Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
laugardagur, ágúst 26, 2006

Jæja, ég verð víst að fara að gera eitthvað í þessu með bloggið. Monopoly var farin að kvarta sárlega yfir því að þurfa sífellt að horfa upp á þennan Akureyrska fjórfætta silung.
En anyway, það er svo sem nóg búið að vera að gerast í höfuðborginni undanfarið. Bæði menningarnótt og Gay pride. Ég var hér einhverntíma áður búin að spá því að allt færi til fjandans í menningarlífinu í borginni þegar Sjálfstæðisflokkurinn kæmist til valda og er ég ekki frá því að þess sé strax farið að gæta. Hvaða snillingi datt það t.d í hug að halda flugeldasýningu þegar það var ennþá bjart? Nei, það varð auðvitað að drífa þetta allt saman af svo aumingja úthverfa fjölskyldufólkið gæti forðað sér heim í einbýlishúsin sín áður en fullu unglingarnir færu á stjá. Svo var þessu skotið upp af einhverjum dalli úti í ballarhafi þannig að þetta litu út eins og stjörnuljós í fjarska. Það var nefnilega verið að passa upp á það að fólk þyrfti ekki að fara niður í bæ til að geta horft á blisin heldur ætti helst að geta séð allt saman af sólpallinum heima hjá sér. Ef mig misminnir ekki þá var tilgangurinn með þessari menningarnótt í upphafi að fá fólk í bæinn! Og svo toppaði löggan allt með því að stinga upp á því að þetta yrði á sunnudegi!!! Þá verður bara fyllirí í tvo daga, mongólítarnir ykkar! Ég spá því að á næsta ári verði menningarnótt á föstudaginn langa, þannig að það verði örugglega allt lokað og fólk haldi sig bara heima í sínum úthverfum og horfi á sjónvarpið. Þar væri t.d hægt að halda uppi stuðinu með að sýna valda þætti úr Maður er nefndur seríunni sem Hannes Hólmsteinn stýrði svo lista vel eða þá að sýna nokkrar bíómyndir eftir Hrafn Gunnlaugsson. Minnst vesen fyrir alla.
Þar sem að Gay pride er ekki beinlínis á vegum borgarinnar gæti verið eitthvað flóknara að koma böndum á þá sorasamkomu því eins og allir sannir íhaldsmenn vita þá er samkynhneigð sjúkdómur og óeðli og ekki við hæfi að svoleiðis fólk þrammi á korsiletti og pinnahælum um borg og bý. En það þarf leyfi fyrir fjöldasamkomum og þar liggja möguleikarnir. Það væri t.d hægt að færa leyfið fyrir Gay pride fram í janúar og sjá svo til hvað margir eru tilbúnir til að stripplast niður Laugaveginn í snjó og norðan 15 vindstigum.
Það er um fátt annað rætt á íslandi í dag en Magna og Rockstar. Í gær fékk ég senda 6 tölvupósta þar sem fólk var að hvetja mig til að greiða honum atkvæði í næstu umferð. Sko, hvers vegna í ósköpunum á ég að fara að vaka fram á nætur til að kjósa í einhverri ömurlegri amerískri karókíkeppni? Ég hef nákvæmlega engar tilfinningar gagnvart þessum Magna lúða og gæti ekki verið meira sama hvort hann syngur einu Pearl Jam laginu meira eða minna. Liðið sem er að syngja þarna eru upp til hópa hæfileikalausir athyglissjúklingar sem sést best á því að sveitaballasöngvari frá Íslandi er með því skásta sem er í boði. Og hvað með það þó Magni sé íslendingur? Hleip ég um í íslensku landsliðstreyjunni og mæti fyrst á völlinn í hvert skiptið sem fótboltalandsliðið (sem spilar leikkerfið 9-0-1) drullar á sig á móti Andorra eða Asjerbatsjan? Nei! Ef hlutirnir eru drasl er mér sama hvers lenskir þeir eru.
Hvernig er þetta með öll rokkælupartýin sem búið er að snuða mann um upp á síðkastið? Móðir Jörð gleymdi því alveg þegar hún átti stórafmæli hérna um árið auk þess sem það just slipped her mind að halda upp á það þegar hún útskrifaðist úr Hússtjórnarskólanum. Monopoly er að reyna að humma sína afmælisveislu fram af sér. Var eitthvað að stinga upp á að hafa hana 31. september en ég sá auðvitað í gegn um plottið. Það eru bara 30 dagar í september!!! Og hvernig er svo með innflutningspartýið á Bárugötuna? Ætlar Frú Líkjör að bíða með það þangað til hín er búin að mála háaloftið?
miðvikudagur, ágúst 09, 2006

Þá er þessi verslunarmannahelgi liðin og það alveg stórslysalaust. Eins og áður hefur komið fram var ég á Akureyri um þessa helgi í ágætis yfirlæti og ekki svo slæmu veðri. Ég þurfti alla vega ekki að gista í einhverju illa lyktandi íþróttahúsi.
