Links
- Google News
- Python line
- MÃnus
- Harðkjarni
- All music guide
- Homestar runner
- Metal sludge
- Trivia
- Am I right
- Blabbermouth
- Sigga
- Forskaren
- myndirnar mÃnar
- Kiddi Rokk
- LondonÃa
- BB
- Zorglubb mikli
- Kokkálaði Kokkurinn
- Heilsuforski
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 01/01/2006 - 02/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 04/01/2006 - 05/01/2006
- 05/01/2006 - 06/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 07/01/2006 - 08/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
...neikvæð, fordómafull og óábyrg en þó alltaf í góðum fíling
sunnudagur, febrúar 25, 2007

Þó að ég hafi verið löt við að blogga undanfarið þá þýðir það ekki að það sé ekkert að gerast. Þvert á móti. Ég veit varla hvar á að byrja. Tensai San á leiðinni á Þing, Forski formlega útskrifuð sem Ismafræðingur og varð svo mikið um að hún fékk gigtarkast, Skruddurnur héldu stofnfund og Móðir Jörð lagði á sig langt og strangt ferðalag úr öðrum landshluta til að geta setið stofnfundinn og ég fór út að borða á Austur-Indíafjelaginu á laugardagskvöldið og át mér til óbóta (sem breytti því þó ekki að ég hefði verið til í að smakka á Sandholts súkkulaðikökunni sem Monopoly þurfti endilega að tilkynna mér að hún væri að borða).
En byrjum á frétt dagsins sem er auðvitað sú að Tensai San (mynd af henni að flytja framboðsræðuna er hér til hægri) er verðandi þingmaður og ef ekki bara ráðherra. Hún ákvað sem sagt að skella sér í framboð fyrir Vinstrihreyfinguna Græna Fingur til að geta látið gott af sér leiða. Ég ákvað því að kynna mér nánar stefnu flokksins.
Þar segir meðal annars að Vinstrihreyfingin Bleikir Fílar ætli að beita sér fyrir jafnrétti og bræðralagi, ást og umhyggju ásamt almennri fegurð að innan sem utan. Þá mun Vinstrihryfingin Fjólublátt Ljós við Barinn beita sér fyrir því að ekki verði framar skert hár á höfði einnar einustu þúfu á Íslandi og litlu sætu trén og blómin fái að vaxa og dafna í friði fyrir alþjóðlegum auðhringjum sem hafa mannhatur og skemmdarfísn eina að leiðarljósi. Einnig mun Vinstrihreyfingin Rauðir Hundar leitast við að jafna hlut karla og kvenna og með það að leiðarljósi verða karlar skikkaðir til að ganga um á háum hælum, þvo þvott og fara með börnin í stórmarkaði síðdegis á föstudögum. Vinstrihreyfingin Purpla Haze mun heldur ekki skorast undan ábyrgð þegar kemur að utanríkismálum og hefur ákveðið að senda fulltrúa á næstu Júróvisjónkeppni.
Þetta eru allt saman góð og göfug markmið og efast ég ekki um að þingmannsefnið okkar eigi eftir að hinna hug og hjörtu kjósenda.
Eins og fram hefur komið þá var stofnaður menningar- og bókmenntaklúbbur um daginn sem fékk heitið Skruddurnar. Markmiðið er að lesa eina bók á mánuði og hittast síðan og rökræða efni hennar auk annara gáfulegra hluta sem klúbbfélögum kunna að liggja á hjarta. Stofnfundur var haldinn hjá Tensai san og hristi hún fram úr erminni hverja kræsinguna af annari eins og t.d heimatilbúið hnetusmjör, bollur sem hún hafði bakað fyrr um daginn og rækjurétt sem hún fékk aðstoð frá Hammer við að taka út úr ofninum þar sem hún var of bissí við að þeyta rjóma og bera fram heimatilbúna sultu og snúast í kring um Frú Líkjör. Þar sem Tensai San hélt stofnfundinn fékk hún að ráða hver fyrsta lesningin væri og mæltist hún til að bókin "Þar sem vorið vaknar í hildjúpi sálarinnar og breiðir faðminn mót hnarreisum fleyjum hugans" eftir Thor Vilhjálmsson væri lesin þar sem hún væri í miklu uppáhaldi hjá sér.
Næst verður hist hjá Frú Líkjör og bókin sú arna krufin til mergjar og mun Tensai San flytja framsögu.
