Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
sunnudagur, september 17, 2006

Jibbí!!!!!!!!! Þessi Rockstar Supernova óbjóður er loksins búinn! Nú getur fólk á kaffistofum landsins loksins farið að tala um eitthvað áhugavert eins og veðrið eða bensínhækkunina frá í gær og ég þarf ekki að mæta til Monopoly á miðvikudögum og horfa á öll ósköpin endursýnd 85 sinnum sama kvöldið. Og fólk var bara steinhissa og hneikslað að fjósamaðurinn að austan hafi ekki unnið! Hann sem var svo frábær og svo góður gæi. Hey, wake up! Það var löngu búið að ákveða hver ætti að vinna, mongólítarnir ykkar! Raunveruleikaþættir eru nefnilega alveg jafn raunverulegir og jólasveinninn og karlinn í tunglinu.
Og dettur einhverjum í hug að þessi hljómsveit komi til með að gera einhverjar rósir? Þetta fyrirbæri er álíka áhugavert og skorpið fransbrauð. Tommy Lee lítur m.a.s út eins og skorpið fransbrauð, það veit enginn hvað Jason er að gera þarna annað en að fá borgað fyrir það og Gilby er miðaldra kelling með hárkollu og ljósabekkjafar í andlitinu (myndin hér til hliðar var tekin af Gilby um daginn). það getur enginn þeirra samið þokkalegt lag sem heyrðist best á þessu frumsamda sorpi sem þeir voru að rembast við að hnoða saman. Kanski hefðu þeir átt að ráða Magna eftir allt saman. Þeir hefðu getað sett enska texta við Fiskurinn hennar Stínu og Vor í Vaglaskóg og slegið í gegn í Vegas.
Annars er ég alveg gjörsamlega miður mín núna eftir að hafa misst að skírnarveislu aldarinnar á Eyrarbakka núna á sunnudaginn þar sem Kokksi lét fullorðinn mann klæddan sængurveri og með hvítan bylgjupappa um hálsinn sulla vatni á frumburðinn að viðstöddu fjölmenni. Finnst virkilega engum neitt bogið við þetta? En anyways, ég var búin að hlakka þvílíkt til alla vikuna enda eru skírnarveislur þær skemmtilegustu samkomur sem ég mæti í ásmat barnaafmælum auðvitað. Ég var þarna í mínu fínasta pússi og hafði fengið far með Monopoly í gleðskapinn. Farðin sú varð bæði stutt og skemmtileg og endaði í Ártúnsbrekkunni þar sem Mini Monopoly byrjaði að kvarta undan magakveisu og var því snúið við í snarhasti. Ég missti því sem sagt af öllu kruðeríinu ásamt því að hitta öll skáldin og listamennina sem ég hafði frétt að ættu að vera á staðnum. Þarna átti að vera ljóðalestur og einsöngur, leikþættir og dansatriði auk þess sem Móðir Jörð ætlaði að lesa valda kafla úr BA ritgerðinni sinni. Jæja, ég verð þá bara að bíða eftir fermingunni. Darn...
Ég ætla að taka hérna smá veitingahúsa/kaffihúsagagnrýni þar sem ég stunda þannig staði all nokkuð. Ég fer reglulega á Thorvaldsen til að borða og tel ég þann stað bera höfuð og herðar yfir aðra sambærilega staði hvað varðar gæði eldamennskunnar og er samt ekki dýr. Maturinn er þó stundum framreiddur á svolítið artý fartý hátt, ég minnist þess t.d ekki að hafa annarsstaðar fengið saltfisk borinn fram í krukku með loki.
