Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
sunnudagur, júlí 23, 2006

Það hefur ýmislegt á daga mína drifið frá því síðast, það merkasta er auðvitað að einn af föngulegri karlpeningu heims er nú laus og liðugur. Nei Forski, ég er ekki að tala um Klístrómedis eða Sófóklepís eða einhverja aðra Grikki á náttsloppum heldur sjálfan Dave Navarro. Monopoly var reyndar fljót að átta sig á þeirri "einstöku tilviljun" að Frú Líklör sagði skilið við sinn ektamaka til 40 ára og 12 börnum seinna nákvæmlega um það leiti sem fréttist að Dave væri aftur avalible!
Annað markvert er að ferðaklúbbur Forska og Grumpu lagði aftur land undir fót eftir vel heppnaða ferð á Þingvelli um daginn og skellti sér á Gullfoss og Geysi með öllum hinum túristunum. Því miður er samt útlit fyrir að ferðum fari eitthvað fækkandi á næstunni þar sem Forski situr nú sveitt og grúskar í bókum og skrifar BA ritgerð svona þegar allt heilvita fólk situr úti í sólbaði og borðar ís.
Brönsklúbburinn lagði líka land undir fót og gerði góða ferð á Selfoss þar sem ostakökurnar runnu ljúft niður. Sá merki atburður átti sér þar líka stað að allir meðlimur mættu auk þess sem Móðir Jörð kom sem sérstakur gestur alla leið frá Eyarbakka hefur annað eins ferðalag varla verið lagt á eina manneskju síðan landpóstarnir voru og hétu. En hvað gerir fólk ekki til að hitta vini sína? Kokksi kom svo með afkvæmið til að sýna það gestum og gangandi og var það mál manna að þar færi einstaklega fallegt barn og það besta var að það svaf allan tímann.
Það er samt eitt sem ég skil ekki alveg í samskiptum fólks við lítil börn. Af hverju þarf fólk að tala einhverja fíflalega "smábarnamállísku" þegar það talar við litla krakka? Skilja börn eitthvað frekar mu mu en orðið belja eða voffi frekar en hundur ef þeim er bara kennt það strax í upphafi að þessi gjammandi háruga skepna heiti hundur, punktur? Til hvers að vera að flækja hlutina með einhverjum afbökuðum orðskriflum? Og það sem fer mest í taugarnar á mér er dudda! Hver fjandinn er eiginlega dudda?! Gúmmítúttan sem troðið er upp í börn til að þau þegi heitir snuð og hefur alltaf gert, for crying out loud! Hvernig ætti setningin "hættu þessu voli eða þú færð snuðið þitt aldrei aftur" að vera óskiljanlegri tveggja ára barni en "hættu þessu voli eða þú færð dudduna þína aldrei aftur" nema hvað að einhverju orðskrifli sem ekki er til í íslensku máli er troðið þarna inn. Hver fann eiginlega upp á þessu?
Nú er um fátt annað rætt á kaffistofum landsins en Rockstar:Supernova og "okkar maður" hann Magni sem er að verða heimsfrægur karókísöngvari. Fólki sem tekst að búa til vinsælt sjónvarpsefnu úr því að draga fram þrjá afdankaða has beens, komna vitlausu megin við 40 árin og annað hvort of krumpaða eða grunsamlega lítið krumpaða í framan er virðingarvert út af fyrir sig svona markaðslega séð. Þar sem ég hef ekki séð nema um það bil 1/4 úr þætti af þessu ætla ég ekki að fara að dæma þetta neitt. Hins vegar vil ég koma með tillögu að íslensku útgáfunni sem Skjár 1 á alveg örugglega eftir að sjóða saman. Þessir þrír has beens verða sem sagt Gulli Falk, Siggi Reynis og Björn Blöndal. Þeir sem keppa um að verða söngvarar í þessari megagrúppu sem mun heita Terranova (alltaf svo frumlegir þarna á Skjá 1) verða t.d Jónsi í Svörtum fötum, Hreimur í Landi og sonum, Kalli Bjarni, Birgitta Haukdal, Ásgeir Kolbeins, Sveppi og fleiri "sannir rokkarar". Lögin sem keppendur verða látnir syngja verða heldur ekki af lakara taginu. Það verður t.d Rbbabara Rúna, Tvö hjól undir bílnum, Obla dí obla da, Wild boys og fyrir þá allra hörðustu I love rock´n ´roll.
Að lokum vil ég svo óska Monopoly til hamingju með .........(veljið tölu sjálf) ára afmælið!!!!!!!!!!!!
Já og eitt enn, ég komst að því að orðið TÖLVULEIKUR er töfraorð sem þarf að nota til að vekja Tensai San af cyberdvala. Svo hér er það: TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR, TÖLVULEIKUR....................
