Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
miðvikudagur, október 26, 2005
Gísli Marteinn er farinn að ofsækja mig. Það virðist vera sama hvert ég fer eða hvaða blað ég opna allsstaðar er Gísli Marteinn brosandi þessu mongólítabrosi sínu. Eins og lög gera ráð fyrir þá fór ég í bæinn á kvennafrídaginn og innan um upprifnar konur með hringladi potta, organdi börn og kröfuspjöldin á lofti hver haldiði ekki að hafi dúkkað upp á Ingólfstorgi og verið að bjóða viðstöddum heitt kaffi annar en Gísli Marteinn strumpurinn síkáti! Af hverju tattóverar hann bara ekki á ennið á sér "kjósið mig, fíflin ykkar" og kemur þá alla vega hreint og beint fram? Ég geri mér þó alveg grein fyrir því að svona fjöldasamkomur eru gósentíð fyrir pólitíkusa á atkvæðaveiðum en flestir hinir létu sér þó nægja að labba með og brosa kumpánlega til nærstaddra. Nú er reyndar að koma sá tími að það má ekki opna almenningsklósett án þess að hópur af pólitíkusum sé mættur á svæðið og allsstaðar þar sem má eiga von á því að sjónvarpsmyndavélar séu, þar eru þeir mættir í flokkum. Hver man ekki eftir grátbroslegum uppákomum eins og að sjá Halldór Ásgrímsson á handboltaleik og vera ekkert að fylgjast með leiknum heldur að passa upp á að allir sæju nú að hann væri þarna úti á meðal skrælingjanna. Og svo er ekki nokkur leið að ná tali af neinu af þessu fólki hin þrjú árin og átta mánuði kjörtímabilssins.
En varðandi kvennafrídaginn þá fór allt friðsamlega fram þó fæstir hafi vitað hvað var um að vera þarna uppi á sviðinu á Ingólfstorgi því ekkert hljóð var á neinu. Það hefur greinilega verið einhver misskilningur í gangi þarna milli skipuleggjenda og þeirra sem sáu um sviðið. Þeir hafa greinilega haldið að þarna væri kröfuganga heyrnrskertra og því engin ástæða til að hafa eitthvað hátalarakerfi í gangi, allt færi auðvitað fram á táknmáli. En ég geri fastlega ráð fyrir að það hafi verið farið fram á réttmætar kröfur eins og styttri vinnutíma, hærri laun, lengra sumarfrí, fleiri kaffipásur og lægri eftirlaunaaldur. Auk þess væri hægt að fara fram á það að karlmenn lærðu á þvottavélar, lærðu að fara eftir leiðbeiningum, gætu hitt ofan í klósett, þrifið eldavélar eftir notkun, lært einföldustu mannasiði, hlustað þegar verið er að tala við þá og áttað sig á því að fótbolti er ekki æðra tilverustig heldur fullorðnir menn að leika sér. En þetta eru nú kanski frekar svona langtímamarkmið sem ber að stefna að í áföngum. Róm var ekki byggð á einum degi
Ég fór á árshátíð um helgina, nánar tiltekið hjá Vélhjólaíþróttaklúbbnum. OK, mér var boðið og þetta eru ekki þeir sem keyra um á ferlíkjum á stærð við tjaldvagn og eru allir komnir með gráa fiðringinn eða þessir á Japönsku túrbósaumavélunum í appelsínugulum leðursamfestingum. Anyway, það var alla vega þess virði að fá gott að borða og skola því niður með nokkrum rauðvínsglösum. En ekki halda að það hafi verið pólitíkusalaust. Nei ó nei. Að vísu var það ekki Gísli Marteinn, hann hefur bara ekkert vitað af þessu því annars hefði hann verið mættur á BMX hjólinu, heldur var Sif Friðleifsdóttir þarna í góðum gír. Sif er nú svo sem ágætis manneskja og ekkert út á hana að setja þannig, en þessi afdankaði stjórnmálaflokkur sem hún er í, það er annað mál. Sjáiði bara hverjir eru þarna fremstir í flokki. Halldór Ásgrímsson, Guðni Ágústsson og Jón Kristjánsson. Er til sorglegri samkoma, ég bara spyr? Aðalfundur Félags útfararstjóra er örugglega áhugaverðari en þingflokksfundir hjá Framsóknarflokknum.