Þeir sem hafa lesið bloggið hjá Forska hafa varla komist hjá því að taka eftir að hún búin að hella sér út í líkamsræktina á fullu. Það er mætt í ræktina eldsnemma á morgnana meðan allt venjulegt fólk sefur ennþá værum blundi og svo hleipur hún orðið frá sér ráð og rænu. En hvað er upp úr þessu öllu að hafa? Ég geri ráð fyrir að Forski vilji bæti hreysti og vellíðan og fá hraustlegt og gott útlit þar að auki. En hvað gerist? Á föstudagskvöldið boðar Forski komu sína, segist vera í nágrenninu. 2 tímum seinna staulast hún með erfiðismunum hérna upp tröppurnar, komin með gigt og bakveiki og orðin slæm í mjöðminni af öllu spriklinu. Ég tók í snatri upp rauðvínsflösku enda sá ég að það var orðið illt í efni og Forski þurfti nauðsynlega á hjálp að halda ef þetta átti ekki að enda með ósköpum. Það er skemmst frá því að segja að Forski hélt heim á leið einni rauðvínsflösku seinna spræk sem unglamb og kenndi sér einskis meins.
Það sem hrjáir fólk nú til dags er að það drekkur ekki nógu mikið rauðvín og borðar ekki nógu gott súkkulaði.
sunnudagur, febrúar 11, 2007
Trivialkeppnin mikla var haldin í gær. Byrjaði reyndar á því að Frú Líkjör og Zorglúbb beiluðu bæði og Tensai San sá sæng sína út breidda áður en keppni byrjaði og lét sig hverfa enda greinilega við ofurefli að etja og líklega ekki mikið af spurningum um ofbeldisfulla tölvuleiki. Það er skemst frá þvi að segja að ég og Monopoly gjörsamlega völtuðum yfir Gösla og Forska sem sáu aldrei til sólar þrátt fyrir að fá spurningar eins og "Eru ísbirnir svartir eða hvítir" eða "Hvert er eftirnafn Guðjóns Bergmann" á erfiðustu kökunum. Sumir eru bara klárari en aðrir! Og þar sem viðstaddir eru flestir orðnir miðaldra þá var þetta allt saman ósköp dannað og fólk farið að geispa kl. 11 enda dauðuppgefið eftir erfiðan laugardag. Það þarf að skúra, skrúbba og bóna, sníta og skeina og allt þetta skemmtilega sem fjölskyldufólk gerir. Forski var hins vegaer eftir sig eftir líkamsrækt dagsins en eins og einhverjir vita þá er Forski orðin mikil áhugamanneskja um líkamlega hreysti og hleipur nú eins og rófulaus hundur út um allar jarðir og er búin að kynna sér þessa merku list að hlaupa mjög ítarlega og lesa margar lærðar bækur eins og t.d "How to move your feet fast", "The art of putting one foot in front of the other" og "Running: You can do it if you try hard enough"

Ég talaði um það síðast að ég væri á leiðinni til Spánar eftir 2 mánuði, núna er ég líka að fara til London eftir 1 mánuð! Ó já, og nú á sko að skella sér á alvöru tónleika og sjá hina margrómuðu hljómsveit Warrior Soul trylla lýðinn. Og ég fer ekki ein í þetta skiptið heldur með fríðu föruneiti þar sem Zorglúbb og Gösli ætla að rifja upp gamla flösuþeytingatakta (annar hefur reyndar meira hár en hinn til að þeyta en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi). Hér verður sko ekki farið í einhverjar barnafata eða hannirðabúðir né heldur farið á málverkasýningar eða söngleiki. Það verða þræddar subbubúllur og sveittir tónleikastaðir og bara drukkinn bjór og borðaðar pizzur (hljómar eins og típísk utanlandsferð áttatíu og eitthvað....)! Svo er líka bara alltaf gaman að fara til London og þar er voða, voða stór og flott Apple búð!!!
Hafiði tekið eftir því að það virðast hreinlega allir ætla að fara í framboð fyrir þessar kosningar. Fyrst var það gamla liðið sem ætlaðar að vera með ekki eitt framboð heldur tvö. Seinna dæmið er líklega þeir sem voru búnir að gleyma því að það var komið framboð. Svo eru allskonar umhverfisverndarframboð þar sem umhverfisvernd er tískumálið í ár. Það er Framtíðarlandið og Draumalandið og Flokkur grænmetisæta, fólk með græna fingur ætlar í sér framboð sem og Samtök garðálfavina. Það er Flokkur til verndunar sunnlenskum trjálundum og framboð áhugafólks um bankabygg lífrænt ræktaðar belgbaunir. Svo eru það allir undirokuðu minnihlutahóparnir eins og tileigðir og útskeifir sem aldrei hafa fengið hljómgrunn innan gömlu stjórnmálaflokkanna ekki frekar en áhugafólk um velferð íslensku landnámshænunnar eða Vitavinafélagið. Þá eru ótalin ýmis hagsmunasamtök sem vilja koma sínum málum betur á framfæri eins og Samtök lúsera úr prófkjörum sem eru þverpólitísk samtök og samtök áhugafólks um óhefta mengun sem samanstendur af jeppaeigendum og fiskiskipaeigendum. Maður á hreinlega eftir að fá valkvíða þegar svo loksins kemur að því að krossa við á kjörseðlinum.
