu og kvefi og hálsbólgu. Síðasta helgi var einmitt helgin sem ferðafélag BKBK ætlaði að efna til hópferðar norður í land að skoða bændur og búfénað og tína fífla og sóleyjar á grænum túnum hlaupandi um í rósóttum sumarkjólum. En nei, nei. Það var bara beilað á öllu saman. En útivistarfrömuðurinn ég lét nú ekki svoleiðis stoppa mig og skellti mér eftir sem áður í sveitina með mótorhjólakappanum ógurlega sem brunaði á Akureyri á laugardagsmorguninn til að geta æft sig í motocrossbrautinni þar í 2 tíma. Það er ýmislegt sem menn leggja á sig fyrir sportið. Svo var bara dólað í sveitina og verið þar í góðu yfirlæti hjá múttu fram á sunnudag þar sem voru kótelettur og silungur í matinn að sönnum sveitasið og margar sortir af kökum með kaffinu. Og þar var líka sól og 20 stiga hiti allan tímann en ekki þoka og rigning eins og í sumum öðrum landshlutum.
Þetta ferðalag var svo bara upphitun fyrir verslunarmannahelgina því á föstudaginn á aftur að bregða undir sig betri fætinum og skunda norður í land þar sem sólin skín og grasið grær, fuglar syngja og hamingjusamar kýr standa á beit við hvern sveitabæ. Til að ná mér aðeins niður eftir alla sveitarómantíkina ætla ég að fylgjast með eins og einni motocrosskeppni á Akureyri og sjá svo draugfulla unglinga ælandi og pissandi í görðum bæjarbúa á eftir. Þetta verður svona atferlisstúdía. Hvernig ofneysla áfengis getur gert fólk af fíflum á örskömmum tíma. Það verður svo inntakið í ransóknarverkefni mínu í atferlisfræði sem mun heita "People never learn" Við dannaða fólkið sem súpum bara pent á rauðvíni og kokteilum skiljum bara ekki svona vitleisisgang.

Eins og flestir vita nú þegar þá hefur orðið fjölgun í fjölskyldunni þar sem lítil brún kanína, sem var gefið nafnið James af þeim sem kom henni í fóstur, hefur bæst við heimilisdýrin. James sem sagt fannst illa til reika, blautur, skítugur og svangur og alveg grindhoraður ráfandi um uppi í Mosfellsbæ þar sem hundspott var að hræða úr honum líftóruna. Ungur maður sem átti leið þar hjá gat ekki horft upp á þetta og tók James með sér heim án þess að hafa hugmynd um hvað hann ætti svo að gera við hann þar sem þessi miskunsami samverji býr í pínulítilli leiguíbúð og er auk þess mjög lítið heima. James var því komið í fóstur hingað og eftir að hafa fengið bað og nóg að borða fór hann allur að braggast. Helmút var að vísu ekki sérlega hrifinn af samkeppninni og þjáðist til að byrja með af afbríðisemi á háu stigi.
En þetta er bara hálf sagan. Eftir nokkra daga fór ég að taka eftir því að James fór að haga sér eitthvað undarlega og á miðvikudaginn þegar ég kom heim úr vinnunni höfðu 10 kanínuungar litið dagsins ljós. Ég á sem sagt núna 12 kanínur! Einhver stakk upp á því að þarna væru komnar 10 gúrme máltíðir fyrir Alice en ég hef bara ekki hjarta í mér til að láta hana éta þessi litlu grei eftir að hafa séð þau vaxa og dafna. En ekki get ég haft 12 kanínur, svo mikið er víst þannig að eftir ca. 6-8 vikur verða ungarnir sendir í Dýraríkið sem kemur þeim vonandi á góð heimili. Ég veit að Helmút getur ekki beðið því eftir að ungarnir fæddust er þaðJames sem ræður ríkjum á baðinu og Helmút greiið er bara bitinn í rassinn ef hann er eitthvað að þvælast fyrir. Og nei, ég þarf ekki að hafa áhyggjur af að það fæðist aðrir 10 ungar eftir nokkrar vikur því Helmút er líka kvenkyns.

