Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
þriðjudagur, maí 30, 2006
Einhvernvegin kom það mér ekkert ofboðslega á óvart hvernig þetta endaði allt saman í Reykjavík eftir kosningarnar. Framsóknarflokkurinn er eins og allir ættu að vera farnir að vita mesta hóra íslandssögunnar og væri það mikil landhreinsun að losna við það snýkjudýr af yfirborði jarðar. Þar sem herferðin Eiturlyfjalaust Ísland árið 2000-og-eitthvað virðist gjörsamlega dæmd til að misheppnast þá vil ég leggja til nýja herferð sem yrði Framsóknarlaust Ísland árið 2010.
Ég hef stundum verið að velta því fyrir mér nákvæmlega hvaða fólk það sé sem kýs Framsóknarflokkinn af fúsum og frjálsum vilja? Ef það er restin af gamla liðinu sem ekki kýs íhaldið af því að Ólafur Thors var svo góður maður, þá vorkenni ég því hreinlega ekki neitt að búa 12 saman í 15 fermetra herbergi og borða gamalt rúgbrauð og súrt skyr í hvert mál. Við værum nefnilega öll að borða gamalt rúgbrauð og súrt skyr í hvert mál og byggjum í óeinangruðum timburhjöllum uppi í afdölum með sultardropana á nefinu ef þessi flokkur hefði fengið að stjórna eftir sínu höfði. Reyndar skildist mér að örvisa gamalmennum hefði verið rúllað í löngum bunum í hjólastólunum til að setja x við bé og gott ef ekki líkhúsin voru tæmd líka. Það sést víst líka voða lítill munur á "vistmönnum" þar og forystumönnum flokksins.
En þetta er víst það sem Reykvíkingar vilja, annar Kópavogur. Fullt af nýjum húsum en ekki nokkra hræðu að sjá enda ekkert gert fyrir fólkið sem býr í öllum þessum húsum nema þá að búa til fleiri moll og stærri bílastæði. Nákvæmlega jafn aðlaðandi og amerískt úthverfi. Það kom í póstinum í dag bæklingur þar sem verið er að kynna Lista- og menningarhátíð í Hafnarfirði sem á að standa yfir í 10 daga. Ég er að reyna að láta mér detta eitthvað í hug sem hefur verið gert í Kópavogi íbúunum til upplyftingar síðustu 18 árin eða svo en hreinlega dettur ekki neitt í hug nema að það hafa verið byggð alvega rosalega mörg hús.
Við skulum bara rifja upp hvernig Reykjavík var fyrir ekki svo rosalega mörgum árum síðan. Engin Menningarnótt, ekkert Gay Pride, engin Vetrarhátíð, ekkert Iceland Airwaves, næstum engin kaffihús, bannað að vera með borð og stóla úti á gangstétt, allir skemmtistaðir loka kl. 3, ekki hræða á ferli í miðbænum eftir kl. 6 á virkum dögum, ekkert Hitt hús fyrir krakkana, engin Unglistahátíð, engin Hátíð hafsins o.fl, o.fl. En Reykvíkingar (en þó ekki meirihluti þeirra sem greiddu atkvæði hversu furðulega sem það hljómar) hafa valið það að kjósa gömlu herrana yfir sig aftur og við þá segji ég bara verði ykkur að góðu.
En maður á ekki að láta pólitíkina fara of mikið í taugarnar á sér heldur reyna að gera eitthvað skemmtilegt. Ég t.d eyddi helginni í sveitasælunnu á Kirkjubælarklaustri og fylgdist með 400 mótorhjólum djöflast upp og niður brekkur. Fór m.a.s á pöbbinn á staðnum á laugardagskvöldinu og komst að því að fullt fólk er alveg jafn leiðinlegt sama hvar það er á landinu.
Nú er nefnilega motocross sísonið byrjað á fullu og þá fer maður að bregða undir sig betri fætinum um helgar og fylgjast með látunum. Mér finnst það samt alveg merkilegt að manneskja sem hefur jafn lítinn áhuga á vélknúnum farartækjum og ég og enga löngun til að eignast slíkt skuli detta inn í að hafa gaman af að fylgjast með þessu sporti. Ég held að það sé jafn mikið úr karakter og áhugi minn á dísætum bleikum kokteilum. En það er eitthvað við það að standa með myndavélina út í braut og horfa á 100 mótorhjól koma æðandi að manni og eiga svo fótum fjör að launa svo maður tali nú ekki um ef einhver dúndrast á hausinn og flýgur 100 metrana á í frjálsu falli og fær svo alla þvöguna yfir sig. Það er gaman!
