Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
mánudagur, febrúar 20, 2006
Ég hef sko ekki setið með hendur í skauti þessa helgina frekar en endra nær (þó ég komist nú ekki með tærnar þar sem Móðir Jörð hefur hælana hvað varðar atorkusemi eins og sannri sveitakonu sæmir, meðan ég pikkaði þetta inn hefur hún örugglega sett í eina þvottavél, bakað kanilsnúða, stöðvað þrenn áflog, kysst á tvö bátt, straujað nokkrar skyrtur og útskýrt gang himintunglana fyrir einhverju afkvæmana). Það var farið á fætur fyrir allar aldir á laugardaginn (fyrir kl. 10) og brunað í Sandvík sem er rétt hjá Höfnum. Vissi reyndar ekki hvar H
afnir voru fyrr en ég keyrði þar fram hjá og var bent á einhverja volaða húsaþyrpingu sem kúldraðist þarna í auðninni. Hver býr sjálfviljugur á þessum stöðum þarna á Suðurnesjunum spyr ég bara (svona eftir á að hyggja minnist ég þess ekki að hafa nokkurntíma séð fólk á ferli á þessum Suðurnesjakrummaskuðum)? Maður verður þunglyndur af því að keyra þarna fram hjá og hefur það á tilfinningunni að þarna sé allt svart/hvítt...alltaf! Ég efast stórlega um að grasið verði grænt á sumrin, ef að þá koma sumur þarna á þessum útnárum. Maður á auðvitað að venjast blómlegum sveitum Skagafjarðar með sællegar kýr á beit og blóm í haga, fuglasöng og lækjarnið og Álftagerðisbræður syngjandi í bakgrunni.
Já, svo við höldum okkur við ferðalagið þá fékk ég mér góðan göngutúr í fjörunni og gott ef það sást ekki grilla í fótspor eftir Forska í sandinum þar sem hún hafði hlaupið um tindilfætt í slow motion þarna í fyrrasumar í spænskri sveiflu sem breyttist skyndilega í ameríska hrollvekju þar sem Forski var ofsótt af whita trash zombíum og Prince Charming var ekkert svo charming eftir allt saman heldur hafði verið sendur frá Trailerpark from hell til að leggja líf Forska í rúst. En Forski sá að lokum við kauða, gaf honum drag í höfuðið og spark í rumpinn og málið var dautt.
Á sunnudeginum var var risið úr rekkju löngu áður en hanarnir svo mikið sem opnuðu annað augað (kl. hálf níu!) og brunað af stað í Ólafsvík með nokkrum vöskum mótorhjólaköppum sem ætluðu að gera þar heiðarlegar tilraunir til að fótbrjóta sig. Það er nefnilega hægt að gera það á margan annan hátt en að fara á skíði.
Þar sem við erum á heimleið er staldrað við í sjoppu í Ólafsvík til að kaupa sér eitthvað að borða. Þar sem úrvalið var ekkert gríðarlegt var skellt sér á einn borgara og haldiði ekki að hann hafi komið með spældu eggi?! Svona eru víst borgararnir í sveitinni enn framreiddir. Og þar sem ég sit og borða spæleggsborgarann minn þá kemst ég ekki hjá því að sjá hluta af þættinum Það var lagið með Hemma Gunn þar sem sjónvarp inni á búllunni var á fullu blasti og Hemmi smælaði framan í heiminn og eitthvað fólk söng af meiri ákefð en getu íslensk sveitaballalög frá 1950. Þetta held ég að sé versti sjónvarpsþáttur sem ég hef séð (ja nema kanski fyrir utan þáttinn sem Barði í Bang Gang var einu sinni með á Skjá Einum en Barði er einhver ófyndnasti brandarakall sem sögur fara af) og hef ég séð þá marga, belive me! Þetta var mér sagt að væri einn vinsælasti þátturinn í Ríkisimbanum og er það greinilegt dæmi um að íslenska þjóðin sé að eldast.
