Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
mánudagur, ágúst 29, 2005
Við Monopoly ákváðum á föstudaginn að vera ekkert lengur að púkka upp á þetta lið sem maður þekkir og héldum kaffi- og kruðirískvöld fyrir okkur sjálfar (það var orðið allt of langt síðan maður gat afsakað sætindaát með því að það væru jú gestir). Til að gæta alls jafnræðis þá voru látin boð út ganga að þetta stæði til og okkur til mikillar ánægju sá húsfrúin úr Vogunum sér fært að mæta og tók m.a.s með sér nýjan meðlim í kruðirís- og slúðurfélagið þar sem aðrir virðast hafa fullt af öðrum hnöppum að hneppa eða þá búa í öðrum landshlutum þar sem samkvæmi eru ákveðin með þriggja vikna fyrirvara. En það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi eins og maðurinn sagði. Thanks for nothing!
Það er þó ánægjulegar fréttir að Forskaren hefur látið heyra frá sér aftur eftir langa þögn (eitthvað sem maður á ekki að venjast á þeim bænum). Hún er víst farin að stunda Kick box og Rómverska glímu á fullu þar sem hennar íðilfagri og gjörsamlega ómótstæðilegi hunk virðist laða að sér annað kvenfólk eins og opnunartilboð í raftækjabúð. Hver getur svo sem staðist mann með fortíð og er að komast á eftirlaun þannig að ekki þarf að hafa áhyggjur af að hann eyði heilu og hálfu sólarhringunum í vinnunni? Það er ástæða fyrir því að dýrustu húsgögnin eru í antíkbúðunum. Fólk vill hluti með sögu. Svo er hann bæði með sitt eigið hár og tennur og getur lesið á gigtarlyfjaumbúðir án þess að nota gleraugu. Hún þarf því að verja sitt með kjafti og klóm og lætur það ekki eftir sér að hjóla í Úkraínska Evrópumeistarann í bekkpressu kvenna hérna um daginn þar sem Forska þótti konan sú vera að færa sig heldur mikið upp á skaftir. Já konur biðja ekki ókunnuga karlmenn um að rétta sér saltið á veitingastað nema eitthvað miður siðsamlegt búi þar undir. Forski var reyndar með glóðarauga á báðum og sprungna vör á eftir en eins og segir í kvæðinu "stand by your man".
Mér varð það á um daginn að fletta slúðurpésanum DV (það var algerlega óvart, ég hélt ég væri að lesa Lögbirtingarblaðið) og haldiði ekki að ég hafi rekið augun í mynd af íþróttaálfinum ógurlega Kevin Turvey þar sem hann var að tjá sig um vesturbæjarmótið í pokahlaupi og skella fram heitasta slúðrinu úr skautadansinum. Var hann hinn vígalegasti á að líta í Hells Angels gallanum og með marghleypuna á öxlinni. Þetta er kanski standard viðbúnaður þarna á DV þar sem alltaf má eiga von á bálreiðum forsíðuviðfangsefnum blaðsins að leiðrétta eitt og annað sem var kanski ekki alveg sannleikanum samkvæmt. Maður er nú bara hálf smeikur við að bjóða honum í vöfflur. Hvað ætli nágrannarnir haldi? Ég sem er ekki þekkt fyrir annað en að vera fyrirmyndarnágranni sem aldrei er nokkrum manni til ama og trufla aldrei neinn með hávaða og partýlátum enda engin ástæða að spila Michael Bolton eða Kenny G. í einhverjum hvínandi botni og þetta fólk sem maður þekkir er hvort sem er allt orðið það gamalt og þreytt að það er farið að geispa um 10 leitið ef það þá hefur sig í að standa upp úr sófanum og kíkja í heimsókn og allir eru farnir heim og háttaðir undir sæng fyrir miðnætti
