<$BlogRSDURL$>

...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling

þriðjudagur, október 31, 2006

Ég vil byrja á að minna alla á Lúsíukvöldið sem Frú Líkjör ætlar að standa fyrir laugardaginn 9. des. Þið ómegðarfólk verðið að fara að panta barnapíur í tíma. Þetta er nefnilega eitthvað sem enginn má missa af. Gözli hefur tekið að sér að vera Lúsía þetta árið en erfitt verður að toppa frammistöðu Tensai San frá því síðast. Þetta verður líka fyrsta alvöru samkvæmið sem Frú Líkjör heldur síðan hún flutti frá Gjögurvík núna fyrir stuttu. Zorglúbb ætlar svo að halda uppi stuðinu með líruleik og aldrei að vita nema hann dragi fram langspilið líka.

Ég hef áður verið með svona nokkurs konar veitingahúsagagnrýni hérna og ætla að taka hér eina öldurhúsagagnrýni. Við Forski og Frú Líkjör rákum nefnilega aðeins út nefið á sunnudagskvöldið til að fá okkur einn gráan fyrir svefninn, enda er það talið alveg sérstaklega heilsubætandi. Stefnan var sett á Thorvaldsen en þegar til átti að taka var þar allt lokað og læst og einhverjar framkvæmdir í gangi innandyra svo við ákváðum að kíkja inn á staðinn við hliðina sem er nýbúið að opna, þar sem apótek hafði verið áður. Það var nú hvorki múgur né margmenni þar inni en samt (eftir 20 mín. bið) sá Forski sér ekki annað fært en að taka fram handtöskuna og hreinlega ógna einum þjóninum og hóta líkamlegu ofbeldi til að fá loksins afgreiðslu. Ég pantaði mér cappuchino sem var bara alveg ljómandi gott og Forski og Frúin fengu sér rauðvíns- og hvítvínsglös. Sko, vökvamagnið í þeim glösum hefði varla dugað til að bleita frímerki hvað þá meira. Miðað við verð og skammtastærð þá myndi flaskan kosta álíka mikið og helgarferð til Parísar. Varðandi innréttingarnar voru það tvö atriði sem hönnuðurinn klikkaði illilega á. Þetta er voða fallegt hús að innan og allt það en það bergmálar meira en í Látrabjargu um varptímann. Og svo tókst blessuðu fólkinu að gera ein grundvallar mistök varðandi hönnun veitingastaðar en það er að hafa óþægilega stóla. Eitthvað af sætunum eru bólstraðir bekkir sem er bara besta mál en svo er restin tréstólar. Come on! Hverjum dettur í hug að kaupa ömurlega tréstóla inn á fína artí fartí veitingastaðinn sinn!? Það hefði alveg eins verið hægt að koma með kirkjubekkina úr Strandakirkju, ég held þeir geti varla verið óþægilegri. Ég ætla nú samt að gefa þeim séns og fara þangað og smakka hjá þeim matinn. En á fjandans trékollunum sit ég ekki aftur.