Ég rakst um daginn á afar sjaldséðan bröndóttan hrafn sem var sjálfur íþróttaálfurinn BB á gulu ógninni akandi niður Laugaveginn. hann gaf sér þó tíma frá öllu sportinu til að drekka með mér nokkra kaffibolla í góðu yfirlæti á Kaffibrennslunni. Ég geri ráð fyrir að hann eigi ekki eftir að sjást meir opinberlega fyrr en eftir að körfuboltakeppni ólæsra og málhaltra gettónegra líkur í ameríku og lærasýningunnu miklu líkur í Þýskalandi í sumar. Þá tekur við íslandsmótið í langspyrnum með atrennu sem leikið er á tyrfðum kartöflugörðum um landið í sumar og öllum er sama um hvernig fer svo framarlega að KR vinni ekki. Ég ætla reyndar að fylgjast aðeins með HM en á eftir að gera upp hug minn með hverjum ég held til vara ef Hollendingar vinna ekkert. Ég þarf að skoða myndir af liðunum áður en ég get eitthvað ákveðið mig um það en ég held ég geti sagt það strax að það eru ekki Þjóðverjar, hormotta og sítt að aftan er ekkert sérstaklega foxy. Ítalir hafa alltaf verið ákaflega huggulegir og sömu leiðis Portúgalir og nú eru með lið frá suður-ameríku sem vert er að skoða nánar. Ég er líka alfarið á móti þeirri reglu sem bannar leikmönnum að fara úr treyjunni ef þeir skora mark. Ég meina, á nú að taka allt fönnið úr þessu? Það er sko greinilegt að það eru karlmenn sem stjórna þarna sem hafa engan sens fyrir því sem kvenkyns áhorfendur hafa gaman af. Þetta er líka arfavitlaust frá peningalegu sjónarmiði því að ef konur færu að fylgjast með fótbolta líka þá er kominn nýr hópur sem auglýsendur gætu reynt að selja vöru sína og það væri hægt að fara að auglýsa eitthvað annað en bjór, bíla og snakk í hálfleik
|

sunnudagur, maí 21, 2006

Hverjum hefði eiginlega dottið í hug að nokkrir sveittir finnar í latexbúningum myndu vinna júróvisjónkeppnina?! Þessi keppni gæti orðið mjög áhugaverð á næsta ári því hefðin er sú að allir hinir reyna að apa eftir þeim sem vann árið áður. Ég sé fyrir mér eintóma Kiss og Manowar klóna en þó með smá þjóðlegum tilbrigðum eins og t.d tyrkneski keppandinn væri eldspúandi magadansmær og rússneski keppandinn dansaði kósakadans á lendarskýlu með plastsverð. Við sendum auðvitað Birgittu Haukdal í Marilyn Manson átfitti. Gæti litið svona út. Alltaf jafn sexy hún Birgitta. Pant vera með júróvisjónpartý á næsta ári!
Fyrir utan júróvisjón þá ber auðvitað hæst núna kosningarnar um næstu helgi. Eitthvað virðist vera farið að gæta örvæntingar hjá Framsóknarflokknum því kosningaloforðin eru orðin ansi skrautleg. Það nýjasta er að flokkurinn lofar ókeypis pólskri heimilishjálp á hvert heimili, þriggja daga vinnuviku, að mislæga monsterið þarna við Landspítalann verði selt og ágóðanum skipt á milli allra borgarbúa (arkitektafélagið hafi lýst áhuga á að kaupa enda þyki þeim fátt fegurra en slaufur og mislæg gatnamót), flugvöllurinn bæði verður og fer(eftir því hver spyr), sundabrautin verður á öllum þrem stöðunum, gamla fólkið fær nautasteik og súkkulaðikökur í öll mál, það verða opnir leikskólar allan sólarhringinn, gerð verða jarðgöng upp í Árbæ og byggt álver í Breiðholtinu, allir fá ókeypis bílastæði og svo mun flokkurinn beita sér fyrir því að allt verði stærra, betra, hærra, lengra og auðveldara en umfram allt kosti minna (ekki skilgreint nánar). Ég meina, hver fellur ekki fyrir svona kosningaloforðum?