|

Ég talaði um það síðast að ég væri á leiðinni til Spánar eftir 2 mánuði, núna er ég líka að fara til London eftir 1 mánuð! Ó já, og nú á sko að skella sér á alvöru tónleika og sjá hina margrómuðu hljómsveit Warrior Soul trylla lýðinn. Og ég fer ekki ein í þetta skiptið heldur með fríðu föruneiti þar sem Zorglúbb og Gösli ætla að rifja upp gamla flösuþeytingatakta (annar hefur reyndar meira hár en hinn til að þeyta en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi). Hér verður sko ekki farið í einhverjar barnafata eða hannirðabúðir né heldur farið á málverkasýningar eða söngleiki. Það verða þræddar subbubúllur og sveittir tónleikastaðir og bara drukkinn bjór og borðaðar pizzur (hljómar eins og típísk utanlandsferð áttatíu og eitthvað....)! Svo er líka bara alltaf gaman að fara til London og þar er voða, voða stór og flott Apple búð!!!
Hafiði tekið eftir því að það virðast hreinlega allir ætla að fara í framboð fyrir þessar kosningar. Fyrst var það gamla liðið sem ætlaðar að vera með ekki eitt framboð heldur tvö. Seinna dæmið er líklega þeir sem voru búnir að gleyma því að það var komið framboð. Svo eru allskonar umhverfisverndarframboð þar sem umhverfisvernd er tískumálið í ár. Það er Framtíðarlandið og Draumalandið og Flokkur grænmetisæta, fólk með græna fingur ætlar í sér framboð sem og Samtök garðálfavina. Það er Flokkur til verndunar sunnlenskum trjálundum og framboð áhugafólks um bankabygg lífrænt ræktaðar belgbaunir. Svo eru það allir undirokuðu minnihlutahóparnir eins og tileigðir og útskeifir sem aldrei hafa fengið hljómgrunn innan gömlu stjórnmálaflokkanna ekki frekar en áhugafólk um velferð íslensku landnámshænunnar eða Vitavinafélagið. Þá eru ótalin ýmis hagsmunasamtök sem vilja koma sínum málum betur á framfæri eins og Samtök lúsera úr prófkjörum sem eru þverpólitísk samtök og samtök áhugafólks um óhefta mengun sem samanstendur af jeppaeigendum og fiskiskipaeigendum. Maður á hreinlega eftir að fá valkvíða þegar svo loksins kemur að því að krossa við á kjörseðlinum.
laugardagur, febrúar 03, 2007

Þá að ég sé orðin heimsfrægur ljósmyndari eins og allir vita þá ætla ég samt ekki að hætta blogginu frekar en að hætta að mæta í brönsinn sökum anna. Og come on, hver er það bissí kl. hálf tólf á sunnudagsmorgni að geta ómögulega mætt á kaffihús í klukkutíma?! Væll segi ég!!
Ég missti reyndar af síðasta bröns en var löglega afsökuð þar sem ég var í France að horfa á menn elda mat. Þarna voru12 kokkar að elda í einu og markmiðið var að hrista fram úr erminni besta og flottasta réttinn á ákvðnum tíma úr fyrirfram ákveðnu hráefni. Þó þetta hafi verið keppni í matreiðslu og fullt af fólki að fylghast með þá átti ég ekki von á stemmingu eins og á landsleik í handbolta þar sem áhorfendurnir voru uppi í stúku fyrir framan keppendurna og hvöttu sína menn áfram með látum og lúðrablæstri. Að full stúka af fólki standi hreinlega á öndinni af spenningi yfir að sjá mann elda fisk er frekar sérstakt:D
Borðaði líka allskonar mat og drakk fullt af rauðvíni. Ég smakkaði t.d pizzu með spældu eggi sem var þó ekki viljandi gert heldur skildi ég ekki hvað stóð á seðlinum og þjónninn vissi ekki enska orðið yfir egg. En það kom skemmtilega á óvart að pizza með papriku, kryddpylsu og spældu eggi er bara alveg ágæt. Af öllu ólöstuðu er þó súkkulaðikaka með appelsínusósu toppurinn á matarupplifun minni í þessari ferð og ég fæ sæluhroll við það eitt að hugsa um hana!