Ég hef fylgst af miklum áhuga með þessu hlerunardrama sem búið er að vera í gangi undanfarið. Það virðast bara hreinlega allir hafa verið hleraðir! Ætli það sitji maður í rykfrakka og með dökk sólgleraugu í gömlum Skoda fyrir utan Vegamót þegar brönsklúbburinn hittist? Einhvernvegin virðist það vera á allra vitorði að mér finnast ameríkanar vera heimskir, sjálfumglaðir hrokagikkir og Davíð Oddsson haldinn ofsóknaræði og mikilmennskubrjálæði þó ég hafi ekki verið að hafa þessar skoðanir mikið í flimtingum. Rétt nefnt þetta í lokuðum hópi.
Það virðist líka vera eins og löggan hafi hreinlega ekkert haft annað að gera undanfarin ár en að hlera fólk hægri vinstri. Allt í einu er líka fleira fólk farið að vinna hjá einhverju embætti ríkislögreglustjóra en á Landspítalanum! Einhverju ómerkilegu embætti sem ætti ekki að fást við neitt merkilegra en að ákveða hvað væru margar strípur á einkennisbúningum og í hvaða litum þær ættu að vera. Eftir því sem ég hef lesið þá virðast engin takmörk fyrir því hverjir eru hleraðir. Einhver sóknarnefnd vestur á Nesi heldur því m.a.s fram að fundir hjá þeim hafi verið hleraðir! Hvað kemur næst? Að símar félaga í Þjóðdansafélaginu séu hleraðir, að njósnað sé um Kattavinafélagið eða Búnaðarsamband Eyjafjarðar? Að fylgst sé með öllum ferðum Skólakórs Kársnes og Kvæðamannafélagið Iðunn sé vaktað allan sólarhringinn?! Stazi lítur út eins og bridsklúbbur miðað við þetta. En það eru auðvitað bara innvígðir og innmúraðir sem hafa fengið að vita hvað var í gangi.
Svo kemur Björn Bjarnason og heimtar leyniþjónustu! Mér sýnist löggan bara hafa staðið sig ágætlega í njósnadjobbinu. En í alvöru talað, hverslags hálfvitagangur er þetta eiginlega að verða allt saman! Fyrst Birni tekst ekki að troða upp á okkur her (þetta "herlíki" sem rúntar um á jeppum í Afganistan og finnst þeir vera svalir gaurar með byssur og sólgleraugu telst varla með) þá á að rigga upp leyniþjónustu! Getur einhver sagt mér hver tilgangurinn er? Um hverja á að njósna sem löggan getur ekki njósnað um? Já og ekki nóg með það heldur vill hann vopna lögguna. Það er alltaf svo mikið af skotbardögum hérna, eða hvað? Og hvað gerir t.d Víkingasveitin annað en að ráðast inn í hús þar sem húsráðandi hefur sést veifa framhlaðinni kindabyssu í ölæði og er undantekninga lítið löngu sofnaður þegar hersveitin loksins ryðst til inngöngu grá fyrir járnum.
Er þetta það sem er mest aðkallandi að gera? Væri ekki nær að reyna að minnka launamun kynjanna eða jafna misskiptinguna sem er að myndast með ógnarhraða í þjoðfélaginu? Er það eðlilegt að skattbyrðin aukist stöðugt hjá þeim efnaminni meðan hún minnkar að sama skapi hjá þeim ríku? Ég hef ekkert á móti ríku fólki. Það má vera svo ríkt að það snýti sér 5.000 köllum og eigi bíl í stíl við skóna sína. En mér finnst að þetta fólk eigi þá alla vega að borga sama hlutfall af tekjunum sínum í ríkishítina og við hin smæligjarnir. En þetta erum við víst búin að kjósa yfir okkur undanfarin 12 ár. Ég vil bara benda fólki á að skoða greinarnar eftir Stefán Ólafsson sem eru að finna hér http://www.hi.is/~olafsson/
|

mánudagur, október 23, 2006


Það er alveg óhætt að segja að samkvæmisgleðin hafi ráðið ríkjum síðustu tvær helgar. Fyrst skal telja dannaða konukvöldið sem Forski hefur aðeins minnst á, en þá helst í sambandi við að hún og Frú Líkjör fengu einhverja slæmsku daginn eftir. Alltaf þessar leiðinda flensur að ganga. Þetta var allt voðalega dannað þó annað mætti skilja á Forska...ég meina, rauðvín, ostar og súkkulaði og allt. Og hver segir að Manowar eigi engin hugljúf og angurvær lög?! "Die by the sword" er t.d ákaflega tragískt ástarlag og "March For Revenge (By The Soldiers Of Death)" er bara ákall um frið á jörð.
Þar sem að allt útlit var fyrir að konukvöldið yrði ansi fámennt (en þó einstaklega góðmennt) þá bættust í hópinn fjórir ungir menn sem sýndu á sér allar sínar feminískustu hliðar og hefðu verið vel viðræðuhæfir um barnauppeldi og bútasaum ef út í það hefði ferið. Zorglúbb mætti m.a.s með lírur tvær meðferðis og tók nokkra létta madrígala. Geri aðrir betur!

Annað samkvæmi helgarinnar var svo "formlega miðaldra" afmæli Monopoly sem var svo hrikalega dannað að þar var þjónn til að hella meira rauðvíni í glösin og sérinnflutt franskt gæsapaté var borið fram með sítrusgljáðum ætiþistlum og bananabrisi. Já takk fyrir, þetta var sko alvöru hanastél! Það var reyndar hvorki spilað Manowar né Motörhead undir borðhaldinu og fannst mér m.a.s full langt gengið í því hvað sumir tóku miðaldramennskuna alvarlega þegar það kom til mín maður og bað mig vinsamlegast að skipta um tónlist þar sem honum fannst það sem var í gangi vera full mikil læti...það var verið að spila Madonnu!
Monopoly endaði svo víst á einhverjum togarbar niðri í bæ og kom heim undir morgun með gúmmístígvél og munntóbaksdós undir hendinni. Veruleg samkvæmisónot gerðu svo vart við sig daginn eftir.
Talandi um sjóara þá ljóstraði Forski því upp að á sínum yngri árum hefði hún ætlað að fá sér tattoo á bakið, sem ekki væri í frásögur færandi nema hvað...að það átti að vera rauður fjórhjóladrifinn Massey Ferguson traktor með bónda í víkingabúningi við stýrið, með sviðakjamma í annari hendinni en mysuflösku í hinni. Tvær skjöldóttar kýr á beit í bakgrunni og íslenska hundinn geltandi á eftir. Hversu mikið þjóðarstolt er hægt að sýna? Maður hreinlega bara tárast og fer ósjálfrátt að raula "Skín við sólu Skagafjörður".