Þá er þetta aðeins einfaldara hjá Sjálfstæðisflokknum. Aðal stefnumálið virðist vera fleiri bílastæði og fleiri einbýlishús. En það virðist vera það sem Reykvíkingar vilja helst samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. Við erum auðvitað öll það moldrík að það eru minnst 3 jeppar á hverju heimili og einhversstaðar verða þeir allir að geta lagt og svo duga okkur ekki aumingjalegar blokkaríbúðir undir leðursófasettin og plasmaskjáina. Svo er það gamla fólkið sem er tískumálefnið í ár. Nú, það býr auðvitað bara í kjallaranum á 400 fermetra einbýlishúsunum sem við komum öll til með að búa í ef Flokkurinn kemst til valda og er sinnt af pólskum og tælenskum eldabuskum þegar við erum of bissí við að selja verðbréf eða kaupa fyrirtæki í útlöndum. Það er sko full time job að standa í allri þessari útrás.
Þar sem enginn í Flokknum kannast við að það sé til fátækt fólk á Íslandi (félagsmálarónarnir í Fellahverfinu hafa það bara fínt á öllum þessum örorku- og atvinnuleysisbótum sem þeir fá upp í hendurnar án þess svo mikið sem að selja eitt hlutabréf) þannig að það er issjú sem er engin ástæða til að ræða þó uppgjafakommarnir og sænska sósíalliðið á vinstrivængnum sé sífellt eitthvað nöldrandi um einstæðar mæður með 6 börn og 100.000 kall á mánuði. Svoleiðis er bara til í Búlgaríu og þannig löndum enda engin álver þar.
En það er ekki nóg að vera með eitthvað eintómt tuð en hafa svo ekkert til málanna að leggja þannig að ég hef sett saman lista yfir þau mál sem ég myndi leggja áherslu á ef ég væri einráður borgarstjóri (svona svipað og Davíð var).
-Öll ljót hús yrðu rifin. Hús eins og Landsbankahúsið Laugavegi 77, Mál og Menningarhúsið, gamla Morgunblaðshöllin (sem ég myndi rífa sjálf prívat og persónulega), húsið sem strætóstoppustöðin var í á Lækjartorgi, Suðurlandsbrautin eins og hún legði sig og meiriparturinn af Ármúla og Síðumúla. Fellahverfinu yrði leift að standa sem minnisvarða um ömurlegan arkitektúr og komandi kynslóðum víti til varnaðar.
-Arkitektum yrði bannað að koma nálægt nýbyggingum
-Jeppar væru bara leyfðir í úthverfum
-Þeir sem fengju pening hjá Féló þyrftu að vinna þegnskylduvinnu í staðinn eins og að mála grindverk, leggja hellur eða fara út að labba með gamlar konur. Engin ástæða til að láta þetta lið liggja bara fullt heima hjá sér öllum til ama og engum til gagns.
-Þeir sem vilja láta aðra passa krakkana sína á dagin verða að gjöra svo vel að borga fyrir það. Það er engin skyldugur að hrúga niður börnum so it´s your problem.
-Það verður bannað að byggja fleiri verslunarmiðstöðvar. Það er hægt að hrúga þessum mollum upp í Kópavogi. Kópavogur verður hvort eð er varla ljótari en hann er.
-Burt með þennan flugvöll. Fólkið sem er að fljúga utan af landi er hvort sem er allt að fara til Keflavíkur á leiðinni á Benedorm
-Mislæga slaufumonstrið við Landspítalann verður líka flutt í Kópavoginn þar sem það er meira í stíl við bæjarmyndina. Hvað er eiginlega að götum sem liggja beint áfram ?
-þetta hátæknisjúkrahús getur líka verið einhversstaðar annarsstaðar en þar sem á að troða því niður núna. Veiku fólki er alveg sama hvar fjandans spítalinn er. Það er ekki að rölta í bæinn og kíkja á kaffihús eða eitthvað! Þetta verður líka einhver alger óskapnaður ef íslenskir arkitektar komast með puttana í þetta og best að það sé í sjónfæri sem fæstra. Og hvað er líka pointið með að byggja trilljón fermetra spítala fyrir 10 skrilljónir þegar ekki eru til peningar til að reka þennan sem fyrir er og eina fólkið sem vinnur þar sem er íslenskumælandi eru stjórnendurnir?