Þá hefur uppáhald okkar allra, krúsídúllan hann Gísli Marteinn ákveðið að hann langi til að vera næsti borgarstjóri í Reykjavík. Helstu baráttumálin eru að koma upp Tívólíi á Austurvelli og bjóða upp á ókeypis candyfloss, að löngu frímínúturnar verði lengri, að stærðfræðikennsla verði lögð niður, að allar opinberar byggingar verði málaðar bláar og að öllum verði gert skylt að ganga með blá hanska. Einnig að öllu gömlu fólki verði séð fyrir ókeypis fölskum tönnum. Hann kynnti framboð sitt á Grænuborg í gær og bauð upp á pylsur handa öllum að því tilefni. Hér er ungur maður með hugsjónir og markmið og vilja til að brúa kynslóðabilið
Borgarstjóraefnið á framboðsfundi
|

þriðjudagur, ágúst 23, 2005
Ég get ekki sagt annað en að ég hafi átt hina fínustu menningarnótt- og dag. Var komin í bæinn við fyrsta hanagal (sem er um kl. 2, þetta er morgunsvæfur hani) með myndavélina á lofti ef ég skildi rekast á eitthvað mjög myndrænt. Það var múgur og margmenni eins og lög gera ráð fyrir en ég fór út með því hugarfari að láta ekkert raska minni stóísku ró og alls ekki að láta tillitslaust baranavagnafólk fara í taugarnar á mér. Ég stóð mig m.a.s að því að vera í slagtogi með títtnefndu barnavagnafólki þar sem ég hitti Monopoly ásamt mini Monopoly á menningarröltinu. reyndar passaði ég mig á því að standa hinu megin við götuna með "ég þekki ekki þessa konu" svip þegar óumflýjanlegir fylgifiskar barnavagnafólks, þ.e öskrandi og grenjandi börn, fóru að láta verulega á sér bera og mini Monopoly hóf að þenja raddböndin. Reyndar uppgötvaði ég pottþétta aðferð til að losna undan ágangi (í orðsins fyllstu merkingu) barnavagnafólksins á svona samkomum. Maður einfaldlega leitar uppi einhverja háværa rokkhljómsveit og viti menn, ekki einn einasti barnavagn nálægur. þannig gengur maður bara milli hljómsveita og kemur tiltölulega ómarinn og lemstraður út úr þessu öllu. Málið með 17. júní er að það eru allt of fáar hávaðasamar rokkhljómsveitir og allt of margir brúðubílar þar þannig að þá er beinlínis stórvarasmt að vera á ferli.
Ég hef verið að reyna að hóa saman nokkrum kerlingum í kaffi og kruðirí undanfarið og er skemmst frá því að segja að það hefur engan árangur borið. Það er örugglega auðveldara að koma á friði í mið-austurlöndum og fá Davíð Oddsson til að segja eitthavð fallegt um Jón Ásgeir. Þetta verkefni er ég farin að kalla Mission impossible og sé ég fyrir mér að þriðja myndin (eða hvað þær eru nú margar) í samnefndum myndaflokki verður byggð á þessu. Tom Cruse leikur þá mann sem reynir að fá 6 vini sína til að koma eitt kvöld og spila póker og drekka bjór (það gengur einfaldlega ekki að láta aðal karakterinn skipta um kyn eftir 2 myndir þannig að þetta fjallar um nokkra kalla) en hernig sem hann reynir þá eru menn alltaf að gera eitthvað annað. Einn er t.d kominn með 20 árum yngri kærustu sem á poodlehund sem heitir Mímí og geltir allan sólarhringinn og eyðir öllum hans peningum í handtöskur og naglasnyrtingu, annar á 18 börn sem hann er búinn að telja sér trú um að verði gjörsamlega ósjálfbjarga fram undir tvítugt og einhverjir ákváðu að flytja til Melrakkasléttu og freista gæfunnar við veðurathuganir og svo mætti lengi telja. Eins og allir hljóta að sjá er þetta erfiðara verkefni en að fletta ofan af leynifélagsskap umhverfisverndarbullna sem spreyja staðhæfulausum áróðri á opinberar byggingar og valda með því upplausn í þjóðfélaginu.