Eins og ég hef minnst á þá hef ég verið mikið erlendis undanfarið og er að fara aftur eftir rúman mánuð. Ég hef kannski einhverntíma sagt það áður, en þetta getum við þessi einhleypu og barnlausu. Síðasta utanlandsferð var til London þar sem ég náði að slappa af eftir að hafa fengið barnafólkið í heimsókn þarna um daginn. Skarkali stórborgarinnar er ekkert á við stjórnlaus börn. Þessi reynsla fékk svo á mig að ég fékk martraðir lengi á eftir þar sem mig dreymdi að ég væri að vinna á barnaheimili. Og að ég væri æfiráðin. Ég lenti nú m.a.s í því í þessari ferð að hafa tækifæri á að hitta David Beckham face to face. Ég var stödd þarna á Oxford Street fyrir utan einhverja stórverslun og allt í einu kemur maður hlaupandi út úr búðinni með gjallarhorn og myndatökulið á eftir sér og fer að tilkynna að David Beckham sé inni í búðinni til að hitta fólkið af götunni. Þar sem ég stend þarna við dyrnar þá vindur hann sér að mér og segir mér að drífa mig inn, ég gæti verið fyrsta manneskjan til að hitta goðið þarna. En þegar ég segi bara nei takk, ég hafi bara ekki áhuga þá horfir hann svona á mig eins og það hafi skyndilega vaxið bananar út úr eyrunum á mér. Ég held að hann sé ennþá að klóra sér í höfðinu yfir þessum furðulegu viðbrögðum, aumingja maðurinn. Því hver vill ekki hitta David Beckham? Sko, hvað er svo sem merkilegt við þennan smámælta froðuheila? Og svo er kellingin hans alveg síðasta sort.
Ég vil líka nota tækifærið og þakka Londoníu fyrir upplýsingar um góða veitingastaði í borginni. En hversu posh lífsstíll er á fólki þegar litli kósí restaurantinn in the hood er þannig að þjónarnir eru betur klæddir en leikararnir við Óskarsverðlaunaafhendinguna, matseðillinn er skrautskrifaður á Egypskan papírus og aðrir en fastagestir þurfa að sýna bankabókina sína áður en þeir fá að panta forréttinn?
Einhvernvegin virðast allir vera fluttir á Eyrarbakka þessa dagana. Móðir Jörð er auðvitað búin að vera þar í kartöflugarðinum heima, eins og Árni Johnsen orðaði það svo skemmtilega. Svo flutti Kokksi á svæðið og ákvað í leiðinni að fjölga mannkyninu þar sem sjálfsagt er ekkert skárra að gera þar. Nú er svo Forski farin í sveitarómantíkina til að hlusta á hafið og horfa á laufin falla og vonast sjálfsagt til þess í leiðinni að fá bókmenntalegan innblástur. Ég hef það fyrir satt að hún sé nú farin að yrkja ljóð í gríð og erg enda annar hver maður þarna í þorpinu skáld eða listamaður. Lítill fugl hvíslaði að mér einu ljóðanna sem Forski hefur verið að yrkja í kvistherberginu á síðkvöldum við kertaljós og vindnauð í rjáfri. Ég hef ákveðið að deila því með ykkur og er það svona:
Tilgangur lísins
Ég horfi út á hafið og velti fyrir mér tilgangi lífsins
öldurnar dansa breikdans á hafsbotninum
og fuglarnir elta bláar kjötbollur milli skýjanna.
Kettirnir mjálma Popplag í g-dúr
þar til mýsnar ganga út og skella hurðum,
tilvern hringsnýst og karlinn í tunglinu
tekur út úr sér fölsku tennurna.
Þá verður mér það ljóst!
Ég verð að drekka minna rauðvín.