-Það yrði gerð göngubrú út í Viðey, Árbæjarsafn flutt í Hljómskálagarðinn og gosbrunnur settur á Lækjartorg. Það yrði þá kanski einhverntíma fólk á þessum stöðum.
Þetta er bara svona það helsta sem ég tel að þurfi að gera í borginni
þriðjudagur, maí 16, 2006

"I´ve been framed!!! The cat did it!!"
Topp 10 lögin hjá Sjálfstæðismönnum í Árborg (nú Tuborg)
1. Highway to hell - AC/DC
2. Whisey in the jar - Thin Lizzy
3. One scotch, one bourbon, one gin - Georga Thorogood
4. Road to nowhere - Talking Heads
5. Det var brennivin i flasken da vi kom - Kór sjálfstæðisfélagsins Bakkusar
6. Drunk like me - Dogs D´Amour
7. Baby you can drive my car - Beatles
8. Sjúddí rarí rei - Gylfi Ægisson
9. Blindfullur - Stuðmenn
10. Stál og hnífur - Bubbi (alltaf sungið á 6. glasi)
mánudagur, maí 15, 2006
EYÞÓR ARNALDS FOR PRESIDENT!!!!!!
|
Já kallinn minn, breytinga er sko þörf. Go Eyþór!!
mánudagur, maí 08, 2006
það er ekki hægt að segja annað en að ýmislegt hafi á daga manns drifið síðan síðast enda liðinn allt of langur tími frá síðustu færslu. Það eru búnir páskar og 1. maí og hvítasunnan er handan við hornið. Meðan ég var að pikka þetta inn var ég að spá í hvað hefði svona merkilegt gerst um hvítasunnuna að heilu þjóðirnar þurfi að halda upp á það með því að fara á fyllirí föstudag, laugardag og sunnudag, vera að drepast úr þynnku á mánudegi og vera restina af vikunni að jafna sig eftir fríið. En ég get bara ómögulega munað hvaða kristilegu stórvirki voru framin þessa helgi.
Ekki það að ég hafi setið að einhverju sumbli. Ég lenti í því að þurfa að mæta í fermingarveislu og þar sem það var innan fjölskyldunnar þá var víst skyldumæting. Trikkið við svona veislur er bara að koma seint og fara snemma. Ég slapp hins vegar naumlega við það...afskið, rétt missti af því að mæta í fermingarveislu hjá Frú Líkjör. Ég sem var m.a.s búin að kaupa Passíusálmana handa fermingarbarninu áritaða af höfundinum. Mini Monopoly fékk nefnilega einhverja kokkaveiki og þar sem Monopoly var dræverinn þá komst ég hvorki lönd né strönd. Þessi kokkaveiki er sjálfsagt tilkomin af því að Monopoly elur barnið á grænmeti og hver yrði ekki veikur af að borða svoleiðis í hvert mál? Og að það sé eitthvað hollt og grennandi eins og þessi Solla þarna grænmetisbulla heldur fram er alger misskilningur. Ég á t.d kanínu sem étur ekkert nema gras og kál en er samt alger hlunkur, útskýrið það?!
Talandi um Monopoly þá brá hún undir sig betri fætinum ásamt Mini Monopoly og skellti sér til London í afslöppun sem væri ekki í frásögur færandi nema hvað að Londonía hefur legið rúmföst síðan. Álagið við að þurfa að brölta á fætur fyrir allar aldir heilt páskafrí (þ.e þegar Mini Monopoly fannst vera kominn fótaferðatími sem er vanalega fyrir sólarupprás) og streðið við að sópa upp smákökumylsnu og þurrka kámug fingraför í heila viku fór víst alveg með hana. Nei það er sko ekki tekið út með sældinni að eiga börn. Mér skilst að Móðir Jörð hafi ekki sofið út á þessari öld og sé hætt að þekkja önnur umhverfishljóð en organdi börn. Og svo ætlar Kokksi að fara að demba sér út í þetta allt saman án þess að blikna. En svona er þetta víst bara, það er m.a.s líka til fólk sem lætur hengja sig upp á krókum og stinga nöglum upp í nefið á sér og finnst það bara allt í lagi þannig að það er misjafnt hvað manskepnan sækist eftir segi ég nú bara. Svo situr aumingja Forski innan um allar þessar barnakerlingar og hefur ofan á allt þurft að hlusta á kúka-, ælu- og fæðingarsögur heilu og hálfu kvöldin. Og hversu grós er það?! Ef ég starfaði við krufningar haldiði að einhver hefði áhuga á að sitja undir lýsingum á rotnandi líkamshlutum, burtskornum útlimum eða skemmdum innyflum? Nei, ég hélt ekki.