Eins og flestir hafa tekið eftir hefur Forskaren verið í eitthvað annarlegu ástandi upp á síðkastið. Hún er víst farin að trúa öllu sem stendur í Rauðu ástarsögunum og hefur ekki hætt að brosa síðan í júlí. Nú hefur hún gjörsamlega gufað upp og er ég farin að halda að það sé eitthvað dularfullt á seyði. Ég hef heyrt af Ultra-mega kins-size turbo 3000 sófanum sem Tensai San og Hammer fjárfestu í nýlega m.a til að Forskaren hefði einhversstaðar höfði sínu að halla sem fátækur námsmaður. Ég vil bara benda Tensai San á að leita betur í sófanum hvort það gæti verið að Forski sé þar einhversstaðar og rati ekki upp úr honum aftur. Þó rámar mig í það svona þegar ég fer að hugsa um það að það var eitthvað útlent herskip hér um helgina og nokkrir huggulegir ungir menn í júníformum sáust spígspora um bæinn en í eitt skiptið fannst mér ég sjá svona útundan mér 4 dáta á harðahlaupum undan konu í rósóttum sumarkjól. Þar sem mér fannst þetta allt hálf undarlegt var ég viss um að mér hefði missýnst eitthvað en svona eftir á að hyggja þá svipaði þessari konu ótrúlega mikið til Forska í sumardressinu sínu og flestir þekkja áhuga hennar á mönnum í einkennisbúningum. Hún var t.d lengi að jafna sig eftir að Angus Young gekk út. En ég vænti þess að Forski geti gefið skýringar á þessu öllu saman. Stuttu seinna sá ég svo Kevin Turvey með 3 ljósmyndara og sminku hlaupandi á eftir þar sem han sá fyrir sér forsíðufrétt á DV "Einstæð móðir úr Fellahverfinu áreytt af vopnuðum handrukkurum af erlendu bergi brotnum í Reykjavíkurmaraþoninu" undirfyrirsögnin væri svo "kerfið verndar ekki borgarana gegn dæmdum ofbeldismönnum"
Q: Af hverju lítur George W. Bush alltaf út eins og hálfviti á myndum?
A: Hann er hálfviti:)

mánudagur, ágúst 15, 2005
Það kemst enginn upp með að vera krimmi eða ólátaseggur á Íslandi, það er alveg ljóst. Okkar ástkæra ríkisstjórn og málaliðar hennar með sjálfan ríkislögreglustjóra í fylkingarbrjósti prúðbúinn með borða og gullbryddingar upp á axlir, vernda okkur borgarana fyrir þannig óþjóðalýð. Við vitum öll að þessi Baugsfamilía er skítapakk eins og hún leggur sig. Kaupa útlend fyrirtæki út um hvippinn og hvappinn (þeir eru búnir að kaupa allt á Íslandi sem er til sölu) eins og einhverjir fínir menn og græða fullt af peningum og allt þetta án þess að spyrja Hans náðasamlegustu hátign Davíð Oddsson að einu eða neinu. Senda honum örugglega ekki einu sinni jólakort, hvað þá bjóða honum í lax. Svo er þetta lið spanderandi á sig pylsum og hamborgurum og gott ef ekki ódýru útlensku brennivíni líka og allt straujað á kreditkortin hjá fyrirtækinu og hluthafarnir tapa milljörðum...nei, skrilljörðum á öllu sukkinu. Þetta er fólk sem kann ekki að skammast sín og svo er þessi Jóhannes bara fyllibitta og kommúnisti. Svona fólk á auðvitað að draga fyrir dómstóla og eins gott að bæði frændinn og besti vinurinn eru komnir í hæstarétt til að passa upp á að þessi gamalmenni sem þar eru fyrir geri engar gloríur eins og í öryrkjamálinu þarna um árið
En íslenskir glæpamenn eru ekki þeir einu sem vaða hérna upp, ó nei ekki aldeilis. Hér ganga útleskir hryðjuverkamenn lausir og ekkert nema árvökul augu lögreglunnar hafa komið í veg fyrir að þeir hafi gert meiri óskunda en fram að þessu. Okkur er öllum sama um þessa mela þarna uppi á Kárahnjúkum, það fer þangað ekki nokkur kjaftur hvort eð er og ekki ætlum við að skipta okkur af því hvað ítalir borgi kínverjum eða portúgölum í kaup. Laun eru jú einkamál hvers og eins og það er bara hnýsni og dónaskapur að vera eitthvað með nefið ofan í því. Svo eru þetta líka allt bara einhverjir útlendingar og sumir m.a.s ekki einu sinni hvítir og það er bara betra að vera ekkert að ofala þá, þeir gætu viljað setjast hérna að og ekki viljum við eiga það á hættu að fá yfir okkur flóð af kínverjum sem taka af okkur alla þessa vel borguðu vinnu sem við annars sláumst um að fá að vinna eins og í fiski, á sjúkrahúsum og elliheimilum, í byggingarvinnu og í færibandaverksmiðjum.
