Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
miðvikudagur, desember 13, 2006
Það er bara allt búið að vera að gerast síðustu daga. Byrjaði á því að fara í jólahlaðborð með vinnunni á laugardagskvöldinu. Forðaði mér þaðan áður en vinnufélagarnir fóru að komast á trúnó. Var líka að drífa mig að komast á Lúsíukvöldið margumrædda hjá Frú Líkjör. Afskaplega vel heppnað og skemmtilegt samkvæmi í alla staði nema hvað að Lúsían mætti ekki. Come on, að taka að sér að vera Lúsía og beila svo á öllu saman! Og hver var svo afsökunin? Þurfti að vera heima og læra fyrir próf í vélritun! Þarna mætum við öll full eftirvæntingar og tilhlökkunar og svo er bara engin Lúsía. Forski m.a.s í korseletti keyptu í rándýrri undirfatabúð í ameríku. Þetta er eins og að setja ekki í skóinn hjá börnunum sínum eða stela ellilífeyrinum af gamalli konu. Við erum sem sagt mjööög svekkt! Zorglubb the womanizer var líklega þó sínu minnst svekktur
En Lúsíukvöldið var þó bara byrjunin. Ég var komin á fætur kl. 10 morguninn eftir (enda drakk ég enga görótta drykki né eyddi hálfri nóttinni í að troða mér úr einhverju korseletti) og brunaði til Þorlákshafnar ásamt nokkrum morgunhressum hjólamönnum. Ég er auðvitað svo mikil útivistarmanneskja, sjáiði til. Ég fór sem sagt til að taka myndir meðan þeir hjóluðu (enda nota ég hvert tækifæri til að snapa mér bílfar út fyrir bæinn í ljósmyndatúra þar sem tæknilega séð er ég ekki með bílpróf). Ég labbaði þarna einhverja kílómetra í kring um Þorlákshöfn og út í fjöru þar sem ég eitthvað að voða upptekin við að mynda og vissi ekki fyrr en ég stóð í sjó upp fyrir hné! Mér var frekar kalt á eftir og sem betur fer var ekki mjög langt í sjoppuna. En það var ekki allt. Svo bara koma þessar svaka þrumur og eldingar, rafmagnið fer af þorpinu og gömul kona í sjoppunni byrjar að jesúsa sig hægri vinstri. Segiði svo að maður lendi ekk í ævintýrum úti á landi?

Svo fór ég í bíó á mánudagskvöldið sem er nú heldur betur í frásögur færandi. Ætli það hafi ekki verið að sýna Gone with the wind síðast þegar ég fór í bíó.Ég fór sem sagt að sjá James Bond og þar sem bæði Forski og Frú Líkjör hafa talað mjög fjálglega um nýja Bondinn fór ég með opnum huga. OK, fyrir það fyrsta er þessi Bond eins og Bret Michaels án hárkollu og einhverjum árum eldri (sjá mynd af honum hér til hliðar back in the days), ekki mjög foxy. Svo var þessi mynd minnst þremur ástarsenum of löng auk þess sem allt of langur tími fór í að fylgjast með Bond ræflinum spila á spil og hlaupa á eftir bílum. Hann var á tímabili orðinn eins og íslenskur fjárhundur, hlaupandi á eftir öllum farartækjum. Ég beið bara eftir því að hann færi að gelta. Og hvar var allt hi-tec tótið sem Bond er alltaf með? Laserbyssa í úrinu, gleraugu sem skjóta eldflaugum, jakki sem breytist í fallhlíf? Þetta var sem sagt bara voðalega venjuleg amerísk hasarmynd.
Þetta er nú ekki allt sem ég hef áorkað á síðustu dögum, ó nei. Á mánudaginn fór ég sem sagt í IKEA, alla leið út í Middle of nowheretown. Fór náttúrulega bara öðrum aðila til samlætis og eftir að hafa skoðað 5 skrilljón fermetra af ljósum viðarhúsgögnum haldiði ekki að ég hafi gengið fram á Forska, Frú Líkjör og Tensai San með fangið fullt af þvottabrettum og skóhillum (allt úr ljósum ómeðhöndluðum við, auðvitað).
Nú eins og flestir vita er Monopoly að fara að skipta um vinnu, og eitthvað virðist vera orðið lítið að gera í gömlu vinnunni þar sem maður er farinn að fá tölvupóst með allskonar furðulegum atriðum sem Monopoly er að grafa upp á netinu. Síðast fékk ég t.d póst um verslun bænda með kýr. Þegar Monopoly er farin að sökkva sér niður í Bændablaðið þá þykir mér langt gengið. Hvað kemur næst? Snið af ullarnærbrókum úr Prjónablaðinu Ýr eða útlistingar á servíettubrotum úr Húsfreyjunni? Ættartala einhverra stóðhesta úr Eiðfaxa eða upplýsingar um fluguhnýtinganámskeið úr Veiðiblaðinu? Monopoly, legðu bara kapal eða eitthvað!!
|