Að lokum eru það svo nýjustu fréttir af KR sem hafa fengið Bjarna Fel. til að taka aftur fram skóna og eru þess fullvissir að það á eftir að styrkja framlínu liðsins mikið í fallbaráttunni. Einnig hefur verið fenginn afrískur seiðkarl í vesturbæinn til að galdra fram betra gengi. Mun hann sjóða galdraseyði sem leikmenn eiga að drekka til að auka þeim orku og áræðni sem m.a inniheldur hrafnsrassa, flugufætur, mistilteina, hákarlaeistu, fíflamjólk og froskaeyru bragðbætt með balsamicediki. Ef það dugar ekki til þá hefur verið fenginn galdramaður af vestfjörðum til að vekja upp draug til að senda andstæðingunum fyrir leiki. Hann mun svo ganga undir nafninu vesturbæjarmóri og mun ráfa um vesturbæinn í 100 ár syngjandi KR lagið.
|

mánudagur, júlí 11, 2005

Það er ekki annað hægt að segja en að Hammer og Tensai San hafi fundið hið huggulegasta slot þarna í vesturbænum. Bara verst að þegar þau eru búin að koma fyrir öllum bókunum, DVD myndunum, diskunum og plötunum þurfa þau örugglega að leigja herbergi úti í bæ fyrir sjálfa sig. En þar sem það var bara búið að raða upp einhverju smotteríi af DVD diskum þarna á laugardaginn þá gátu gestir í innflutningshófinu komið sér nokkuð vel fyrir. Eins og við var að búast var það hin besta skemmtun þó svo að enginn legði í að smakka á eplasnafsinum dularfulla. Það voru heldur engir grænir kokteilar á boðstólum þannig að húsráðendur sluppu við það að húsfrúin úr Vogunum fengi sér blund hjá þeim sökum óútskýrðrar þreytu og slappleika sem hellist skyndilega yfir hana þegar kokteila ber á góma. Kanski heldur ekki alveg bestu aðstæðurnar til þess enn sem komið er þar sem kirkjubekkirnir úr Strandakirkju eru notaðir sem stofusófar. En mér skilst að lime græna chesterfield sófasettið með áföstu bonsai tré, einkageisu og tedrykkjuáhöldum í stíl sem Tensai San pantaði upp úr japönskum vörulista sé rétt ókomið.Hún kannaðist reyndar ekkert við að hafa séð um að þessi geisa fylgdi líka með þegar hún var að panta en Hammer var alveg handviss.

Rosalega er ég orðin leið á þessum Idol liði sem hamast við að gefa út hverja karókí plötuna á eftir annari. Er ekki búið að gera alveg nógu margar útgáfur af einhverjum Bítlalögum og Sálarlögum? Hver er tilgangurinn með því að taka One nákvæmlega eins og U2 nema mörgum klössum neðar í gæðum? Og til hvers að gefa út The sound of silence þegar það hljómar eins og Art Garfunkel í mútum að syngja í barnaafmæli eftir að vera nýkominn úr botnlangauppskurði? Og ekki nóg með að þeir sem lentu í 1. eða 2. sæti séu að láta reyna á þolrifin í áhugafólki um tónlist heldur eru farnir að dúkka upp keppendur sem duttu út í 68 manna úrslitum á Reyðarfirði með sínar einstöku útgáfur af Yesterday, You´ve lost that loving feeling og Are you lonesome tonight. Karókíkóngur Íslands, Páll Rósinkrans er þó farinn að fá einhverja samkeppni um hylli eldri kvenna. Svo er þessi óáran farin að breiðast út eins og krabbamein. Þannig gáfu Paparnir út hræðilega Bubba coverplötu í fyrra og óbjóður númer eitt, Á móti sól tóku sig til og rústuðu ekki bara 12 heldur 24 íslenskum sveitaballalögum sem maður hélt á sínum tíma að mörg hver væri ekki hægt að gera verri. Var Traustur vinur og Stolt siglir fleyið mitt ekki nógu vont fyrir? En þeir geta þetta strákarnir. Það furðulegaste við þetta er svo að þetta selst í þúsundum eintaka. Getur einhver sagt mér hvaða fólk þetta er eiginlega sem kaupir þetta rusl? Er endalaust mikið til af fólki í Fellahverfinu sem eru þeir einu sem ég get ímyndað mér að hafi svona fágaðan tónlistarsmekk? Ekki það að það er örugglega rífandi stemming í góðu partýi á þriðjudagseftirmiðdegi þegar 15 ára á föstu er skellt á fóninn
og ég tala nú ekki um þegar nýbúið er að borga út örorkubæturnar og heilu blokkirnar eru í gargandi stuði