Já Forski kann sko fleira en boringisma skal ég segja ykkur. Næsta stórskáld er fætt! Þar sem Tensai San hefur lýst því yfir opinberlega að Halldór Laxness sé mesti snillingur bókmenntasögunnar og að bækur eins og "Í túninu heima" hafi verið henni mikill innblástur þá ætla ég hér að lýsa því yfir að Forski verður okkar næsti nóbelsverðlaunahafi.
|

laugardagur, október 22, 2005
Þar sem ég hef verið mikið erlendis undanfarið (eða kanski frekar vegna þess að ég hef ekki sjónvarp, hitt hljómaði bara betur) þá hef ég ekki mikið fylgst með þessum íslensku raunveruleikaþáttum sem tröllríða dagskránni á Skjá einum. Ég hafði eiginlega voða lítið pælt í þessu þar til ég sá í slúðurblaði allra landsmanna (þ.e DV) myndir af tilvonandi Batselorum. Og þvílíkt samansafn af aflituðum og ljósabekkjaleignum hnökkum frá Selfossi hef ég bara ekki séð áður. Var bara alls ekki hægt að finna þokkalega útlítandi karlmann í landinu sem var til í að láta hafa sig að fífli og slefa upp í einhverjar sílíkongellur með athyglissýki í leiðinni?! Og þetta ástarfley! Hvað er það?! Seglskúta full af menntaskólakrökkum ennþá á gelgjunni sem leiddist í skólanum en nenntu ekki að vinna, stjórnað af afdönkuðum leikara með gráa fiðringinn. Æði! Svo er það Ædolið. Hvenær hættir fólk að nenna að horfa, og það sem verra er, hlusta á karókíkeppni hæfileikalausra tónlistarviðrina sem halda að það að geta gaulað Sálarlag sé eitthvað til að vera stoltur af? Þetta eru óþolandi gæjarnir með kassagítarinn í öllum partýum og stelpur sem finnst Whitney Houston skapandi og metnaðarfullur tónlistarmaður með einstæða hæfileika og ekkert þeirra gæti samið lag frekar en ég boðist til að halda barnaafmæli (meira af því á eftir). Ég horfi til þess með hryllingi að nú fer Britney Spears og Justin Timberlake kynslóðin að koma inn í þetta og þá á orðið "vont" eftir að öðlast alveg nýja og dýpri merkingu.
Nú bíð ég bara eftir að Skjár einn hristi íslensku útgáfuna af Survivor fram úr erminni. Þar koma væntanlega saman sjóarar frá Tálknafirði og afdankaðar kellingar úr Fellahverfinu nýkomnar úr sinni 8. afvötnun og til í allt ásamt handrukkurum og suðurnesjamönnum sem eru öllu vanir frá Traffic í Keflavík. Síðan verða allir sendir út í Hrísey með nokkra pulsupakka og samlokur, þar sem búið er að loka sóttkvínni þar og allt stendur autt og ekkert gáfulegra við þessa eyju að gera, og kamerurnar settar í gang.
Eins og Monopoly minntist á hérna þá ákvað ég að reyna í mér þolrifin um daginn og bjóða barnafólki í kaffi og kruðerí. Það voru sem sagt Monopoly sjálf ásamt mini Monopoly og Gösli rokk og spúsa hans ásamt tveim afkvæmum undir þriggja ára. Ég veit ekki alveg hvað ég var að hugsa þarna en þetta er svipað og að mér hefði dottið í huga að labba um götur í Ísrael með Hitlersgrímu og syngja Þýska hermarsa. Sem sagt algerlega galið. En fyrst ég var búin að þessu þá var ekki aftur snúið og ég ákvað að gera gott úr öllu og baka vöfflur og ýmislegt fleira gúmmelaði sem maður gæti þó gætt sér á meðan á ósköpunum stæði. Það er skemmst frá því að segja að kanínurnar þurftu áfallahjálp eftir að eitt barnið hafði reynt að slíta af þeim eyrun og annað öskrað svo mikið af skelfingu yfir að sjá þessi mannætudýr að flísarnar losnuðu af veggjunum á baðinu. Ég hef Tensai San sterklega grunaða um að hafa komið einhverjum ranghugmyndum inn í kollinn á mini Monopoly þannig að hún haldi að litlar, krúttlegar, loðnar kanínur séu stórhættulegar manndrápsskepnur svo ekki sé nú minnst á kýr og kindur sem samkvæmt Tensai San eru hin illvígustu rándýr. Ég þurfti svo að fara á heilsuhæli í útlöndum eftir þessa heimsókn. Þar fyrir utan sem ég er enn að finna kámug fingraför undir borðum og stólum og á öðrum stöðum þar sem manni sjálfum dettur ekki í hug að vera með puttana. Hvernig er þetta eiginlega?! Það er hægt að kenna hundum að velta sér og elta prik og hestum að telja og m.a.s fílum að sitja á rassinum en það virðist ekki vera hægt að kenna börnum að haga sér skikkanlega þó ekki væri nema í annara manna húsum? Fussumsvei!!