Annars er Forski núna farin að sletta á Frönsku eftir dvölina í París sem að hennar sögn var alveg draumur. Ég var nú í París hérna um árið og fannst það ekki nema svona rétt í meðallagi. En ég hef engan áhuga á fatabúðum og finnst Móna Lísa bara ósköp venjuleg mynd af kellingu með Sólheimaglott. Allt er svíndýrt og Frakkar ótalandi á skiljanleg tungumál og montrassar upp til hópa sem éta grísaeyru, leðurblökuvængi og kolkrabbaeystu eða eitthvað álíka kræsilegt. Má ég þá frekar biðja um súrar beljulappir og úldinn fisk að íslenskum sið.
Ég er búin að sitja við tölvuna núna undanfarin kvöld og fara í gegn um allar myndirnar mínar. Ég er nefnilega búin að útvega mér nýja síðu til að setja þær á þar sem allir geta skoðað og það er vissara að hafa mig góða núna því hver veit annars hvað gæti lekið á netið. Svo kann ég líka á Photoshop svo það er hægur vandi að fara að stunda sögufölsun í stórum stíl ef ekki vill betur til. En þetta er slóðin: http://www.flickr.com/photos/lolla/
Ég var eitthvað að fletta blöðunum áðan þar sem ég er blessunarlega laus við þetta óþarfa apparat sem sjónvarp er og haldiði ekki að ein fyrirsögnin hafi verið um óeirðir í Breiðholtinu. Af fréttinni að dæma er komin borgarastyrjöld í Fellahverfinu þar sem fermingarbörn ganga berserksgang. Er þetta ekki lýsandi dæmi um þetta hverfi? Ég hef alltaf sagt að þarna væri bara vandræðapakk. Og hvar eru þá foreldrar þessara unglinga kann einhver að spyrja? Nú þeir sem eru ekki á Kaffi Strætó á happy hour milli 2 og 6 (það er á virkum dögum, um helgar sefur fólk út þannig að þá er happy hour milli 5 og 7) eru væntanlega bara sofandi heima hjá sér eða að horfa á sápuóperur í sjónvarpinu eða þá að verða sér út um auka pening hjá Féló ef örorkubæturnar hafa klárast. Vinna ku ver lítt þekkt fyrirbæri í þessu hverfi og eru það þá helst útlendingar sem ekki hafa náð að aðlagast nógu vel sem enn standa í þannig brasi. Og hverjir eru foreldrar hverra er líka oft æði óljóst þar sem nýjir pabbar flytja inn á heimilið á nokkura mánaða fresti og hvernig er hægt að muna hver er sá orginal? Til að leysa þetta vandamál legg ég því til að íbúar hverfisins verði fluttir allir með tölu til Keflavíkur þegar varnarliðið hunskast í burtu og verði komið fyrir þar sem það var. Það er m.a.s afgirt svæði og ekki of nálægt öðrum mannabyggðum nema þá Keflvíkingum sjálfum en það er eiginlega bara allt í lagi. Það geta þá allir slegist við alla á Traffic um helgar. Fellahverfið yrði síðan jafnað við jörð og flugvöllurinn fluttur þangað. Mörg vandamál leist á einu bretti!
P.S. Lofa því að láta ekki líða svona langt þar til næsti pistill kemur, fólk verður nú að geta fylgst með þeirri ábyrgu þjóðmálaumræðu sem hér fer fram. Já og svo eru að koma kosningar og Vilhjálmur Þ. búinn að setja upp sparihárkolluna. Meira um það síðar.