Ég er gjörsamlega hætt að botna í þessum gatnaframkvæmdum hérna í borginni. Reykjavík er að verða eins og Los Angeles, ekkert nema mislæg gatnamót, slaufur, brýr og bílastæði. Ég kynntist þessum umferðarmonsterum af eigin raun um daginn þegar ég fékk bílfar með Monopoly vestur í bæ sem hingað til hefur bara tekið nokkrar mínútur og ekki verið mjög svo flókin aðgerð. En það er nú orðið öðru nær. Eftir að hafa lent inni í einni slaufunni og farið upp og niður mislæg gatnamót, undir og yfir brýr í allar áttir en samt alltaf endað á sama stað var okkur hætt að lítast á blikuna. Fengu allir verkfræðingarnir sem vinna hjá Vegagerðinni að hanna slaufur þetta árið? Var það svona jólabónus? Ein slaufa á mann fyrir vel unnin störf? Reyndar er ég nokkuð ánægð með breytinguna hjá Hlemmi þar sem umferðin hefur snarminnkað og maður á ekki lengur á hættu að fá 17 ára ökuníðing á Audi Quatro inn í fordtofu hjá sér. En skýringin er sjálfsagt sú að allir eru lost í einhverjum slaufum og gatnamótum út um allan bæ. Og hvernig er með alla þessa jeppa sem fólk kaupir sér á fleiri milljónir til að skjótast á milli úthverfa? Ég hef ekki orðið vör við að ástand vega innanbæjar sé svo bágborið að það þurfa að vera bæði Pajero og Hi-lux á hverju heimili. En það er nú gott að hafa jeppa til að fara í bústaðinn, segir fólk kanski. Já einmitt! Alla leið upp í Borgarfjörð þar sem er malbikað upp að hverjum dúfnakofa? I don´t think so! Þetta er bruðl sem ætti að uppræta og ætti t.d að leggja sérstakan bruðlskatt á alla sem eiga jeppa. Annað eins er nú skattlagt. Hvar er Geir Haarde núna þegar hann gæti verið að gera eitthvað af viti?
|

mánudagur, júlí 04, 2005

Þá hefur það verið staðfest og öllum gert ljóst: Wig Wam er besta hljómsveit í heimi!!!!!! Og þó að Forskaren og Kokksi (sem by the way virðist vera er horfin í faðm einhvers myndarlegs bóndasonar á Willysjeppa) hefi fengið gráa fiðringinn þarna á Duran Duran og séu búnar að draga fram gömlu Simon la Bon plakötin og herðapúðajakkana þá eru þeir bara aumingjalegar snyrtibuddur miðað við Wig Wam. Við erum að tala um ferðatöskusett skal ég segja ykkur...nei, höfum það járnbent koffort. Og þeir sem beiluðu á þessu eiga eftir að naga handarbökin upp að öxl því í komandi framtíð þegar fólk fer að ryfja upp merkustu atburði lífs síns þá mun vera álíka merkilegt að hafa séð Wig Wam á Gauknum og að hafa verið á Woodstock eða séð Bítlana í Cavern klúbbnum eða Elvis á sveitaballi í Memphis.
Forskaren mætti þarna með deitið upp á arminn og hætti ekki að brosa allt kvöldið. Reyndar létu turtildúfurnar sig hverfa úr mannþrönginni á miðjum concert og báru við ofnæmi fyrir reykingum og svitalykt en ég hef grun um að þau hafi laumast á afvikinn stað til að haldast í hendur og horfast í auga það sem eftir var kvöldsins og farið svo í rómantíska gönguferð í fjörunni við sólarupprás. Allt í slow motion auðvitað.