Þar sem Móðir Jörð hætti við að halda útskriftar-rokkælupartý núna um helgina þá verður fólk bara að bíta í það súra og vera bara þeim mun hressara í Halloween partýinu fyrstu helgina í nóvember. Muna að hafa búninginn kláran og þeir sem geta ekki skilið afkvæmin eftir sjálfala verða að fara að huga að því að koma þeim í geymslu þetta laugardagskvöld. Leim afsakanir eins og að það sé mikið að gera eða hundurinn sé með bronkítis eða það þurfi að skipuleggja sokkaskúffuna eru EKKI teknar til greina.
Nú segist Móðir Jörð ætla að slá útskriftarpartýinu saman við sextugs afmælið sitt og er nú þegar búin að panta safnaðarheimilið á Eyrarbakka undir fögnuðinn og fá samkór kvenfélagsins og kiwanis til að skemmta. Maður verður víst að láta sig hafa það að bíða en verst að þurfa að afpanta þriggja vikna lúxussiglinguna í Karíbahafinu sem hún átti að fá í útskriftargjöf.
Nú þegar Tensai San er orðin heimsfræg fjölmiðlastjarna þá virðist hún vera farin að mingla bara við Einar Kárason og Thor Vilhjálmsson og svoleiðis fólk í kokteilboðum og á frumsýningum og búin að gleyma okkur hinum. Ég reyndi að senda henni tölvupóst um daginn en fékk hann bara aftur í hausinn þar sem selebið var búið að loka netfanginu sínu (nema þá að pósthólfið hafi verið fullt af aðdáendabréfum). Ég gæti bara hæglega "lekið" einhverjum upplýsingum um Tensai San í Kevin Turvey sem hefur hæg heimantökin að láta birta flenni fyrirsagnir í DV eða Hér og nú um gamla skandala og vafasama fortíð.

sunnudagur, október 09, 2005
Það er eins og að spyrja Björgólf hvort hann sé blankur eða Jónínu Ben hvort að séu nokkuð annað en lausar skrúfur í hausnum á henna að ég sé að tjá mig um Gísla Martein. En sumt getur maður bara hreinlega ekki staðist. Mig dreymdi nefnilega þennan álf um daginn. Draumurinn var einhvernvegin á þá leið að ðeg var að labba á Laugaveginum að kvöldi til og sé þá álengdar ámátlega persónu klædda eins og Emil í Kattholti standa eins og bjálfa á gangstéttinni. Þegar nær kemur sé ég að þetta er sjálft borgarstjóraefnið sem stendur þarna og er að safna í kosningasjóðinn með því að sýna breikdans fyrir klink. Og hvað geri ég? Nú auðvitað varð ég að sjá karlkvölina dansa breikdans svo ég setti klink í baukinn hjá honum. Og þar með var sá draumur búinn. Og enn að Gísla Marteini, þá sá ég auglýsingu í einhverju blaði þar sem valinkunnugt fólk lýsti stuðningi sínum við hann og dásamaði í bak og fyrir. Móðir Teresa, Jóhannes Páll páfi og Albert Einstein öll til samans hefðu varla þótt stórfenglegri manneskjur. Það sem ég tók þó eftir var það að meðalaldurinn á þessu fólki hefur örugglega verið sá sami og á Grund sem segir kanski mikið um hvaða fólk kemur til með að kjósa þennan sprelligosa. Gamlar konur sem finnst hann vera krútt og vekur upp hjá þeim móðurtilfinningar og gamlir karlar sem finnst hann innst inni vera óttalegur trúður og því auðvelt fyrir þá sem eru með alla spotta Flokksins í hendinni að kippa í þá á réttum stöðum og fá fram réttan hlátur og tilheyrandi smjaður á réttum stöðum. Sjálfstæðisflokkurinn er að verða samansafn af einhverjum svona fjarstýrðum skrýpalingum. Ég held ég bara hætti að tala um þetta áður en ég fer í vont skap og enda kanski á að tjá mig um útibúið frá Flokknum sem Halldór Ásgrímsson stjórnar. Ef einhver hefur lært boringisma þá er það hann.
