<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

sunnudagur, júní 25, 2006

Ég lagði heldur betur land undir fót í gær þar sem ég plataði Forska til að skreppa í laugardagsbíltúr alla leiðina til Þingvalla. Ég verð nú að viðurkenna að ég hafði aldrei komið til Þingvalla áður. Var sem sagt ekki með í neinum af þessum "menningarferðum" sem voru farnar þangað back in the days. Forgangsatriðin voru þó á hreinu í þessari ferð því fyrsti viðkomustaður var Hótel Valhöll þar sem við fengum okkur kaffi og ostaköku. Það er ekki hægt að ætlast til að maður sé sársvangur og illa haldinn af ostakökuskorti að príla upp brekkur úti í sveit. Afskaplega ánægjuleg ferð í alla staði. Mér fannst þó Forski vera farin að haga sér eitthvað undarlega á tímabiuli þar sem við máttum ekki labba fram hjá miðlungs stóru túni án þess að hún fylltist einhverju víðáttubrjálæði og hlypi um það endilangt gólandi og veifandi höndum í allar áttir. Einhver sá undarlegasti fetis sem ég hef heyrt um!
Og hvernig fannst mér svo Þingvellir? Jú jú, þetta vara bara alveg ljómandi fínt. Nú á ég bara eftir að fara á Gullfoss og Geysi og skoða trailer parkið á Laugarvatni. Við Forski höfum svo líka ákveðið að gerast menningarlegar og fara á Njáluslóðir einhvern góðviðrisdaginn. Menningarferð þýðir núna vel undirbúið ferðalag með gönguskó og örnefnakort en ekki skyndiákvörðun á laugardagsmorgni með whiskyflösku og gettóblaster. Hmmm...hitt hljómar nú bara ekki svo illa eftir á að hyggja!!




Nú er HM í fótbolta á fullu eins og hefur sjálfsagt farið fram hjá fæstum. Ég er búin að fara að sjá 2 leiki á pöbb niðri í bæ og ætla að kíkja á einn eða tvo leiki í dag. Á eftir eru nefnilega hollendingar að spila við portúgala og svo á morgun eru ítalir að spila við einhverja. Ég læt mig hafa það þó ítalir spili hundleiðinlegan fótbolta og hafi alltaf gert svo framarlega sem þeir eru sýndir í nærmynd. Það var því mikið áfall þegar ég sá það í Fréttablaðinu í morgun að Nesta verður ekki með í leiknum en við það lækkar fegurðarstuðullinn þónokkuð. Ég hef hvorki horft á leiki með englandi né þýskalandi og versta martröðin væri sú að þessi tvö lið spiluðu til úrslita. Það yrði verst útlítandi úrslitaleikur frá upphafi. Sjáiði (eða helst ekki) t.d Wayne Rooney! Hann lítur út eins og Denni dæmalausi á sterum! Það hlítur að vera deginum ljósara hvað lið maður velur til að horfa á.

Ákveðnir meðlimir brönsklúbbsins stungu upp á því á síðasta brönsfundi að flytja fundarstaðinn frá Kaffi París og eitthvað annað þar sem Tensai san líkaði ekki matreiðslan á téðu kaffihúsi. Eggin voru víst ekki rétt hrærð og brauðið of mikið ristað öðru megin, svo var baconið of hart og djúsinn of blautur. Tensai san er nefnilega kona sem veit hvað hún vill. Aðrir klúbbmeðlimir voru auðvitað jákvæðir á að gera breytingar og stungið var upp á um það bil öllum veitingastöðum í Reykjavík að Péturspöbb uppi á Höfða undanskildum, en einhver fann eitthvað að þeim öllum. Einum fannst of mikið reykt á Brennslunni, Thorvaldsen var of artý fartý, kaffið var vont á Oliver, það var of mikið af organdi smábörnum á Te og kaffi, stólarnir voru óþægilegir á Súfistanum, það var djammlykt á Vegamótum, þjónustan var ömurleg á Sólon o.s.frv, o.s.frv. Niðurstaðan varð sem sagt að vera áfram á Kaffi parís enn um sinn. Tensai san verður því bara að koma með nesti.
|