Ég afkastaði reyndar alveg heilmiklu þessa helgi. Fór í sveitina til múttu á föstudaginn, á mótorhjólakeppni á Blönduósi á laugardaginn, Wig Wam um kvöldið og var svo með voðalega huggulegt sunnudagskaffi þar sem Forskaren og Tensai San mættu ásamt Monopoly og mini Monopoly. Meiningin er að skreppa í sveitaferð einhverja helgina og þurfti að skipuleggja það allt saman frá a-ö. Maður anar ekki bara eitthvað út á land og er ekki búinn að skipuleggja neitt. Það þarf að kaupa nesti og bjór og rauðvín með nestinu og....já, meira þótti nú ekki ástæða til að skipuleggja. Tensai san þarf líka að vinna sig upp í það að telja í sig kjark til að feisa kýr með vígtennur og aðrar manndrápsskepnur sem að hennar sögn leika lausum hala í sveitum landsins.
Monopoly hafði gert sér vonir um að fá að berja The Spanish Fly augum og var búin að taka saman mjög ýtarlegan spurningalista og 18 blaðsíðna persónuleikapróf til að ganga úr skugga um hvort hann væri worthy on svo mætti Forskaren ekkert með gripinn með sér. Og Monopoly sem hafði brotist úr öðru hverfi í roki og slagveðri til að berja dýrðina augum. En það breytti því ekki að pönnukökurnar runnu ljúflega niður. Svo getur maður strax farið að hlakka til næstu helgar þegar Tensai San og Hammer halda innflutningspartý aldarinnar. Ég átti leið þarna framhjá um daginn og mér sýndist flutningabíll frá Ölgerðinni vera þarna fyrir utan og menn að bera inn bjórkassa. Svo vita allir að Hammer er með margar skúffur fullar af mis göróttum drykkjum og skilst mér að það hafi komið í leitirnar í flutningunum vodkaflaska sem var keypt á Donington ´84.

Ég verð að viðurkenna að ég er farin að sakna sveitafólksins hérna á blogginu. Það rætist vonandi eitthvað úr því þar sem Móðir Jörð er komin heim úr fríinu í Tyrklandi, væntanlega eins og ristuð brauðsneið á litin og vonandi úthvíld. Ja nema að hún hafi ekkert getað slappað af þar sem hún hafi haft áhyggjur af að hitta Halim Al eða Osama bin Laden á hverju horni og því ekki óhætt að hleypa börnunum eftirlitslausum ít í garð sem by the way er víggyrtur með krókódílasíki í kring en maður veit aldrei hvað þessum aröbum dettur í hug að gera. Já og svo eru það öll skordýrin og eiturslöngurnar. Jedúddamía! Aumingja börnin gætu verið bitin af tarantúlu eða gleipt í heilu lagi af 8 metra löngum Python og var ekki líka einhver búinn að tala um að það væru fjallaljón á þessum slóðum!? Og ætli sé óhætt að borða matinn? Þetta er örugglega allt af heimaslátruðu og grænmetið löðrandi í skordýraeitri og svo þvær fólk sér ekki um hendurnar þegar það er búið að gera stykkin sín og gott ef margir nota ekki einu sinni klósettpappír heldur laufblöð. Og hvað ef er ekkert laufblað við hendina akkúrat þegar þarf að gera númer tvö!? Aaarrrggggghhhhhhhh!!!!
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?