Næst fer ég svo til Spánar í apríl í samfloti við nokkra mótorhjólanörda. Life is sweet (þökk sé barnleysinu að ég get dekrað í kring um rassgatið á sjálfri mér, and I love it :D )
Það er þó ekki bara ég sem hef verið á faraldsfæti undanfarið heldur er Forski búin að vera í heimsókn í draumalandinu Svíþjóð að kynna sér starfsemi IKEA sem hún hefur tekið miklu ástfóstri við. Þar sem hún hefur unnið sér inn stöðuhækkun hjá fyrirtækinu með elju og samviskusemi og er orðin yfir skiltaálímari, þá var hún send til höfuðstöðvanna í Ullevalla á skiltaálíminga- og upphenginganámskeið. Nú kemur sér líka vel að hafa stúderað bókmenntafræði þegar þarf að staðfæra heilan IKEA vörulista upp á 150 blaðsíður sem Forski mun vinn að í samvinnu við stjarneðlisfræðing, taugaskurðlækni og heimspeking sem allir hafa tekið starf hjá hinu öfluga fyrirtæki fram yfir akademískt brölt.
Það eru búnar að vera heilmiklar framkvæmdir hérna í hverfinu undanfarið. Búið að rífa 2 eða 3 stór hús hérna á bak við hjá mér sem mátti svo sem alveg rífa og þó fyrr hefði verið. Það sem verra er að ég veit ekkrt hvað á svo að gera þarna þar sem íbúunum hefur ekki verið kynnt neitt hvað stendur til. Kanski enn ein fjandans 25 hæða blokkin með 5 skrilljón fermetra bílakjallara? Kanski moll með 50 tískuverslunum og skóbúðum sem allar selja sama draslið á uppsprengdu okurverði? Kanski er einhver bankinn að fara að byggja stærri, flottari og dýrari gler og stálmonster en hinir bankarnir, með 10 skrilljón fermetra bílakjallara fyrir alla jeppana sem starfsmennirnir keyra um á? Kanski verður troðið niður þarna mislægum gatnamótum með slaufum og hnútum til að flytja umferðarteppu ofan úr Grafarvogi eitthvað annað? Ja hver veit? Borgarstjóralufsan hefur alla vega ekki mátt vera að því að kynna neitt deiliskipulag, er allt of upptekinn við að skipta sér af því hvort það verði holað niður nokkrum spilakössum í Mjóddinni. Svo var hann að hreinsa blómabeð í Breiðholti og gott ef ekki mála grindverk líka. Hvað er næst? Fer hann að skipta sér af ósmekklegum blómapottum úti í gluggum hjá fólki eða skamma druslulega klædda unglinga?
Það hafa tveir tónlistarviðburðir verið í sjónvarpinu síðustu daga sem mig langar aðeins til að bera saman. Þar sem ég er ekki með sjónvarp þá sá ég annan að hluta til á netinu en hinn að hluta til í sjoppunni í Þorlákshöfn. Þarna er ég að tala um Júróvisjón undankeppnina og Íslensku tónlistarverðlaunin. Það fyrrnefnda ámátlegt væl Ædol lúsera og sveitaballahnakka og hver lagasmíðin annari ófrumlegri og aumkunarverðari. Svo voru það Íslensku tónlistarverðlaunin sem sýndu það að það er til fullt af hæfileikaríkum tónlistarmönnum á Íslandi eins og t.d Lay Low, Pétur Ben, Hafdís Huld, Trabant, Jeff Who, Ampop o.fl, o.fl. Þessir tónlistarmenn þykja hins vegar ekki þess virði að eytt sé í þá peningum úr opinberum sjóðum og hvað þá krakkar sem eru enn inni í bílskúrum út um allt land að spila tónlist sem þeim finnst skemmtileg. Þeir einu sem hafa sýnt þessu einhvern áhuga eru borgin (vona bara að borgarstjórinn haldi áfram að reyta arfa í blómabeðum í Breiðholti og fari ekki að skipta sér af því, það samrýmist víst ekki frjálshyggjunni að leggja peninga í listir), Flugleiðir og Landsbankinn. Það vantar hins vegar ekki íþróttamannvirkin og það er varla til það auma krummaskuð þar sem ekki er íþróttahús í ólympíustærð og upphitaður fótboltavöllur. Það er verið að senda fólk til útlanda á allskonar mót þar sem árangurinn er venjulega lítið skárri en enginn. Hvar er t.d fótboltalandsliðið statt á heimslistanum? Einhversstaðar á svipuðum slóðum og Bermúda og Togo. En ekki vantar að það sé dælt peningum í það. Svo er haldið heimsmeistaramót í handbolta sem er álíka mikil jaðaríþrótt á heimsmælikvarða og skíðafimleikar eða kassabílarallý en hér ætlar allt að fara á annan endann yfir þessu hnoði.
Íþróttabrölt er langt frá því að höfða til allra og því ekki að gefa hinum tækifæri til að gera það sem þau langar til og vera skapandi. Burt með íþróttabölið!!!