Jæja, að einhverju skemmtilegara. Það var t.d mjög skemmtilegt að hitta Forska á föstudagskvöldið yfir einum bjór (að því að ég hélt að stæði til). En Forski var ekki á þeim buxunum heldur demdi í sig heilli rauðvínsuppskeru frá meðalstóru brugghúsi og var komin á trúnó dauðans áður en ég gat svo mikið sem rönd við reist. Ég veit t.d núna að hún hún var valin viðskiptavinur ársins hjá Victoria´s Secret, neitar að viðurkenna að ALLIR ameríkanar séu fífl, finnst Michael Bolton vera sexy, finndist Gísli Marteinn bara dúlla ef hann tæki af sér gleraugun og rótaði hárinu pínulítið, hefur fengið viðurnefnið "Tyson" og tróð upp með óvænt skemmtiatriði í síðasta starfsmannapartýi hjá Eimskipum. Og það var ekki að lesa upp úr sænskum fagurbókmenntum, trúiði mér. Forski var því miður ekki alveg jafn hress á laugardagskvöldinu þegar húsfrúin úr Vogunum brá sér í kaupstaðinn til að upplifa skemmtanalífið þar sem Forski átti að vera partner in crime. Vona samt að húsfrúin hefi getað fengið sér eins og einn snúning áður en Forski geyspaði sjálfa sig úr kjálkaliðnum
Nú þegar bissnesvæðingin tröllríður öllu og enginn er maður með mönnunm nema græða á tá og fingri á einhverjum bissnes og geta féflett sem flesta grandalausa neytendur þá er ég búin að komast að því hver er sá sniðugasti. Það er sá sem rekur félagsmálarónabúlluna Monte Carlo þar sem subbuholan Langibar var áður. Langibar var svona staður þar sem þeir voru sem ennþá höfðu einhverja smá sómatilfinningu og voru ekki alveg komnir í það að þekkja alla á Kaffi Austurstræti með nafni. Nú er hins vegar búið að breyta þessu í spilasal. Það er reyndar það eina sem hefur breyst. Það hangir þarna enn sama félagsmálarónaliðið og einstaka fullir sjóarar. Snilldin í þessu hjá eigandanum felst auðvitað í því að geta á lúmskan hátt hirt nákvæmlega hverja einustu krónu með gati af kúnnunum sínum. Ef þeir ekki ná að drekka út allar bæturnar sínar á barnum þá eyða þeir því sem eftir er í spilakössunum. Ég sé fyrir mér heilmikla útrásarmöguleika og þá sérstaklega á norðurlöndunum þar sem bæturnar eru mun rausnarlegri en hér á landi og þar býr mikið af íslendingum á allskonar bótum sem myndu taka þessu framtaki fagnandi. Þarfir þessa markhóps eru líka vel þekktar. Happy hour frá 4-7 og tveir fyrir einn af ákavíti ef keyptir eru 5 bjórar. Vöruframboð þarf heldur ekki að vera mikið heldur nægir ein tegund af þokkalega drykkjarhæfum bjór með ekki miklu botnfalli og ein til tvær tegundir af sterku víni sem blandast vel í volgt, goslaust kók. Enginn myndi t.d setja heimabrugg fyrir sig svo framarlega sem enginn yrði blindur af því og réttu ölvunarstigi yrði náð án annara teljandi aukaverkana.