Um daginn var opnaður nýr svona staður (það sem kallað er Bistro) í Geysishúsinu og heitir því frumlega nafni Geysir bistro og ég ákvað að fara og prófa. Staðurinn er flottur að innan enda fallegt gamalt hús og stólarnir þægilegir (sem er grundvallaratriði sem allt of margir klikka á. Matseðillinn var þó ekki sá frumlegasti eða fjölbreyttasti sem ég hef séð og ákvað ég að fá mér kjúklingapasta. Sko, ef þú getur ekki eldað pasta þannig að það sé passlega soðið áttu að vera að gera eitthvað annað en að vinna við matreiðslu sem er nákvæmlega það sem ég legg til að kokkurinn á Geysi fari að gera. Það vantar alltaf fólk í bensínafgreiðslu eða póstútburð. Er virkilega erfitt að sjóða pasta þannig að það sé ekki ofsoðið, fjandinn hafi það!! Svo var þarna kona á óræðum aldri og með óræða fortíð sem þjónaði til borðs og hefur eflaust verið að vinna í Múlakaffi eða á Kaffivagninum síðustu 25 ár. Maður segir t.d ekki "eruði tilbúnir að panta, strákar mínir" við tvo miðaldra menn sem eru greinilega að koma þarna í fyrsta skiptið og það með rödd eins og Janis Joplin á þriðju whiskyflösku. Ég slafraði þó í mig þessu pasta enda orðin glorsoltin og ákvað að taka sénsinn á kaffinu sem ég hefði betur látið ógert þar sem það var Gevalia uppáhelling frá því kl. 10 um morguninn og búið að standa á kaffivælinni síðan. Sem sagt vel soðið. Það er ekki bara á Akureyri sem fólk kann ekki að elda mat. Það er örugglega fínt að fara þarna til að fá sér einn, tvo bjóra eða eina, tvær hvítvínsuppskerur ef Forski og Frú Líkjör eru annars vegar en maður ætti bara að fá sér brauð með osti heima hjá sér fyrst. Það er a.m.k erfitt að klúðra því.
miðvikudagur, september 06, 2006

Þegar ég verð stór þá ætla ég að verða eins og Patti Smith!! Patti Smith er snillingur og tónleikarnir í Háskólabíói voru alveg total fuckin snilld! Nú þegar gjörsamlega allir eru að tapa glórunni yfir ömurlegri amerískri karókíkeppni þar sem hver hæfileikalausi wanna-be "rokkarinn" eftir annan reynir að gaula einhver Nirvana lög, og það helst nákvæmlega eins og Kurt Cobain gerði það, þá var hressandi að sjá ALVÖRU tónlistarmann flytja SÍNA EIGIN TÓNLIST og rokka feitar en þessir aulabárðar eiga nokkurntíma eftir að gera á sinni lífsleið og það með kassagítar!! Ó já, sextug gráhærð kona tók þetta lið og gjörsamlega pakkaði því saman!
Og ég er sko ekki búin að ræða um þetta Supernova crap! Þetta er svo gjörsamlega lýsandi fyrir íslenskan smáborgarahátt að bara af því að fjósamaður að austan álpaðist inn í arfalélegan amerískan "raunveruleikaþátt" þá er hann allt í einu orðin einhver hetja og er þarna til að sýna umheiminum hvað við íslendingar (sem samkvæmt netkosningakerfinu eru orðnir 4 milljónir og helmingurinn býr á Hawaii) erum frábær. Kellingar sem aldrei hafa heyrt í Billy Idol eða Who og hafa ekki hugmynd um hvaða menn þetta eru í þessu Supernova bandi eru farnar að rífa sig upp úr rúminu um miðjar nætur til að kjósa 1200 sinnum á netinu!! Er fólk ekki með fullum sönsum! ÞETTA ER DRASL!!!!!!!!!!!!!!
Ég veit allt um það þegar ég segi að þetta sé drasl þar sem ég var neydd til að horfa á heilan þátt af þessum óbjóði um daginn. Ég lét mig hafa það bara af því að Monopoly var búin að baka marenstertu. Þarna sátu svo 4 miðaldar kellingar og tístu eins og táningsstúlkur í hvert sinn sem Tí Lí stóð upp svo NÆSTUM skein í það allra heilagasta. Tensai San var að minnsta kosti afskaplega hrifin af buxunum sem hann var í...þetta voru sko flottar buxur!!
Já og ef Frú Líkjör les þetta þá þætti mér gaman af fá að vita hvort hún sé ekki að verða búin að mála svo hægt sé að halda innflutnings-rokkælupartý? Það mætti halda að hún væri líka að mála undir gólffjölunum.