En ég vil nú samt koma hér einu atriði að varðandi Akureyri, að þó að Akureyringum sé eflaust eitthvað til lista lagt þá er matreiðsla ekki eitt af því. Byrjum á ísnum (jú víst er ís matur). Hver sá sem svo mikið sem hugsar um það að fara einhverntíma á lífsleiðinni til Akureyrar fær að heyra langa lofrullu frá heimamönnum um það hvað Brynju ísinn sé nú frábær. Ég komst að því í fyrra að hann er óætt sull búið til úr frosinni undanrennu. En þar sem að ég er jú mjög opin fyrir öllum nýjungum og til í að gefa öllu séns þá ákvað ég samt að prófa aftur. Kanski var aðal ísgerðarmaðurinn bara þunnur í fyrra og klúðraði blöndunni. En nei, nei. Þetta var alveg sama hundvonda jukkið. Ég hef því ákveðið að halda mig við Kjörís framvegis.
Þar sem ég er komin yfir það tímabil að gara mér að góðu kaldar pylsur og brunna hamborgara þegar ég er á ferðalagi þá hef ég fengið mér að borða á nokkrum svona bistro stöðum á Akureyri. Byrjum á hinum landsfræga Bauta sem Akureyringar virðast vera álíka stoltir af og af Brynju. Þar er sem sagt hægt að fá nánast allt með bernessósu og frönskum kartöflum. Líka djæupsteikta fiskinn í raspinu sem enn er eini fiskurinn sem hægt er að fá þar. Ekki svo mjög nýmóðins samt sem áður. Næst var farið á Greifann þar sem að ég fékk ofeldað pasta með þurrum humarbitum og súkkulaðikakan var með glassúr. Come on!! Síðasta tilraunin til að fá þokkalega ætan mat án þess að þurfa að dressa sig upp í galadress og borga 8.000 kall fyrir aðalrétt var að fara á Strikið sem heimamenn mæltu mjög með. Þar var boðið upp á sömu bernesósusteikurnar svo ég ákvað að prófa pönnusteiktan silung. Þegar svo maturinn loksins kemur þrem korterum seinna (við vorum 6 saman en fjandinn hafi það, það voru flestir með pasta eða salat) þá er slengt fyrir framan mig einhverjum hlussustórum hamborgara stútfullum af vel sveittum beikonstrimlum og coctelsósu í dunk. 20 mín. seinna þegar svo rétti maturinn kemur þá er þetta bara smjörsteikt flak af silungi með einhverju afbrigði af kaldri bernessósu on the side. Rauðvínið var þó alla vega fínt enda framleitt á Ítalíu. Þjónninn klikkaði nú samt á þeirri grundvallar reglu að rauðvínsflöskuna á alltaf að opna fyir framan viðskiptavininn. Ég held ég haldi mig bara við Subway næst þegar ég fer til Akureyrar.
Það voru víst fleiri sem lögðu land undir fót um helgina. Forski og Kokksi skelltu sér á Njáluslóðir og komust að því að einn sögufrægasti staður íslandssögunnar er bara ósköp venjulegt tún uppi í sveit og það merkilegasta sem þar var að sjá voru beljur að bíta gras. Engar menjar um miklar orustur enda íslenskar stórorustur frekar einhverjir 10-15 pirraðir bændur og húskarlar með hor og skyrbjúg að lumbra á hvorir öðrum með handónýtum sverðum sem bitu ekki á blautan skýt og bognuðu ef lamið var of fast. Hvorki Bergþórshvoll né Hlíðarendi standa uppi í dag sem minnisvarðar um forna dýrð Sturlungaaldarinnar enda þessi stórbýli torf og grjóthrúgur og einstaka hola í jörðinni. Nei, hér standa engir kastalar eða hallir eða virki enda voru íslendingar fátækir og drykkfeldir bændalurar upp til hópa hálfdauðir úr hor og farsóttum.