Þó ég hafi ekki sjónvarp og sé ekkert á leiðinni með að fá mér svoleiðis eftir reynsluna af Hemma Gunn þá getur maður nú ekki annað en talað aðeins um Júróvisjón dramað. Júróvisjón gæti jafnvel orðið skemmtilegt ef fleiri svona freakshow eins og Silvía Nótt væru send í g
eimið. Það skipti þá engu máli þó lögin væru jafn mikið crap og venjulega. Gamlar konur eru gjörsamlega að tapa sér í hneykslan í símatímum útvarpsstöðvanna og hafa eflaust þurft áfallahjálp eftir að úrslitin komu í ljós þarna á laugardagskvöldið. Hvert er þessi heimur eiginlega að fara? Jú, beint til helvítis að þeirra mati. Ég mæli með að fólk hætti að taka þessa keppni jafn alvarlega og heilaskurðaðgerð og reyni að búa til eitthvað stuð úr þessu. Norðmenn gætu sent eitthvað hresst blackmetal band, finnar sendu snillingana í Leningrad Cowboys og annað í þeim dúr. Hér sjáum við t.d mynd af hinni merku norsku hljómsveit Gorgoroth sem fengi gamlar konur til að krossa sig í bak og fyrir áður en þær hnéu í ómegin og eldri kallar misstu slag úr hjartagangráðnum.
Um þar síðustu helgi var kíkt aðeins út á lífið með Forska og Frú Líkjör sem átti tæplega hálfrar aldar afmæli. Eftir óheyrilegt pastaát á Ítalíu sem endaði með því á Forski fékk harðlífi þá var kíkt á Thorvaldsen í tvo-sjö bjóra og rauðvínsuppskeru lítils sveitabýlis skolað niður með (þ.e það sem Forski og Frúin létu ofan í sig). Ég var hins vegar komin heim snemma enda óbeinar reykingar álíka mikið áhugamál hjá mér og vetrarólympíuleikarnir sem by the way ég vissi ekki að væru í gangi fyrr en ég skoðaði eitthvað dagblað í gær.
Síðan var afmælið haldið hátíðlegt á dannaðri hátt með kaffi og pönnsum og hele familíen í Vogunum á sunnudeginum. Frúin var þó eitthvað slöpp þarna framan af degi og þurfti aðeins að halla sér, sjálfsagt einhver bölvuð fuglaflensa bara.
Svona að lokum þá vona ég að Monopoly hafi það gott á Akureyri. Hún er víst búin að smakka þennan Brynjuís sem er ekkert annað en frosin undanrenna og hefur keypt sér kók í bauk og pulsu með kartöflumús og rauðkáli. Ætli hún verði ekki farin að tala eins og Cortes jr. þegar hún kemur til baka?
Og svo er það ekkert annað en að mæta á valentínusarþorrablótið á laugardaginn þó Hammers verði sárt saknað þar sem hann verður á Akureyri(hvað er þetta eiginlega með Akureyri?) og mun þar koma fram sem leynigestur á árshátíð Kíwanisklúbbsins Sumarliða.
|

Já, svo við höldum okkur við ferðalagið þá fékk ég mér góðan göngutúr í fjörunni og gott ef það sást ekki grilla í fótspor eftir Forska í sandinum þar sem hún hafði hlaupið um tindilfætt í slow motion þarna í fyrrasumar í spænskri sveiflu sem breyttist skyndilega í ameríska hrollvekju þar sem Forski var ofsótt af whita trash zombíum og Prince Charming var ekkert svo charming eftir allt saman heldur hafði verið sendur frá Trailerpark from hell til að leggja líf Forska í rúst. En Forski sá að lokum við kauða, gaf honum drag í höfuðið og spark í rumpinn og málið var dautt.
Á sunnudeginum var var risið úr rekkju löngu áður en hanarnir svo mikið sem opnuðu annað augað (kl. hálf níu!) og brunað af stað í Ólafsvík með nokkrum vöskum mótorhjólaköppum sem ætluðu að gera þar heiðarlegar tilraunir til að fótbrjóta sig. Það er nefnilega hægt að gera það á margan annan hátt en að fara á skíði.