þriðjudagur, júlí 04, 2006

Til að upplýsa þær örfáu sálir sem ekki fylgjast með HM í fótbolta um gang mála þá voru Ítalir rétt í þessu að slá súrkálsæturnar með sítt að aftan (Þjóðverja) út úr keppninni!!!!!!
Þó svo að Nesta sé fjarri góðu gamni þá voru þarna margir aðrir í liðinu sem tóku sig einstaklega vel út á vellinum og þá enginn betur en Cannavaro (sjá mynd). Ítalir komu sérstaklega vel greiddir og snyrtilegir til fara til leiks og auk þess í lang flottustu búningunum í keppninni þannig að Harald Brautwursten og félagar í Þýska liðinu áttu aldrei möguleika. Já og by the way þá skoruðu Ítalir 2 mörk í leiknum.
Talandi um íþróttir, þá hef ég ekki lagt það í vana minn undanfarið að nenna að lesa íþróttasíðurnar í blöðunum en hef öðru hvoru verið að glugga í þær síðustu daga til að fylgjast aðeins með HM. Það væri hreinlega ekki í frásögur færandi nema hvað...að ég er komin á þá skoðun að íþróttafréttaritarar Fréttablaðsins séu upp til hópa málhaltir unglingar. Þar hefur verið að finna hverja amböguna og málvilluna eftir aðra...ja nema bara Bibba á Brávallagötunni sé komin í íþróttirnar! Það gekk nú alveg fram yfir alla þjófabálka vitleysan í blaðinu um daginn þar sem fjallað var um fyrrum fótboltahetju sem hafði hoppað út um glugga á 5. hæð. Mann greyið hefur greinilega átt eitthvað erfitt undanfarið, konan kanski farin frá honum með golfsettið og veiðistöngina en skilið organdi krakkana og sígjammandi hundinn eftir. Hann hefur því séð sitt óvænna og á dramatískan hátt hent sér út um glugga frekar en t.d að skjóta sig í hausinn (eða láta einhvern annan skjóta sig í hausinn að amerískum sið). Fyrr á öldum hefðu menn m.a.s stungið sig í hjartastað með gylltum rýting og sungið harmþrungna aríu í 8 versum á meðan þeim blæddi út...but anyway. Maðurinn sem sagt hoppar þarna út um glugga rétt si svona en það vill svo illa til að hann deyr ekki eins og hann hefur væntanlega reiknað fastlega með heldur liggur nú stórslasaður á spítala. Frá þessu gluggastökki segir þessi ungi íþróttafréttamaður og ætlar um leið að slá um sig með góðu orðatiltæki og segir orðrétt "að maðurinn liggi stórslasaður milli steins og sleggju á sjúkrahúsi"!!
Nú er ég búin með íþróttapistil dagsins og þá er komið að pólitíkinni. Nánar til tekið leyniþjónustunni hans Björns Bjarnasonar. maðurinn ætlar hreinlega ekki að gefast up! Fyrst hann fékk ekki her þá vill hann núna leyniþjónustu. Spurningin er þessi, hvað á þessi leyniþjónusta eiginlega að gera?! Hvað gerir t.d víkingasveitin annað en að handtaka fulla kalla í Fellahverfinusem með óhlaðnar refabyssur (og eru auk þess í flestum tilvikum steinsofnaðir þegar víkingasveitamatsjóarnir eru búnir að fara í gegn um Die hard rútínuna sína).
Það á kanski að fara að njósna um Íslensku Mafíuna (skammstafað ÍM) sem stundar stórfellt landabrugg í húsnæði fyrir ofan sjoppu í Hafnarfirði. það hafa m.a.s náðst af því myndir. Svo er fullt af einhverjum leikfimibullum út um allan bæ, sjáiði t.d Kramhúsið. Þar eru líka útlendingar! Vissara að vera vel á verði gagnvart svoleiðis fólki. Talandi um útlendinga, veit einhver hvað fer fram bak við tjöldin í Alþjóðahúsinu, ha?!
Svo eru alls konar leynifélög með skuggalegan tilgang starfandi út um allt. Vinstri grænir, Ísland-Palestína, Mannréttindaskrifstofan, virkjanaandstæðingar, hvalavinafélagið, Ásatrúarsamtökin, blóðbankinn, FÍB, mígrenisamtökin, ræktunarsamband Flóa og Skeiða, vísnavinir...og svona mætti lengi telja. Hver veit eiginlega fyrir víst hvað öll þessi "sakleysislegu" félagasamtök standa í raun og veru fyrir! Glanni glæpur er líka örugglega stór varasamur, ég meina...maður með svona nafn! Og svo er íþróttaálfurinn hálf dularfullur karakter ef út í það er farið. Fullorðinn maður sem klæðir sig upp í þröngan spandexgalla og hoppar um allt eins og fífl, hvað er hann að fela?