Hvernig er þetta, ætla svo ekki allir að hlaupa út í búð helst á morgun og kaupa hvalasnitsel, hvalahakkbollur eða þá hvala T-bone? Ég geri ráð fyrir að þau 60 eða 70% þjóðarinnar, sem samkvæmt lauslegum könnunum finnnst hvalveiðar í dag alveg bráðnauðsynlegar, verði sjálfu sér samkvæm og éti þennan lýsishaug. Ekki það að ég hafi eitthvað Keiko syndróm, mér gæti eiginlega ekki verið meira sama hverrar tegundar kjötið er sam maður borðar (nema að ég neita að borða kanínukjöt af tilfinningalegum ástæðum). Það er bara hvernig allt þetta hvalveiðibull er búið að þróast. Þetta snýst ekki nokkurn skapaðan hlut um það hvort einhver vill éta þessi hálf sjálfdauðu hræ sem verið er að drösla á land heldur er þetta farið að snúast eingöngu um þjóðarrembing og þvermóðsku Kristjáns Loftssonar (sem eflaust er þrjóskasti maður á Íslandi og þó víðar væri leitað).
Við ætlum sko ekki að láta neinn segja okkur fyrir verkum! Við skulum sko veiða þennan helvítis hval no matter what! Svo var bara allt í einu rokið upp til handa og fóta 17 árum seinna, haugryðgaðir forardallar sem hanga saman af gömlum vana og eru gufuknúnir (ég er ekki að grínast), dregnir á flot og karlskarfar sem unnu við þetta í upphafi síðustu aldar sóttir á Grund til að flá kvikindin.
Síðan mætir Kristján Loftsson ásamt heilum her af prófkjörskandídötum með sjávarútvegsráðherralufsuna í broddi fylkingar til að taka á móti gufukatlinum þegar hann skrönglast að landi. Þar er líka "kaupandinn" mættur sem Kristján kynnir sem japanskan stórkaupmann og lætur fylgja með í kynningunni að sá japanski hafi hreinlega sleikt út um þegar hann sá hræið dregið upp í hvalstöðinni.
Það er nú hægt að telja manni trú um ýmislegt en að einhver Japani (sem þekktir eru fyrir fágaðar matarvenjur og miklar kröfur um ferskleika enda ekki annað hægt þar sem þeir éta allt meira og minna hrátt og væru annars dauðir úr salmónellu eða kólígerlasýkingu) hafi sleikt út um að sjá grindhorað og ormétið hvalshræ sem með réttu ætti að fara beint í minkafóður, er too much.
Og hvað kostar svo þetta einkaævintýri Kristjáns Loftssonar okkur? Það kaupir þetta varla nokkur kjaftur fyrir það fyrsta auk þess sem það er búið að kosta litlar 200 milljónir að kynna það fyrir útlendingum (sem við erum samt að sýna að við ætlum sko ekki að láta þá segja okkur fyrir verkum...halló) að við ætlum að fara að veiða hvali aftur. Og það er bara byrjunin! Eyðileggja svo kanski í leiðinni ágætan túristabissnes sem er hvalaskoðun og fá einhverja öfga dýraverndunarsinna snaróða á eftir okkur í þokkabót. Hvort erum við fífl eða hálfvitar?!
Plottið er auðvitað það að draga athyglina frá hleranaskandalnum hjá Sjálfstæðisflokknum og leynilögguþráhyggjunni í Birni Bjarnasyni (sem ég á eftir að tala aðeins um seinna). Svo er ekki verra að Kristjá Loftsson á víst Granda (eða eitthvað álíka batterí) sem kemur sér vel í komandi kosningabaráttu þar sem alltaf vantar peniga í kosningasjóðina.
|