Þar sem við erum á heimleið er staldrað við í sjoppu í Ólafsvík til að kaupa sér eitthvað að borða. Þar sem úrvalið var ekkert gríðarlegt var skellt sér á einn borgara og haldiði ekki að hann hafi komið með spældu eggi?! Svona eru víst borgararnir í sveitinni enn framreiddir. Og þar sem ég sit og borða spæleggsborgarann minn þá kemst ég ekki hjá því að sjá hluta af þættinum Það var lagið með Hemma Gunn þar sem sjónvarp inni á búllunni var á fullu blasti og Hemmi smælaði framan í heiminn og eitthvað fólk söng af meiri ákefð en getu íslensk sveitaballalög frá 1950. Þetta held ég að sé versti sjónvarpsþáttur sem ég hef séð (ja nema kanski fyrir utan þáttinn sem Barði í Bang Gang var einu sinni með á Skjá Einum en Barði er einhver ófyndnasti brandarakall sem sögur fara af) og hef ég séð þá marga, belive me! Þetta var mér sagt að væri einn vinsælasti þátturinn í Ríkisimbanum og er það greinilegt dæmi um að íslenska þjóðin sé að eldast.
Þó ég hafi ekki sjónvarp og sé ekkert á leiðinni með að fá mér svoleiðis eftir reynsluna af Hemma Gunn þá getur maður nú ekki annað en talað aðeins um Júróvisjón dramað. Júróvisjón gæti jafnvel orðið skemmtilegt ef fleiri svona freakshow eins og Silvía Nótt væru send í g

Um þar síðustu helgi var kíkt aðeins út á lífið með Forska og Frú Líkjör sem átti tæplega hálfrar aldar afmæli. Eftir óheyrilegt pastaát á Ítalíu sem endaði með því á Forski fékk harðlífi þá var kíkt á Thorvaldsen í tvo-sjö bjóra og rauðvínsuppskeru lítils sveitabýlis skolað niður með (þ.e það sem Forski og Frúin létu ofan í sig). Ég var hins vegar komin heim snemma enda óbeinar reykingar álíka mikið áhugamál hjá mér og vetrarólympíuleikarnir sem by the way ég vissi ekki að væru í gangi fyrr en ég skoðaði eitthvað dagblað í gær.
Síðan var afmælið haldið hátíðlegt á dannaðri hátt með kaffi og pönnsum og hele familíen í Vogunum á sunnudeginum. Frúin var þó eitthvað slöpp þarna framan af degi og þurfti aðeins að halla sér, sjálfsagt einhver bölvuð fuglaflensa bara.
Svona að lokum þá vona ég að Monopoly hafi það gott á Akureyri. Hún er víst búin að smakka þennan Brynjuís sem er ekkert annað en frosin undanrenna og hefur keypt sér kók í bauk og pulsu með kartöflumús og rauðkáli. Ætli hún verði ekki farin að tala eins og Cortes jr. þegar hún kemur til baka?
Og svo er það ekkert annað en að mæta á valentínusarþorrablótið á laugardaginn þó Hammers verði sárt saknað þar sem hann verður á Akureyri(hvað er þetta eiginlega með Akureyri?) og mun þar koma fram sem leynigestur á árshátíð Kíwanisklúbbsins Sumarliða.
föstudagur, febrúar 10, 2006
Mál málanna í dag er auðvitað Eurovision. Það er hreinlega ekki talað um annað. Skítt með það þó múslimar um allan heim séu að verða enn geðveikari en þeir hafa nokkurn tíma verið (og ekki þótti manni á það bætandi), en verður Silvía Nótt með í keppninni eða ekki?! Ok, mér finnst Silvía Nótt svolítið fyndin oft og svo sem allt í lagi að hræra upp í þessari voluðu keppni en þetta lag er bara sorp!! Þá er ég ekki að segja að hin lögin í keppninni séu eitthvað skárri, síður en svo. Þar sem ég hef ekki sjónverp þá hef ég ekkert séð af þessu óskapnaði en ég hef heyrt nokkur lög í útvarpinu. Það besta af öllu (eða það versta, eftir því hvað maður hefur mikinn húmor fyrir þessu) var lag sem var svona típískur Geirmundar slagari nema hvað höfundurinn (sem by the way er örugglega að nálgast eftirlaunaaldur) hefur ákveðið að reyna að höfða til unga fólksins og skellt rappkafla inn í mitt lagið sem átti jafn mikið heima þar og Osama Bin-Laden á flokksþingi repúblikana. Svo eru einhverjar gamlar kellingar frá Tálknafirði eða álíka útkjálkum hringjandi inn alveg brjálaðar yfir þessari dónalegu kvensnift sem þeim finnst Silvía Nótt vera og vildu helst sjálfsagt hafa Ellý Vilhjálms eða Álftagerðisbræður þarna. Og aumingja Birgitta Haukdal, hvers á hún að gjalda? Það virðist öllum vera sama um lagið hennar og aðdáendurnir hafa snúið við henni bakinu, allt út af Silvíu Nótt. Birgitta er orðin eitthvað so yesterday! Get on your horse and ride into the sunset, lady!