þriðjudagur, júní 13, 2006

Ég vil byrja á að óska Kokksa til hamingju með afkvæmið!!! En þar sem Kokksi gerir enga hluti eins og flestir aðrir þá gekk þetta víst ekki alveg samkvæmt planinu. Eftir að hafa gengið með í tæpt ár var Kokksi hætt að geta gengið inn um einbreiðar dyr og þurfti að fara á milli staða í jarðýtu og ekkert bólaði á barninu ákváðu læknarnir að grípa til sinna ráða og ná í krakkan með valdi sem var og gert síðustu nótt. Prinsinn var sem sagt tekinn með keisaraskurði og heilsast víst báðum bísna vel eftir allt saman. Ekki veit ég alveg af hverju þetta heitir keisaraskurður né hvernig hann er framkvæmdur og hef ekki hugsað mér að komast að því. Ég sá einu sinni mynd af fæðingu í sjónvarpinu sem mér fannst álíka yndislegt og að horfa á opið beinbrot eða heilaskurðaðgerð á miðöldum. En það er misjafnt hvað fólki finnst fagurt. Sumir halda t.d ekki vatni af hrifningu yfir Barry Manilow.

Það er allt að gerast í pólitíkinni þessa dagana. Halldór Ásgrímsson viðurkenndi loksins að þessi volaði flokkur sem hann stýrir hafi fyrir löngu drullað upp á bak og ákvað að yfirgefa skútuna meðan hún þó maraði enn í hálfu kafi. Fyrir algera tilviljun á svo væntanlega eftir að losna seðlabankastjóra staða eða feitt sendiherradjobb. Hann klikkaði bara á einu. það eru ekkert nema hálfvitar í þessum flokki svo það að finna formann í staðinn var ekki eins auðvelt og að segja það. Halldór hafði ákveðið að Guðni hætti líka til að hann fengi ekki djobbið þó hann væri varaformaður og því fremstur í röðinni. Guðni sagðist bara ekkert ætla að hætta. Þá voru í örvæntingu dregnir fram allskonar grasasnar sem líklegir kandídatar og hætti maður alveg að fylgjast með á tímabili hver var næstur. Til að leysa þennan vanda ætla ég að stinga upp á því að Guðlaugur Laufdal trúbadorinn geðþekki á Omega verði formaður. Flokkurinn þarf mann sem hefur bjargfasta trú á verkefninu og ekki verra að hann geti gripið í gítarinn við hin ýmsu tækifæri. Framsóknarflokkinn hefur alltaf vantað sinn eigin Árna Johnsen. Varaformaður yrði svo Reynir Pétur göngugarpurinn glaðbeitti á Sólheimum. Maður sem talar beint frá hjartanu og hefur útgeislun og ekki verra að hann geti gengið hringinn í kring um landið og hitt kjósendur. Ég meina, hvað annað er hægt að nota 8 mánaða sumarfrí í?

Það rekur hver stórundarlegi atburðurinn annan þessa dagana. Ég sagði frá því um daginn að ég hefði rekist á BB á förnum vegi sem út af fyrir sig er álíka algengt og sumar á Íslandi (frétti af því að núna væri hann ofan á allt annað farinn að lesa veðurfréttirnar á NFS...eða var það að sjá um Brúðkaupsþáttinn Já...?). Sá fáheyrði atburður gerðist nefnilega í síðustu viku að Móðir Jörð dúkkaði óvænt upp rétt si svona í bænum. Og engin börn með!!! Ég komst reyndar að því að þessi óvænta en engu að síður ánægjulega heimsókn átti sér sínar skýringar sem voru ekki þær að Móðir Jörð ákvað það einn eftirmiðdaginn að kíkja í kaffi og spjall í rólegheitum til vina sinna. Úr sveitinni var það helst að frétta að spretta er í meðallagi, ær flestar tvílembdar og kvenfélagið verður með kökubasar og hlutaveltu á 17. júní þar sem séra Ingjaldur á Saurum mun flytja hátíðarræðu.
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?