Að lokum vil ég svo minna fólk á að taka frá laugardaginn 5. nóvember fyrir Halloweenfagnaðinn mikla sem stendur til að halda. Þeir sem þurfa t.d á barnapíum að halda eru vinsamlegast beðnir að tryggja sér a.m.k tvær svo ekkert geti farið úrskeiðis. Öðrum er bent á að róa sig í rauðvíninu kvöldið áður svo engin gleðiorka fari til spillis. Planið er að hafa þetta veglega hátíð með útskornum graskerjum og viðeigandi búningum og öll skemmtiatriði sem þykja hæfa tilefninu eru vel þegin. Að Forski syngi Enríke Iglesíasfroðuballöður hæfir t.d ekki tilefninu Og þó, tilhugsunin er reyndara bara þónokkuð skerí og veit ég að bæði Hammer og Tensai San hafa upplifað það og Hammer fær enn martraðir þar sem hann dreymir Enríke búi í næstu íbúð og syngi endalausa dúetta með Júlíó Iglesías. Það verður nú að vera eitthvað meira en að láta grey Kevin Turvey syngja Helloweenlög á g-strengnum(bara til að ná réttu tóntegundinni, auðvitað og hefur ekkert með pervertískar hugsanir að gera).

sunnudagur, október 02, 2005
Þá er enn einn sunnudagurinn runninn up með tilheyrandi leti. Sofið fram undir hádegi eins og vera ber, hangið á internetinu smá stund, rölt í bæinn og fengið sér eitthvað í svanginn og hangið á huggulegu kaffihúsi með gott blað í hönd og úðandi í sig kaffi og kruðeríi fram eftir degi. Kíkt í bókabúð á leiðinni heim, sest í hægindastólinn með Fréttablaðið (maður verður nú að fylgjast með Baugs sápunni) og nýlagaðan kaffibolla og góða músík í gangi og Helmút knúsaður aðeins í leiðinni. Kanski maður fari svo bara út að borða í kvöld. Já, þetta getum við þessi einhleypu og barnlausu leyft okkur. Að lifa algerlega áhyggjulausu lífi án þess að vera nokkuð að spá í hvað einhverjir aðrir eru að bollaleggja og þar sem maður gerir bara það sem manni dettur í hug, þegar manni dettur það í hug.
Það er bara vinnan sem skemmir fyrir mér þetta fullkomna líf. Að þurfa að mæta eitthvað inn í Kópavog kl. 8 á hverjum fjandans virkum degi og komast ekki í burtu fyrr en kl. 4 er auðvitað alveg óásættanlegt. Vinna er mannskemmandi og ég tala nú ekki um ef maður situr uppi með leiðinlega vinnufélaga. Mínir eru að vísu flestir þolanlegir í hófi sem er betra. Ég gæti t.d verið að vinna með Gísla Marteini, spáiði í því! Það eru ekki nema furðufuglar eins og Kevin Turvey sem bókstaflega sækist eftir því að hanga í vinnunni daga og nætur. Honum hefur nú staðið til boða heilt hlaðborð af kruðeríi og nýmalað kaffi frá Guatemala ásamt mínu margrómaða kompaníi og ég hef m.a.s gengið svo langt að bjóðast til að spila Pantera sem dinnermúsík en allt kemur fyrir ekki. Nei, það þarf að horfa á 5 fótboltaleiki sem allir fara 0-0 og 8 körfuboltaleiki þar sem 15 ára gettónegrar sem eru hvorkir læsir né skrifandi rífast í dómaranum og slást sín á milli á góðum degi og 80% af tímanum sem leikurinn tekur fer í auglýsingar og leikhlé. Svo er það langstökk einfættra, kúluvarp kvenna með bringuhár, bogfimi blindra og ökuleikni Bandalags félagsmálaróna úr Fellahverfinu. Fullkominn dagur!