Ríkislögreglustjóri er svo upptekinn af þessum örfáu umhverfisverndarbullum sem voru að hlekkja sig við skóflur og naglbíta við Kárahnjúka að hann varla sefur orðið karlkvölin. Svo þegar 4 þeirra ákváðu að bregða sér í túristaferð til Akureyrar og Mývatns þá þýddi ekki annað en að senda tvo löggubíla á eftir þeim hvert einasta fótmál í 3 daga. Og annar þeirra var m.a.s leynilöggubíll. Ríkislögreglustjóri er nefnilega snjall! Þó ótrúlegt megi virðast þá eiga þessar bullur íslenska vitorðsmenn sem ætti auðvitað að kæra fyrir landráð finnst honum. Þetta er allt stórhættulegt fólk og þegar upp komst að einn þeirra hafði ekki skilað vídeóspólu á réttum tíma var ekki annað þorandi en að senda 10 löggur á svæðið með sírenuvæli að innheimta skuldina. Eins gott að hann hafði ekki gleymt að borga fasteignagjöldin, þá hefði víkingasveitin væntanlega verið send.
Ég er farin að hafa áhyggjur af Forskaren. Hún virðist hafa yfirgefið okkur hér í þessum heimi og flutt í einhvern annan þar sem allt er rósrautt og allir hlaupa um á strönd í slow motion í hvítum flaksandi fötum. Henni var falið það verkefni sem framkvæmdastjóra kaffi- og kruðirísnefndar að hóa saman í kökuboð en hvað gerist? Jú einmitt, nákvæmlega ekkert! Meðan við hin erum farin að þjást af alvarlegum kruðirísskorti þá gengur Forski bara um eins og Colgate auglýsing, flissandi og skríkjandi eins og smástelpa.
Ég var um helgina á motocrossmóti eins og svo oft áður. Ég kann ekki að keyra bíl en ég veit orðið að í motocrossi áttu að standa frekar en að sitja, klemma hjólið með löppunum, beygja þig fram yfir stýrið og út með olnbogana. Svo áttu að innri fótinn út í beygjum og leggja hjólið, bremsa eins seint og þú getur og gefa í um leið og þú ferð að beygja og horfa langt fram og ekki læsa afturdekkinu. Og talandi um motocross þá langar mig að vita hvar íþróttafréttasnápurinn Kevin Turvey hefur verið meðan það hefur verið í gangi? Kanski upptekinn við að fylgjast með vesturbæjarmóti í nútímafimleikum með jó jó eða Garðabæjarmótinu í ungbarnasundi? Ég sá hann alla vega aldrei að fylgjast með þessu eina alvöru sporti fyrir menn og konur sem þora. M.a.s Móðir Jörð mætti um helgina á gúmmítúttunum beint úr kartöflugarðinum með öll börnin í pilsfaldinum og bauð nærstöddum upp á sviðakjamma og ákavíti á brúsa. En hinn svokallaði íþróttafréttamaður var hvergi sjáanlegur. Kanski enn í Loðmundarfirði eða á Trékyllisvík að uppgötva næsta Hjalat Úrsus?

girls just want to have fun!

föstudagur, ágúst 05, 2005
Égf get ekki annað sagt en að ég hafi átt hina fínustu verslunarmannahelgi. Það var skundað í höfuðstað norðurlands (nei, það er ekki Sauðárkrókur af einhverjum óskiljanlegum ástæðum sem tengjast örugglega klíkuskap og Framsóknarflokknum) og ungir mótorhjólamenn myndaðir í bak og fyrir í glampandi sól og hita. Keppnin fór vel fram og ekki nama þrír sem enduðu á spítala.
