Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
þriðjudagur, janúar 16, 2007

Brönsklúbburinn ákvað um daginn að fara í útrás og stofna dótturfélagið Skruddurnar, bóka-og menningarklúbbur. Þar munu félagsmenn koma saman eins og eitt eða tvö kvöld í mánuði og ræða um bækur og önnur menningartengd efni af mikilli þekkingu enda hlutfall bókmenntafræðinga í félaginu langt yfir landsmeðaltali. Uppistaða hvers fundar mun vera einhver ein bók sem helst allir þurfa að hafa lesið fyrirfram en þó er bannað að stinga upp á bókum eftir Thor Vilhjálmsson eða sænskum málfræðibókum. Afskaplega áhugavert allt saman. Stofnfundur átti svo að vera á sunnudaginn síðasta en hvað haldiði...það sá sér enginn fært að mæta! Frekar slök byrjun. En við verðum bara að vona að fall sé fararheill.
Ég sé reyndar fyrir mér mjög blómlega útrás hjá Skruddunum, sem munu þá heita Skruddurna group, með aðalfundi í Róm og umtalaða árshátíð þar sem skemmtiatriðin verða af dýrari sortinni. Ekkert Duran Duran hallæris herðapúðapopp heldur Bon Jovi og Mötley Crue og gott ef ekki Poison líka. Skruddurnar hafa nefnilega mjög einfaldan smekk og velja aðeins það besta. Þar verður sungið hástöfum Girls, girls, girls og Wanted dead or alive (sem hét Wanted dead or in bed á sokkabandsárum hins merka BKBK en eftir að meðlimirnir komust á breytingaskeiðið heitir það frekar Not wanted at all because I will go to bed at 10) og enginn fær aðgang nema að vera í spandexi.
Það hefur verið frekar lítið um samkvæmi undanfarið ef frá er talið stórskemmtilegt innflutnings/Lúsíukvöld hjá Frú Líkjör (sem endaði þó á því skildist mér að bæði Frúin og Forski týndu kápum, handtöskum, sokkabuxum og pinnahælaskóm á mjög dularfullan hátt). Það hafa allir verið eitthvað svo voðalega uppteknir af því að hafa ekki tíma til að gera neitt skemmtilegt. Kanski fylgir þetta því að verða miðaldra að "having fun" þýðir barnaafmæli, video og popp á laugardagskvöldi eða ferð á McDonalds. Hvað verður það næst? Félagsvist og bútasaumur?
Monopoly var nefnilega að benda mér á þá merku staðreynd að hinn höfgi drykkur Pine Colada verður 50 ára á þessu ári og er full ástæða til að halda upp á þau tímamót. Það er haldið upp á ómerkilegri hluti en þetta. Mér dettur bara í hug bankinn sem all síðasta á hélt upp á það að þá var hann búinn að blóðsjúga okkur með okurvöxtum í 120 ár og eigandinn glotti bara og keypti sér fótboltalið (þ.e sá þeirra sem ekki keypti Búlgaríu). Þegar ég verð stjórnarformaður í Skruddunum group ætla ég að kaupa Justin Timberlake bara til að henda honum!
Já svo er ég líka að verða heimsfrægur ljósmyndari hvorki meira né minna og því til sönnunar getiði smellt á þennan link hér http://www.flickr.com/explore/interesting/2007/01/ og skoðað nánar myndina þann 11. jan. :D
fimmtudagur, janúar 04, 2007

Maður er alltaf smá tíma að ná sér eftir jólafrí. Er bún að vera laus við vinnuna í nokkra daga og ekki þurft að gera neitt annað en að sofa og borða. Hmmm, hljómar svona eins og lýsing á viðburðaríku lífi ungabarns.
Ég er líka blessunarlega laus við að lenda í eftir-jóla geðveikinni sem einkennist af þremur aðal atriðum. Útsölum, loforðum um heilbrigðara líferni og himinháum kreditkortareikningum. Rétti upp hend sá sem á við eitthvað af þessu þrennu að stríða...ekki vissi ég að Forski væri með 3 hendur. But anyway, blöðin eru alla vega full af auglýsingum frá aðilum sem vilja endilega gera okkur allt þetta léttara. "Komdu þér í súperform fyrir hádegi á mánudaginn" og allir hlaupa upp til hanada og fóta og kaupa sér í leiðinni megrunareyrnalokka, svifþörungaseyði, brönugrasamjólk og svínaþarmasmyrl. Og ekki má gleyma öllum þeim sem ætla svoleiðis að hætta að reykja um áramótin...aftur. Það virðist vera hægt að fá nikótín allan fjandann. Nikótín plástur er orðinn so yesterday. Það er nikótín baðolía, nikótín skyr.is, nikótín tannkrem og hver veit hvað. Af hverju ekki að halda bara áfram að reykja? Það er miklu einfaldara.
Útsölurnar eru sér kapítuli út af fyrir sig og þar gilda lögmál frumskógarins. Þar tapa konur á öllum aldri (og karlmenn ef um er að ræða rafmagnstækjaútsölur) gjörsamlega glórunni og mögr þúsund ár af siðmenningu fjúka út í buskann og þær fara að haga sér eins og Homo kaupóðus sem var fjarskyldur ættingi Homo sapiens. Það er bitið og slegið, hvæst og urrað og þegar kaupæðið rennur á fólk er ekkert sem getur bjargað því og best fyrir aðra að halda sig víðs fjarri þar til viðkomandi hefur aftur fengið ráð og rænu sem gerist venjulega fyrir utan verslunarmiðstöðvar þar sem útsölubullan áttar sig á því að hún stendur með 18 innkaupapoka fulla af fötum sem hún á aldrei eftir að ganga í. Hver sem þjáist af þessu hegðunarbrengli kannast ekki við að hafa keypt 8 pör af svörtum netsokkabuxum eða aðsniðinn gulllitaðan jogginggalla bara af því það var svo ódýrt?
Þá kemur að þriðja atriðinu sem eru kreditkortin. Ekki nóg með að fólk eyði öllu sem það á og heilum helling sem það á eftir að vinna sér inn, fyrir jólin þá bætir það um betur á janúarútsölunum. Febrúar Visareikningurinn er oft svo langur að það þarf að gefa hann út í þrem bindum! En hefur þetta ekki alltaf reddast? Hvað eru nokkrar andvökunætur út af fjárhagsáhyggjum eða eitt magasár á milli vina? Og vinnan göfgar manninn segja þeir. Svo er líka góðæri og peningarnir hreinlega sogast að okkur. Svo er líka hreinlega óþarfa tímaeyðsla að vera að velta sér eitthvað upp úr þessu, það þarf að endurnýja bílinn sem var keyptur í ágúst og svo þarf að fara að plana Kanaríeyjaferðina um páskana.
Efnisorð: Gleðilegt ár