mánudagur, október 09, 2006


Þar sem mér hefur verið hótað eylífum fæðingasögum ef ég færi ekki að hunskast til að blogga þá sér hver maður að ekki er stætt undir þvílíkum hótunum.
Anyway, ég er sem sagt búin að fara í mína árlegu reisu (eða kellingaferð eins og sumir kalla þetta) og í þetta skiptið var Búlgaría fyrir valinu. Ég hitti reyndar ekki Björgólf yngri, hann hefur sjálfsagt verið að kaupa Armeníu eða Svartfjallaland, en ég sá margt annað áhugavert. Ég fór t.d í klaustur uppi í sveit þar sem þeir örfáu munkar sem ég sá röltu bara um og drukku kaffi og möluðu í farsíam. Ekki það að ég hafi átt von á því að þeir væru að skrifa handrit með fjaðurpenna eða yrkja sonnettur en mér fannst þeir hefðu mátt vera kanski aðeins munkalegri.
Talandi um farsíma þá virðist það vera nýjasta trendið í Búlgaríu núna. Alla vega var álíka mikið af þannig búðum í Sofiu og pizzastöðum á Ítalíu. Það var líka ýmislegt fleira við Búlgarska verslunarhætti sem kom manni spánskt fyrir sjónir. T.d fannst mér þvottaefnis- og sápulögsbúðirnar (sjá mynd) frekar sérstakt fyrirbæri. Þarna lifði líka gamla góða kaupfélagsstemmingin góðu lífi þar sem að þú komst inn í pínulitla búð sem seldi allt frá hárspennum og geitaosti upp í þaksaum og svínaskanka. Og þú valsaðir ekki um og týndir sjálf ofan í körfu...ó,nei. Þú komst að afgreiðsluborði og taldir upp það sem þú ætlaðir að fá (eða bentir á það ef tungumálaerfiðleikar voru til staðar) og afgreiðsludaman náði í það upp í hillu og rétti þér. Afskaplega persónulegt allt saman. Lúgusjoppur voru líka mjög vinsælar og fólk var ekkert að setja það fyrir sig þó sjoppan væri staðsett í niðurgröfnum kjallara. Það var bara farið á fjóra fætur til að biðja um tóbakið eða kaffisopann.

Það er nokkuð ljóst að það er að styttast í kosningar og hin ráðandi öfl eru orðin eitthvað taugaveikluð yfir að geta kanski ekki gengið að því vísu að halda áfram að stjórna okkur næstu 4 árin. Allt í einu eru til nógir penigar til að gera Sundabrautir í allar áttir og á mörgum hæðum og mislæg gatnamót og jarðgöng í kaupbæti. Það á að reisa virkjanir í hverri sveit og álver í öllum sýslum þannig að búseta á landsbyggðinni mun verða sem himnaríki á jörð og sem hendi væri veifað mun landsbyggðarlýðurinn aka um á dýrum jeppum og eiga einbýlishús með tvöföldum bílskúr í stað þess að hengslast um með sultardropa á nefinu og tærnar út úr sokkunum. Halelúja! Svo til að toppa allt þá á að lækka vaskinn á matvörum og afnema tolla (sem tekur reyndar ekki gildi fyrr en viku fyrir kosningar og er til reynslu þar til viku eftir kosningar, en samt...).
Í öllum fagnaðarlátunum og fjölmiðlafárinu þá virðist fólk hafa gleymt því að lesa smá letrið í þessu kosningatrixi Sjálfstæðisflokksins. . Ég auðvitað læt ekki plata mig svona auðveldlega og setti upp stækkunarglerið. Þar kemur í ljós að orðið "matvara" er skilgreind sem "lífsnauðsynleg lágmarks næring miðað við þarfir ofurfyrirsætu". Það er sem sagt verið að lækka verð á Gvendarbrunnavatni, salatblöðum og agúrkum. Svo stendur líka í smá letrinu að ferskt loft verði undanþegið skattlagningu enn um sinn auk þess sem fyrirhuguðum skatti á hárvöxt og vindgang einstaklinga verður frestað að sinni.

Eins og fram hefur komið þá eru uppi háleitar hugmyndir hjá meðlimum brönsklúbbsins um að bregða undir sig betri fætinum næsta vor og skoða heiminn (skoða búðir í tilfelli sumra). Hefur það orðið að samkomulagi að skunda með sitt hafurtask til Rómar og upplifa ítalska menningu (eða aðallega búðir hjá sumum). Ég er alls ekki að halda því fram að ég sé eitthvað svartsýn þegar ég segi að oft er meira um orð en gjörðir, ég er þá frekar að tala um raunsæi í því tilfelli. Mín kenning er sú að smá saman fari fólk að draga í land með Ítalíu, það sé langt í burtu og kosti pening að komast og svo er nú ekki hægt að skilja börnin eftir í heila 4 daga, hvað ef þau fá heilahimnubólgu eða berkla? Þá verður stungið upp á helgarferð til Köben. En nei, það er nú allt svo dýrt í Danmörku og svo er allt fullt af morðóðum mótorhjólagengjum. Maður gæti hreinlega bara verið skotinn úti á götu og ekki viljum við eiga á hættu að aumingja börnin verði móðurlaus. En þá dagsferð til Færeyja? Nei, það er kanski ekki eins sniðugt og það hljómar. Færeyjar eru, eins og nafnð gefur til kynna eyja og úr alfaraleið. Hvað ef eitthvað kæmi upp á hjá börnunum? Skemmdar kjötbollur í skólamötuneytinu og enginn til að sitja hjá þeim meðan magakveisan gengur yfir.
Þetta endar því með strætóferð á Feita dverginn þar sem verður skvett í sig uppáhelltum Gulum Braga og maulaðar með kleinur frá Ömmubakstri.
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?