Ég hef aldrei stoppað á Akureyri lengur en í nokkra klukkutíma þannig að ég vissi svo sem lítið um það hvað hægt var að gera þarna annað en að fara í Sjallann sem ég að sjálfsögðu gerði. Það fer enginn til Akureyrar án þess að fara í Sjallann skildist mér. Þar komst ég að því að Akureyringar hafa ekki enn uppgötvað fyrirbærið röð. Til að komast þarna inn er fyrst farið inn í eitthvað andyri og þaðan inn í húsið og það virtust allir þurfa að troða sér inn í þetta andyri eins og rollur í rétt þó að hver hefði getað séð að það gekk ekkert fljótar að komast inn þannig. Og hvað haldiði að hafi blasað við þegar svo maður loksins slapp inn úr þvögunni? Sálin hans Jóns míns í svaka fíling og fullt lið bert að ofan með appelsínugular hárkollur og glosticks um hálsinn syngjandi hástöfum! Hvað gat maður annað gert en að fara beint á barinn. Að hafa staðið í einhverjum slagsmálum við fulla unglinga til þess eins að fá Sálina hans Jóns míns í andlitið. Ég var m.a.s alveg dauðfegin þegar einn af mótorhjólamönnunum byrjaði að tala um mótorhjól við mig. En ég hef þó núna komið á Sjallann. Ég fór lika á Bautann eins og hinir túristarnir, þar sem vinsælasti rétturinn er ofsteikt sneið af nautakjöti borin fram með fjalli af lauk löðrandi í olíu á brauðsneið og með bernessósu. Ég ákvað að spila safe og fékk mér djúpsteiktan fisk í orly, svona eins og mamma gerir og lauksúpu sem var bara alveg ljómandi góð.
Eitt af því fjölmarga sem Akureyringar monta sig af er ísinn í Brynju. Þar sem ísát er sérstakt áhugamál hjá mér þá varð ég auðvitað að prófa herlegheitin. Þetta reyndist hins vegar bara vera eins og venjulegur Emmess undanrennuís með vatnsbragði og hef ég ákveðið að halda mig við Kjörís það sem eftir er.
Eins og flestir vita þá hefur fjölgað all hressilega í fjölskyldunni á Laugaveginum. Kanínuungarnir eru nú að verða tveggja vikna gamlir og orðnir fjörugir eftir því og farnir að skottast um allt á baðinu Helmút til mikillar armæðu. Helmút þjáist nefnilega af afbríðisemi á háu stigi sem lýsir sér í því að hann er orðinn pirraður og skapfúll og gerir allt sem hann má ekki gera og er allsstaðar þar sem hann má ekki vera og urrar svo bara á mig þegar ég er að skamma hann. En ég skil hann nú samt ósköp vel því eftir að hafa verið einn og ofdekraður fram að þessu þá er örugglega erfitt að sætta sig við að það sé komin önnur kanína sem borðar úr dallinum manns og kúkar og pissa í búrið manns og ekki friður fyrir ungunum. Ég ætla því að reyna að koma James fyrir á góðu heimili þegar ungarnir eru orðnir nógu gamlir til að taka þá frá henni og ef einhvern langar í rólega, skapgóða og krúttlega kanínu þá er James kanínan fyrir þig.
Það hefur ýmislegt gengið á hjá sumu fólki undanfarið og dramatíkin eins og í verstu sápuóperu. Ég hef heyrt að Monopoly og Forskaren hyggist endurvekja The men are pigs society. Annars á Forskaren eftir að koma með alla sólarsöguna og hef ég stungið upp á því að það verði gert yfir kaffi og kruðiríi fljótlega og að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í þeirri djúpu og yfirveguðu umræðu sem þar mun fara fram (Hammer yrði þar á eigin ábyrgð en þar sem hann er hinn mesti ljúflingur og herramaður ætti öllu að vera óhætt auk þess sem Tensai san hótar bara að fara að gefa honum spítalamat ef hann verður með einhvern uppsteit). Já og talandi un Tensai san þá á hún eftir að upplýsa opinberlega hvernig hún nældi í sendiherrastöðuna í Japan. Eru Tensai og Davíð Oddsson orðnir einhverjir vinir?
Hefur þessi aldrei heyrt minnst á góðakstur? Skyldi Óli H. vita af þessum glannaskap?