Eins og þeir hafa tekið eftir sem ekki hafa verið í sól og sumri í útlöndum þá er þetta kaldasti september frá því mlingar hófust sem nú er að enda. Það eina sem hefur bjargað þessum mánuði frá því að vera í minnum hafður fyrir ömurlegheit er Jónína Ben. Konan er snillingur!! Akkúrat þegar þarf á einhverju upplífgandi að halda þá bjargar hún deginum með því að kunna ekki að senda tölvupóst á rétt netföng. Og ef einhver hefur efast um að Sjálfstæðisflokkurinn er eins og Mafían og Davíð þá Corleone eða hvað hann hét, þá opinberast það núna. Eini munurinn er að hér kýs yfir 30% þjóðarinnar Mafíuna yfir sig af fúsum og frjálsum vilja hversu furðulega sem það hljómar. Og gerir það aftur og aftur hversu illa sem Davíð og co. taka okkur í rassgatið og koma fram við okkur eins og við séum algjör fífl (sem by the way rúmlega 30% þjóðarinnar er greinilega og á því ekki annað skilið en að vera tekinn í rassgatið).
Það vantar fleira fólk eins og Jónínu Ben og Árna Johnsen til að skemmta okkur í skammdeginu. Fólk sem er algerlega siðblint og hugsar ekki um neitt nema eigið rassgat og er svo uppfullt af sjálumgleði að hrokagikkurinn þarna hjá Chelsea er eins og Dalai Lama í samanburði og skandalisera svo svakalega að skítamokstursgengið ú Flokknum með Jón Steinar og Harald Johannessen fremsta í flokki nær ekki að róta yfir drulluslóðina áður en lyktin fer að anga um allt. En hvað gerir rumlega 30% þjóðarinnar? Kýs þessa drulluháleista enn og aftur! Getur maður ekki sagt sig úr íslensku þjóðfélagi eins og maður getur sagt sig úr þjóðkirkjunni og verið svona utan þjóðfélaga? Já, ég er alveg brjáluð!!!
Svo maður snúi sér að einhverju jákvæðara þá hittumst við Forskaren um daginn og skipuðum sjálfar okkur í skemmti og menningarmálanefd. Öfugt við þær nefndir sem þessi volaða ríkisstjórn sem við sitjum uppi með skipar, þá hefur þessi skilað tillögum af mikilli skemmtidagskrá bæði fljótt og örugglega. Fyrsta mál á dagskrá er auðvitað útskriftarpartý hjá Móður Jörð. Skemmtinefndin kom að vísu ekki beint að þeirri ákvörðun en eftir að hafa komist yfir tölvupóst þess efnis að skemmtiatriðin ættu að vera upplestur Móður Jarðar úr BA ritgerð sinni "Notkun gúmmístígvéla í íslenskum fjósum og flórmokstur á fyrri hluta 20. aldar", söngatriði með Karlakórnum Breimir, samkvæmisleikir og bingó þá var ákveðið að grípa í taumana og leggja til að haldið verði almennilegt rokkælupartý þar sem drukkinn verður vodki í volgu og goslausu kóki og ekkert spilað nema heavy metal. Með miklum úrtölum tókst að fá Móður Jörð til að samþykkja þessa tillögu.
Síðan verður Halloween haldið með pompi og prakt þann 5. nóvember, Thanksgiving þann 26. nóvember og Lúsíukvöldið margfræga þann 10. desember. Nú veit ég að barnafólkinu sundlar og liggur við yfirliði að lesa þennan lista. Þetta eru hvorki meira né minna en FJÓRAR helgar!! Jedúddamía!!! Heldur þetta einhleypa lið að fjölskyldufólk hafi ekkert skárra að gera en að vera úti á lífinu helgi eftir helgi? Börnin eiga eftir að bíða varanlegan skaða af að hafa ekki foreldrana yfir sér ALLA 365 daga ársins. Þau fara að þjást af ofvirkni og athyglisbresti og enda sem vandræðaunglingar sem spila tölvuleiki og hlusta á þungarokk og eignast jafnvel kærustur eða kærasta. Þetta er bara of hræðilegt til að hugsa þetta til enda!! Það verður því bara að koma í ljós hverjir taka þá örlagaríku ákvörðun að taka þátt í gleðinni en ekki er ráð nema í tíma sé tekið og skipulagsglöðu hér með gefið tækifæri á að skipuleggja sig út árið.