Svo er það stórfrétt vikunnar. Maður kemur sem sagt heim úr fríinu og fer að kíkja í blöðin og svona og viti menn. haldiði ekki að það leynist þingmannsefni á meðal vor! Já takk fyrir, Tensai san er sem sagt komin hálfa leið á þing. Gott ef hún endar ekki sem tölvuleikjamálaráðherra einn daginn. Já það sem sagt borgar sig að mingla við fræga og ríka fólkið eins og Tensai San er búin að vera að gera undanfarið og fólk sem að er á jólakortalistanum hjá Dorrit er í góðum málum. Ég ætla alla vega að kjósa Tensai san!
fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Q: Hvernig veit maður að það er komin verslunarmannahelgi?
A: Það er rok og rigning í Vestmannaeyjum
Þá er enn ein verslunarmannahelgin að ganga í garð og surprise, surprise...það er rok og rigning! En hvað gerir fólk ár eftir ár? Jú, það aulast til Vestmannaeyja sem er mesta rok og rigningarrassgat á norðurhveli jarðar (myndin er frá verslunarmannahelginni í fyrra). Þar híma draugfullir og ælandi unglingar í pissblautum svefnpokum vafin inn í restina af Rúmfatalagerstjaldinu og allt annað fokið til fjandans. Á þriðja degi monsúnvindanna er liðinu svo dröslað á vörubíl niður í bæ og holað niður í íþróttahúsinu (sem lyktar af samblandi af svitalykt og táfýlu í bland við þef af hálfmeltum pizzum og vodka í kók) þar til veðrinu slotar viku seinna. Ekki nóg með það að veðrið er alltaf ömurlegt heldur eru skemmtiatriðin það líka. Skítamórall eina ferðina enn og Stuðmenn 20. árið í röð að ógleymdu hæfileikalausasta tónlistarviðrini landsins, Árna Johnsen. Svo er ekkert ætt hægt að fá á þessu volaða skeri annað en óætar pizzur og kaldar pulsur í þurru brauði sem kosta þessa helgi álíka mikið og aðalréttur á Holtinu. Þeir sem eru svo "heppnir" að hafa aðgang að þessum hvítu tjöldum geta átt von á kræsingum á borð við reykta smáfugla, rollukjötssoð sem sumir kalla súpu og harðfisk sem er löngu orðinn gegnsósa af rigningu. Hápunkturinn á heimsókninni er svo þegar einhver hæfileikamaðurinn rífur fram kassagítarinn og allir taka saman "Stál og hnífur". Fyrir þetta borgar fólk svo álíka mikið og viku ferð til London kostar. Og svo kemur það fáránlegasta. Eftir að hafa svo loksins komist heim til sín nær dauða en lífi þá er fólk ákveðið í því að fara aftur því þetta var svo æðislegt! Hversu heimskur er hægt að vera?!
Ég hef bara einu sinni farið á útihátíð. Það var í Þjórsárdal hérna um árið. Sem betur fer var ekki nein rigning (eða alla vega man ég ekki eftir því) og þó að það hafi verið alveg ágætlega gaman þá hafði ég enga sérstaka löngun til að fara á útihátíð aftur. Að vera í tjaldi er líka algert hell. Það er alltaf of heitt eða of kalt, of óslétt, of blautt, of þröngt, of mikið drasl, of margt fólk...
Ég ætla sem sagt ekki á útihátíð í ár. Ég ætla hins vegar til Akureyrar að fylgjast með fólki á mótorhjólum krassa og fljúga á hausinn og ná helst mynd af öllu saman. Og ég ætla að gista á notarlegu gistiheimili þar sem er rúm til að sofa í.
Ég kíkti í heimsókn til Frú Líkjör um daginn og skoðaði nýja slotið hennar í hundrað-og-einum. Þar stóðu reyndar yfir þrif og málun svo lítil mynd var komin á híbýlin en þetta á eftir að verða hið allra huggulegasta slot, því get ég lofað. Og ekki skemmir fyrir gardenpartý aðstaðan. Það eina sem hægt var að setja út á var að húsið var byggt áður en rafmagnið var fundið upp svo það eru kerti í ljósakrónunum og eldavélin gengur fyrir kolum en Frúin lét það ekki aftra sér að eignast draumaíbúðina. Þar sem að Frúin var ekki flutt inn með allt sitt hafurtask, heldur aðeins það allra nauðsynlegasta eins og hvítvínsflösku og tappatogara, þá þurftur gesti að skiptast á að sitja á eina stólnum á heimilinu og bakkelsið með kaffinu var skorið með kíttispaða. Ég hlakka bara til næstu heimsóknar þegar Frúin og heimasætan (sem by the way fékk ekki að mála herbergið sitt svart með rauðum hauskúpum og leðirblökuvængjum af einskærri illhvittni í aldraðri móður sinni) hafa komið sér fyrir.