Ég var að fletta blaðinu Birtu áðan sem væri ekki í frásögur færandi nema hvað, að þar á forsíðu er Cortes drengurinn sem að ég komst að við lestur blaðsins að hefur verið valinn kynþokkafyllsti karlmaður landsins af hlustendum tveggja útvarpsstöðva. Sko! Ég hreinlega veit ekki hvort þetta segir meira um afburða lélegan smekk íslenskra kvenna á karlmö
nnum eða hvort að úrvalið er hreinlega ekki skárra. Var ekki líka Logi Bergmann valinn hérna um árið? Come on...maðurinn er með ferkantaðan haus! Hann er eins og Max Headroom í framan. Nei, hann ER Max Headroom. Og ef mig misminnir ekki þeim mun meira þá held ég að Stefán Jón Hafstein hafi hampað þessum titli. For crying out loud!!! Hver verður valinn næst? Geir Ólafsson? Halldór Ásgrímsson? Nei, ætli það verði ekki bara Glanni Glæpur! Hvar eru allir þessir myndarlegu íslensku karlmenn eins og....eehh...uuhhmm...ööö?! OK, ég læt ykkur vita þegar mér dettur einhver í hug.
Svo er það þessi mongólíti þarna, fyrrverandi herra Ísland sem lítur út eins og William Hung á ljósabekkjatrippi og mér skilst að sé varla talandi. Var ekkert skárra í boði? Cortes drengurinn hefði átt að taka þátt í þessu líka. Hann hefði getað farið með leikþátt úr Nonna og Manna, pantað sér kók í bauk og pulsu með kartöflusalati á akureyrísku og klikkt svo út með vel valin
ni aríu úr Rígólettó. En við hér á blogginu eigum líka okkar eigin kandídat í herra Ísland. Eins og flestir vita hefur BB verið að taka á því í ræktinni og er kominn með þennan líka svakalega six-pack. Og ekki nóg með það heldur er hann orðinn útlærður í notkun allra helstu tegunda ljósabekkja og til að setja punktinn yfir i-ið þá skellti okkar maður sér í allsherjar yfirdekkun með klippingu, litun og öllum pakkanum og eins og sést á myndinni hér til hægri er meira hunk vandfundið á þessu skeri í dag og kvenfólkið hreinlega rennur til í sætunum þegar kallinn mætir á svæðið. Gillzenegger hvað (eða hvað svo sem þessi ljósabekkjauppskafningur kallar sig)?!
Forski og Tensai San eru væntanlega núna byrjaðar að undirbúa menningarreisuna miklu til Glasgow í næstu viku. Tensai San veitir ekkert af því að komast í burtu frá öllum æstu aðdáendunum og kokteilboðunum og öllum þessum heimsóknum á Bessastaði sem eru örugglega farnar að verða þreytandi. Svo maður tali nú ekki um öllum heiðursnafnbótunum sem Tensai San er hreinlega búin að missa tölu á. Heiðursfélagi í kattavinafélaginu, kona ársins hjá bílgreinasambandinu, heiðursborgari í Trékillisvík, bjartasta von ársins hjá þjóðdansafélaginu og svona mætti lengi telja upp. Tensai og Forski ætla því að eyða nokkrum dögum í að finna út hvort skoskir karlmenn eru í nærbuxum undir skotapilsinu og heimsækja nokkrar haggisverksmiðjur. Menningarlegra getur það nú ekki verið.
Ég vil svo að lokum óska Frú Líkjör til hamingju með afmælið á sunnudagin en hún fæddist um það leiti sem talsíminn var fundinn up.